fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Magdalena Rós safnar fyrir legsteini móður sinnar – „Ég er að gera þetta fyrir mömmu mína“

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 9. nóvember 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magdalena Rós Hauksdóttir Clark er 25 ára og á sér markmið fyrir jólin. Magdalena selur jólasveinasegla, sem móðir hennar, Maureen Patricia Clark, bjó til í veikindum sínum. Með sölunni er Magdalena að safna fyrir legsteini á leiði móður sinnar.

„Mamma var fædd og uppalin í Bandaríkjunum, en pabbi hennar var Bandaríkjamaður. Síðan flutti hún heim og bjó bæði á Hellissandi og í Reykjavík,“ segir Magdalena Rós, sem er einkabarn móður sinnar.

Móðir hennar bjó síðustu fimm ár í Bandaríkjunum með manni sínum. „Í janúar í fyrra greindist hún með leghálskrabbamein og flutti fljótlega heim til Íslands. Hún var á spítalanum eiginlega frá því hún greindist og þar til hún lést,“ segir Magdalena. Maureen var komin með fjórða stigs krabbamein þegar hún lést og hafði meinið dreift mikið úr sér og endað upp í höfði, hún var 46 ára þegar hún lést rétt fyrir jól, 21. desember 2017. „Þetta er enginn aldur,“ segir Magdalena, en móðir hennar var jarðsett á Akureyri, en hún dvaldi á sjúkrahúsinu þar í veikindum sínum.

Magdalena raðar sveinunum í röð

Maureen gekk í Listaháskólann, en útskrifaðist ekki þaðan, og var að mestu sjálflærð. Hún var einnig með stúdíó úti í Florída. „Hún var algjör listakona og rosalega hæfileikarík, hún gerði líka bolla, töskur, kort og málverk. Mamma var mjög litrík manneskja,“ segir Magdalena og brosir.

Seglarnir sem Magdalena selur eru listaverk móður hennar. „Mamma bjó þá til meðan hún var veik í fyrra og gerði allt sjálf heima, prentaði þá út og skar út í vél. Mér og stjúppabba mínum fannst tilvalið að prenta þá út núna fyrir jólin. Mig langar að dreifa listinni hennar mömmu á eins mörg heimili og ég get,“ segir Magdalena einlæg. „Ég er að gera þetta fyrir mömmu mína.“

Magdalena með seglana góðu og myndir af móður sinni í ramma.

Þó að Magdalena sé ekki að gera listaverk eins og móðir hennar, þá hefur hún erft listræna hæfileika hennar, en hún er lærð hárgreiðslukona, snyrti- og förðunarfræðingur. „Ég get ekki teiknað á prik, en ég get nýtt þá svona,“ segir hún.

„Ég er orðlaus yfir viðtökunum,“ segir Magdalena hrærð, aðspurð hvernig hafi verið tekið í söluna hjá henni. „Ég er svo ofboðslega þakklát.“

Þeir sem vilja panta jólasveina hjá Magdalenu geta sent henni skilaboð á netfangið: magdalenaros1993@gmail.com

Seglarnir eru tilvaldir fyrir jólin og henta líka vel til gjafa
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“