fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

„Ég held að gamlárskvöldið 1987 hafi verið hræðilegustu áramót sem ég hef upplifað“

Tómas Valgeirsson
Mánudaginn 26. nóvember 2018 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Jólin snúast um gleði, notalegar stundir með okkar nánustu og taumlaust át á lúxusfæði og gotteríi. Flestir eru þó sammála um að hátíðinni fylgi einnig streita og og stress og það jafnvel þrátt fyrir að allt gangia samkvæmt áætlun. Ef eitthvað fer úrskeiðis á þessum tíma, eins og ef dekkið springur á leið í jólaboð eða það gleymist að fara með hátíðarfötin í hreinsun, þá getur streitan margfaldast.

DV ákvað að rifja upp nokkrar ólíkar en dramatískar harmsögur þekktra einstaklinga um jólahátíðina.

 

Sýruævintýri og roastbeef-samlokur

Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, komst ekki í tæka tíð í jólamatinn á aðfangadag árið 2007. Hann hafði verið að spila í höfuðborginni og ætlaði að fara heim vestur á firði og hitta konu sína og eldri soninn, en sá yngri var í borginni með föður sínum. Feðgarnir áttu pantað flug vestur til Súðavíkur þegar mikið óveður skall á. Söngvarinn sagði þessa hressilegu sögu í Séð og Heyrt árið 2011.

Útlit var fyrir að ekkert yrði af fluginu. Vélin fór þó í loftið en veðrið var svo slæmt vestur á fjörðum að á endanum þurfti að snúa vélinni við. „Þá fengum við far og ætluðum að keyra vestur, í klikkuðu veðri,“ segir hann. Feðgarnir neyddust síðan til að stoppa á bensínstöð og kaupa sér óhefðbundna jólamáltíð. „Þegar klukkan var orðin sex, þá var ég á Hólmavík, borðandi roastbeef-samlokur og drekkandi kókómjólk með tveggja ára syni mínum. Við bjuggum bara til eitthvert sýruævintýri úr þessu.“

Óhapp aldarinnar

Árið 2014 lenti samfélagsmiðlastjarnan Maggi Mix í óheppilegu atviki á versta tíma fyrir jólahátíðina, nánar til tekið á Þorláksmessu. Sjálfur hefur hann ekki sparað stóru orðin um alvarleika málsins, en þetta átti sér stað þegar hann tók upp innslag fyrir matreiðsluþátt sinn, Gott og gómsætt. Maggi ákvað að deila með áhorfendum uppskrift að pastarétti með tómatsósu, eða „kjeddaranum“ eins og hann kallar sjálfur réttinn. Það fór ekki betur en svo að þegar Maggi ætlaði að sýna áhorfendum réttinn beint úr örbylgjuofninum rann pastað af diskinum og beint á fartölvuna.

Fyrstu viðbrögð Magga fólu í sér orðin „Shit. Fokk“. Fastlega má reikna með því að fartölvan hafi lifað gjörninginn af í ljósi þess að hann hlóð upp myndbandi með atvikinu undir heitinu „Óhapp aldarinnar“.

Laug að móður sinni

Fyrrverandi íþróttamaðurinn Logi Geirsson upplifði einu sinni sína útgáfu af jólamyndinni Aleinn heima (e. Home Alone), ef þannig má að orði komast. Í viðtali við Jól.is árið 2009 sagði hann frá afar eftirminnilegri jólaminningu, en á þeim tíma var Logi á sínu fyrsta ári sem atvinnumaður í handbolta. Í ljósi þess að hann var mikið að spila yfir hátíðirnar endaði hann með því að halda einsamall upp á aðfangadag. Það væri ekki frásögur færandi nema vegna þess að Logi átti ekkert til af mat og var hægara sagt en gert að halda út þessa rauðu daga þar sem allt var lokað, honum til mikillar mæðu.

