fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Fókus

Sara Riel opnar einkasýningu á laugardag – Freistar þess að treysta innsæinu

Ragna Gestsdóttir
Föstudaginn 19. október 2018 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sara Riel opnar einkasýningu sína, Sjálfvirk / Automatic, í Kling & Bang, Marshallhúsinu á morgun, laugardag, kl. 17-19.

Til sýnis verða nýjar teikningar, málverk og skúlptúrar. Daglegur gjörningur á meðan á sýningartíma stendur og útgáfa bókar.

Sara hefur síðustu misserin ástundað teikniæfingar þar sem hún þjálfar sig í að komast í flæðiástand, kyrra hugann og kanna heiminn sem býr innra með henni – sjá hvert línan leiðir. Á sýningunni Sjálfvirk fer Sara gegn vísindalegri hugsun eða rökrænum ákvörðunum sem byggja á sundurgreiningu og flokkun. Eins og yfirskrift sýningarinnar gefur til kynna er hér um að ræða eitthvað sem við höfum ef til vill ekki fullkomna stjórn á eða eitthvað sem gerist ósjálfrátt. Sara upphefur mátt ímyndunaraflsins og spunans og freistar þess að treysta innsæinu.

Sara Riel (1980) hefur ótvíræða sérstöðu í íslensku listumhverfi. Fáir myndlistarmenn hafa tekist á við jafn stór veggmálverk í almenningsrýmum. Sara byrjaði að mála veggi á unglingsárum og eru verk eftir hana á veggjum um víða veröld, t.d. í Tokyo, Berlín og Reykjavík. Veggmyndir hennar eru fyrir löngu orðnar partur hluti af borgarlandslagi Reykjavíkur. Sara hefur samhliða veggjalist þróað myndmál sitt gegnum mismunandi miðla með blandaðri tækni. Hún hefur einnig verið afkastamikill hönnuður og gert fjölmörg plötuumslög, bókakápur og plaköt. Hún hefur tekið þátt í fjölda sýninga hér á landi og erlendis, í minni galleríum sem og virtum sýningarsölum. Sara er meðlimur í Myndhöggvarafélagi Reykjavíkur og alþjóðlegu strætislistagengi sem nefnist Big Geezers.

Á meðan á sýningunni stendur mun Sara teikna daglega (miðvikudag til laugardags) frá 12-15 í Kling & Bang. Þann 24. október verða tónleikar með teikningu, Sara Riel og Ólöf Arnalds á SOE 101 Kitchen í Marshallhúsinu. Listamannaspjall í Kling& Bang verður 15. nóvember kl. 20.30.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 3 dögum

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell

8 ára drengur með heilaæxli steig á svið – Sjáðu atriðið sem hreyfði við Simon Cowell
Fókus
Fyrir 3 dögum

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir

J. Lo loksins laus við slottið – 7 ár í sölu og verðmiðinn lækkaður um milljónir
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“

„Ég er í dag ekki vitund hrædd við dauðann. Það kom eftir þessa lífsreynslu.“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar

Þetta var uppáhalds skyndibiti Elísabetar drottningar