fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Hafsteinn fylgir ekki hjörðinni – Aukin símanotkun fólks kveikti þráðinn

Tómas Valgeirsson
Sunnudaginn 21. október 2018 18:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Höfundurinn og myndlistarmaðurinn Hafsteinn Hafsteinsson hefur verið virkur teiknari frá barnsaldri. Þegar hann flutti til Íslands sem barn átti hann erfitt með að læra íslensku og fór í staðinn að teikna allt sem hann bað um. Þetta hefur ekki stoppað síðan, því seinna tók við myndlistarnám við Willem de Kooning Academy í Rotterdam og hans fyrsta bókaútgáfa árið 2017.

Nýverið gaf Hafsteinn út barnabókina „En við erum vinir“, sem er sjálfstætt framhald sögunnar „Enginn sá hundinn“. Báðar bækur skrifar hann og myndskreytir en Hafsteinn hefur haft þann vana að sækja innblástur í það sem er að gerast í samfélaginu. Nýjustu bókina segir Hafsteinn fjalla um hræðsluáróður sem hugsaður er til að tvístra fólki í hópa.

„Bestu barnabækurnar í mínum huga eru þær sem geta skemmt foreldrum og börnum og gefið þeim eitthvað til þess að tala um þegar lesturinn er búinn,“ segir Hafsteinn. „Fyrir mér eru skilaboð þessarar bókar þau að hlusta ekki á hjörðina né fylgja henni og vera sannur vinur í staðinn. Ég hef alltaf trúað því að höfundar barnabóka eigi að segja eitthvað sem er mikilvægt fyrir börn að læra. Það þarf ekki alltaf að vera samfélagsrýni, það má vera hvaða lexía sem er. Ég held að fáir hafi náð að flytja skilaboð jafnvel í barnabókum og Dr. Seuss.“

Hafsteinn segir kveikjuna að barnabókum hans hafa komið þegar símanotkun ungs fólks fór að aukast. Fólk eigi það til að missa af lífinu í kringum sig og þótti listamanninum það skondin tilhugsun að kanna hverju dýrin velta fyrir sér þegar fólk er á kafi í litlum, skínandi skjáum. „Oft þegar ég er í tölvunni þá kemur kisan mín og reynir að fá mig til að klappa sér. Eðlilega,“ segir Hafsteinn. „Frá sjónarhorni þessara dýra heldur þú á glóandi, flötu járnstykki og starir inn í ljósið eins og eitthvað úr hryllingsmynd. Dýrin skilja ekkert hvað þú ert að stara á og mér þótti það ágætis grunnur að hugmynd.“


Austan- og vestanhafsáhrifin

Þegar Hafsteinn var yngri hreifst hann mikið af japönskum stíl og hefur sótt grimmt í áhrif frá Ghost in the Shell og Akira, svo dæmi séu nefnd. Þá gjörbreyttist sköpunarferlið á háskólaárunum þegar hann var farinn að sækja í hinn enda hnattarins og kynna sér vestrænni teiknistíl. Hafsteinn telur sig hafa náð að sjóða saman þessi áhrif og finna fullkominn milliveg fyrir eigin verk.

Tónlist leikur einnig lykilhlutverk og vill hann meina að það sé nauðsynlegt tól til að leyfa sögu að flæða betur í kollinum. „Ég nota til dæmis oft tónlistarformúlur í barnasögunum, þar sem er tekið tillit til viðlags, uppbyggingar og þess háttar,“ segir Hafsteinn.

Spurður hvaða verk hafi haft ríkjandi áhrif á hann á æskuárum segir Hafsteinn þann lista vera langan en hann hallist oft að súrum húmor og ekki síður hryllingssögum. „Ég hef alla tíð verið hrifinn af súrrealisma og gríni og langar alltaf að segja meira með sögu heldur en lesandinn les í fyrstu,“ segir Hafsteinn og telur upp Evil Dead og verk spíritistans Alejandros Jodorowsky sem stóran áhrifavald. Framundan hjá Hafsteini eru stuttar hrollvekjusögur í myndasöguformi. „Ég hef nóg af hugmyndum sem mig langar að vaða í, svo ég held að ég muni ekki stoppa á næstunni.“

 

Hugboðið sem breytti öllu

Hafsteinn er búsettur í Neskaupstað og segist betur kunna við sig þar en í höfuðborginni. „Það halda margir að listafólk þurfi að búsetja sig í Reykjavík, en það er töluvert ódýrara að búa úti á landi og þú færð meiri tíma fyrir listina. Það eru margir listamenn sem hafa ákveðið að búa úti á landi vegna þess.“

Á milli listastunda er Hafsteinn hluti af hótel- og veitingarekstri í Neskaupstað ásamt manninum sínum, Hákoni Hildibrand. Þar sinna þeir menningartengdri starfsemi og aðstoða við að reka fé í nágrenninu. Þeir Hafsteinn og Hákon eru sælir og sannkallað athafnapar og vill listamaðurinn meina að ólíkir persónuleikar þeirra styrki þá. Hafsteinn bætir við að Hákon hafi kennt honum ýmislegt og öfugt, en það sem sameinar þá er sameiginlegur húmor og löngun til að skapa. Hákon er einnig undir dragnafninu Amma andskotans og hefur verið hressandi plötusnúður og skemmtikraftur um margra ára bil.

„Ég gæti ekki ímyndað mér líf án hans,“ segir hann. Þeir Hákon hafa verið saman í tæp átta ár og segir Hafsteinn að fyrstu kynni þeirra hafi verið örlagarík og skrautleg.

„Við kynntumst auðvitað á „Gay bar“ í Reykjavík, líkurnar á því að við myndum hittast voru mjög litlar. Ég var í fríi frá skólanum á Íslandi og var dreginn á barinn af vini mínum. Og Hákon var í fríi í Neskaupstað og fékk hugboð um morguninn um að fara til Reykjavíkur með næsta flugi. Þá hittumst við um kvöldið, fyrir einskæra tilviljun, á dansgólfinu og við höfum ekki hætt að dansa saman síðan.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“

„Ég var kominn á stað þar sem ég vissi að ég myndi valda mér miklum skaða ef ég myndi ekki taka í taumana“
Fókus
Í gær

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna

Jón og Hafdís selja Seltjarnarnesvilluna
Fókus
Fyrir 2 dögum

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár

Keppandi Írlands í Eurovision í ár er kvár
Fókus
Fyrir 2 dögum

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall

Segir að meðlimur bresku konungsfjölskyldunnar hafi boðið henni í kynsvall
Fókus
Fyrir 3 dögum

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“

Flaug á rassinn á sviðinu – „Lögfræðingurinn minn mun hringja“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki

Aðdáendur fá innsýn í ástarlíf Taylor Swift á nýrri plötu – Það kom þó á óvart hvaða maður er þar í aðalhlutverki
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“

Sviplegt fráfall samfélagsmiðlastjörnu skekur netheima – „Ég skil þetta ekki, ég var með henni á föstudaginn“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi

Einkaþjálfari Taylor Swift varpar ljósi á það sem hún gerir til að halda sér í formi