Fasteignasalan Domus Nova er með 130 fermetra íbúð í Kópavogi til sölu á tæplega 54 milljónir króna. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að ein mynd er við fyrstu sýn nokkuð dónaleg.
Fyrst var bent á þetta á Reddit en þar segir sá sem deilir: „Baðherbergið höfðar kannski meira til kvenkyns kaupenda“.