„Ég hélt að þetta væri bara eins og heima á Íslandi að ég gæti bara skroppið út á bensínstöð á miðnætti á aðfangadag. En það var heldur betur ekki raunin. Það var allt lokað á Þorláksmessu, á aðfangadegi og jóladegi,“ segir hann. „Ég kunni ekki að sjóða mér egg á þessum tíma þannig að ég átti aldrei til neitt í ísskápnum. Það sem hélt mér á lífi þessa tvo eða þrjá daga voru tvær frosnar örbylgjupítsur.“

Logi viðurkennir að hann hafi logið að móður sinni á þessum tíma, en þegar hún hringdi til að óska honum gleðilegrar hátíðar svaraði hann símanum og þóttist vera í mikilli jólaveislu hjá þjálfara sínum. „Mamma hringir í mig klukkan sex á aðfangadag. Ég hleyp þá inn í stofu og set músík í græjurnar og spyr hún mig hvernig ég hefði það,“ segir hann. „Ég vildi ekki skemma fyrir þeim jólastemninguna heima, svo ég fór bara að kroppa í pítsuna. Ég held ég kunni líka að meta jólin enn meira eftir þetta.“

 

Missti meðvitund í Ósló

Jólasaga Fanneyjar Guðmundsdóttur, landsliðskonu í skíðaíþróttum, þann 2011 er full af harmi og átakanleg. Þá slasaðist hún alvarlega þegar hún var við æfingar í Geilo í Noregi. Æfingin var á aðfangadegi og fór þannig að hún var á mikilli ferð á skíðunum og lenti á tré með þeim afleiðingum að hún hlaut fjölda beinbrota.

Fanney missti meðvitund og andaði ekki þegar að henni var komið. Sem betur fer báru lífgunartilraunir árangur en þá var hún flutt á Ullevål-sjúkrahúsið í Ósló. Fanney er á góðum stað í dag og varð slysið ekki til þess að hún ætti skíðaiðkuninni. Seinna meir fór hún að hreyfa sig og spreyta sig í fótbolta með Þrótti í Pepsi-deild kvenna. Einnig kláraði hún nám í hagfræði við Háskóla Íslands.

 

Í gifsi yfir áramótin

Örn Árnason leikari hefur margsinnis opinberað dálæti sitt á áramótunum og má segja að hann sé þekktasti „sprengjumaður“ landsins. Í viðtali við Morgunblaðið árið 2005 sagði Örn áramótasögu sem þótti frekar sorgleg, en þó ekki nógu sorgleg til að draga úr áhuga hans á flugeldum til frambúðar. Leikarinn var á þeim tíma fjórtán ára gamall og hefst sagan þegar hann útbjó þriggja þrepa rakettu. Að hans sögn var umrædd raketta afar tilkomumikil en gekk illa í flugtakinu, sem leiddi til drungalegs hvells. „Mér brá og hljóp undan henni,“ segir Örn en hann rann í hálku og braut á sér ristina. „Svo lá ég bara í gifsi yfir áramótin.“

Slagveðursrigning og slagsmál

„Ég held að gamlárskvöldið 1987 hafi verið hræðilegustu áramót sem ég hef upplifað.“ Þetta segir Steinn Ármann Magnússon leikari í samtali við DV í desemberviðtali frá árinu 2000. Hann sagði söguna um einfalt kvöld sem breyttist í mikla martröð og hófst þetta allt með slagveðursrigningu og boði í teiti. „Við náttúrlega skelltum okkur og ætluðum aldeilis að sletta úr klaufunum og ná okkur í stelpur, svona væntingar sem maður gerði til áramóta á þessum tíma lífsins.“

Steinn segir að vonbrigðin hafi farið vaxandi þegar í ljós kom að einungis pör voru stödd í þessu teiti, „þar af leiðandi engar stelpur til að reyna við“, segir hann.

„Foreldrar stráksins sem hélt partíið voru líka heima, sem var ekki til að bæta það. Síðan til að toppa þetta allt saman þá sauð upp úr í partíinu og við lentum í einhverjum slagsmálum og látum. Þegar við ætluðum svo að koma okkur heim þá föttuðum við að það var ekki hægt að fá leigubíl og við þurftum að labba heim allir mígandi blautir, bláir og marðir.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Eva Ruza fer í skóför Felix

Eva Ruza fer í skóför Felix
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 4 dögum

Sonur Elísu og Elíss fæddur

Sonur Elísu og Elíss fæddur
Fókus
Fyrir 4 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“