Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens varpaði fram sprengju á Twitter í gær og sagði allt of algengt í dag að íslensk tónlist væri léleg. Hann sagði að tónlistin væri mikið gerð í heimilistölvum og mátti skilja af honum að það væri miður.
„Djöfull er mikið af tón dæmum að koma út þessa daga vond demó verri textar gert á heima tölvur hljómar allt eins það er vont og það versnar um allt það góða seinna kanski,“ skrifaði Bubbi.
Hann fékk fjölda læka en ekki voru þó allir eins sáttir. Árni Vilhjálmsson, söngvari FM Belfast, skaut fast á Bubba. „Þú ættir kannski að láta prófarkalesa tístin þín áður en þú ferð að drulla yfir aðra. Bara pæling,“ skrifaði Árni.
Bubbi lét þetta þó ekki slá sig út af laginu og sendi Árna einfaldlega hjartamerki. Það var til þess að Árni dró í land. „Æj þú ert samt kóngurinn og átt að gagnrýna. Viðurkenni það,“ skrifaði Árni.
Bubbi sagði í sama þræði að honum þyki þó allt of mikið að rusli í spilun þessa daganna. „Þetta er samt þannig að ruslið er orðið nânast allsráðandi það er ekki nó að geta verið með tölvu því miður,“ skrifaði Bubbi.