fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Fókus

Lof mér að falla sló í gegn um helgina – Fjórða stærsta opnun frá upphafi á íslenskri kvikmynd

Einar Þór Sigurðsson
Mánudaginn 10. september 2018 11:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

8.300 manns lögðu leið sína í kvikmyndahús um helgina til að sjá Lof mér að falla. Frumsýning hennar er fjórða stærsta opnun frá upphafi á íslenskri kvikmynd og stærsta frumsýningarhelgi á íslenskri mynd síðan 2016.

Í tilkynningu frá aðstandendum myndarinnar kemur fram að aðeins Mýrin, Bjarnfreðarson og Eiðurinn hafi þénað meira á frumsýningarhelgi.

Lof mér að falla var heimsfrumsýnd á fimmtudagskvöld á kvikmyndahátíðinni í Toronto og voru viðbrögðin góð. Hefur myndin hlotið góða dóma frá gagnrýnendum.

Lof mér að falla segir frá hinni fimmtán ára Magneu (Elín Sif Halldórsdóttir), sem kynnist Stellu (Eyrún Björk Jakobsdóttir), sem er átján ára, og þróar sterkar tilfinningar til hennar. Stella notfærir sér þetta og leiðir Magneu inn í grimman heim sem tekur toll af þeim báðum. Sagan gerist yfir margra ára skeið og gengur út á örlagarík uppgjör, minningar og kaldan veruleika fíkninnar og aðstandenda ungmenna í neyslu.

Baldvin Z, leikstjóri myndarinnar, leikstýrði Vonarstræti sem sló eftirminnilega í gegn og 58,000 gestir sáu árið 2014. Lof mér að falla er að byrja um 30% prósent betur, að því er segir í tilkynningunni, og stefnir að verða aðsóknarmeiri en Vonarstræti.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Hvalur sprakk í tætlur

Nýlegt

Hvalur sprakk í tætlur
Fókus
Fyrir 3 dögum

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“

Bríet kom vinkonu sinni rækilega á óvart með nýju hári – „Lít ég ekki út eins og ódýr hóra?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart
Fókus
Fyrir 5 dögum

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig

Markle hneykslar enn á ný – Stal sviðsljósinu og sagði annarri að færa sig