Munið þið eftir sjálfinu með frosnu augnhárin? Konan sem var með frosinn snjó í andlitinu?
Í janúar síðastliðnum varð mynd af hinni 25 ára gömlu Anastasia Gruzdeva „viral“ á netinu. Á henni sást hún vel dúðuð í mínus 60 gráðu frosi í Yakutsk í Rússlandi.
Yakutsk er einn kaldasti staður heims yfir vetrartímann og fangaði sjálfan vel þá staðreynd. Á sumrin hins vegar getur hitastigið hins vegar farið í allt að 40 gráður.
https://www.instagram.com/p/Bd6TF5bgunf/?utm_source=ig_embed
Á nýjum sjálfum sem Gruzdeva póstaði í vikunni má sjá hana njóta sumarsins, með moskítóflugum, sem eru alls ráðandi yfir sumartímann.
Það er spurning hvort er betra, nístandi frostið um veturinn eða þessi félagsskapur í hitanum á sumrin?
https://www.instagram.com/p/BldXUdjg1HR/?utm_source=ig_embed
https://www.instagram.com/p/Bk-QmAYAkVu/?utm_source=ig_embed