Það er jafnan spenna í loftinu þegar nýir leiknir íslenskir sjónvarpsþættir eru frumsýndir. Margir sátu eflaust spenntir við sjónvarpið í gærkvöldi þegar Flateyjargátan, íslensk spennuþáttaröð í fjórum hlutum, var frumsýnd á RÚV.
Þættirnir segja frá Jóhönnu sem snýr aftur til Íslands eftir 10 ára dvöl í París til að jarða föður sinn. Faðir hennar hafði helgað líf sitt rannsóknum á hinni óleystu Flateyjargátu.
Gátan er rituð í Flateyjarbók og í 600 ár hefur engum tekist að leysa hana. Með Jóhönnu í för er níu ára sonur hennar, Snorri. Jóhanna flækist í morðrannsókn á sama tíma og hún reynir að leysa Flateyjargátuna. Hún neyðist til þess að horfast í augu við drauga fortíðar sem elta hana uppi.
Fjölmargir tjáðu sig um þættina á Twitter í gær en þar geta umræður oft verið skemmtilegar. Hér má sjá brot af umræðunni eftir þáttinn í gærkvöldi. Við hvetjum eins þá lesendur sem horfðu að tjá sig um þættina í athugasemdakerfinu hér undir.
Ekki mun Flateyjargátan breyta þeirri algengu hugmynd útlendinga að Íslendingar fari gjarnan í rúmið hver með öðrum áður en þeir hafa náð að skiptast á 20 orðum.
— Ármann Jakobsson (@ArmannJa) November 18, 2018
Mjög löng og flott Geysisauglýsing. #flateyjargátan
— margrét erla maack (@mokkilitli) November 18, 2018
„Þetta lopapeysumynstur er frá 2008“ #Flateyjargátan
— Jón Kristinn (@jonkaerr) November 18, 2018
Afhverju hringir síminn eins og sjálfvirki síminn sé kominn, þegar það er „sveitsími“ þar. #flateyjargátan
— Óli G. (@dvergur) November 19, 2018
Retro Stefson. Flateyjargátan fer þrusu vel af stað #Flateyjargátan #RUV pic.twitter.com/cokwpDiN10
— Stefán Eiríksson (@StefanEiriks) November 18, 2018
Jæja þá er eini heimsklassaleikari þáttanna dauður. #flateyjargátan
— Arnór Bogason (@arnorb) November 18, 2018
Það er ekkert íslenskara glæpasagnaminni en þreyttir einhleypir rannsóknarlögreglumenn sem kunna ekki að elda. Sitja bara einir í myrkrinu og borða 1944 eða dósamat. #flateyjargátan
— Hrafn Jónsson (@hrafnjonsson) November 18, 2018
Það sem er merkilegt við íslenskt sjónvarpsefni er hljóðið. Það er bæði lítið af því og mikið á sama tíma #flateyjargátan
— Steinunn Vigdís (@Silladis) November 18, 2018
Ég var alveg viss um að Snorri væri stelpa. #flateyjargátan
— Arnór Bogason (@arnorb) November 18, 2018
Ég að hlusta á fólk ræða þriðja orkupakkann. #Flateyjargátan pic.twitter.com/BIVM1zGchk
— Reynir Jónsson (@ReynirJod) November 18, 2018