Bergur Ebbi Benediktsson, tónlistarmaður, pistlahöfundur og skemmtikraftur, er þakklátur sjónvarps- og útvarpsmanninum Gulla Helga og segir að hann eigi heiður skilinn fyrir að koma hjólum efnahagslífsins af stað eftir hrun.
Bergur fullyrti á Twitter í gærkvöldi að þáttur Gulla, Gulli byggir, hafi átt góðan þátt í að koma efnahagslífinu aftur í gang 3-4 árum eftir hrun.
„Rosalega þægilegt að hefja uppbygginguna á nýjan leik með léttum markaðsdrifnum home improvement þætti – fínt stimulation fyrir auglýsingamarkaðinn og ákveðið boozt fyrir einstaklingsframtakið,“ sagði Bergur sem bætti við að Gulli hefði lyft Grettistaki.
„Það vantaði fyrst og fremst stemningu í samfélagið – og að sjá Gulla í smiðsbuxum með hjólsög, var akkúrat þessi hæfilegi skammtur af stemningu sem þjóð sem hafði verið rassariðin af útrásarvíkingum, þurfti.“
Bergur Ebbi endar pistilinn svo á þessum orðum og heldur lofræðu sinni um Gulla Helga áfram:
„Steingrímur Joð og Jóhanna sáu um að moppa upp mestu ælublettina eftir fylleríið, Gulli sá svo um að parketleggja stofuna á nýjan leik. Vil fá að nýta tækifærið og af einlægni þakka þessum Íslendingum fyrir þeirra framlag til endurreisnarinnar. Peace and love, end of rant.“
fullyrði að þátturinn Gulli Byggir átti góðan þátt í því að koma hjólum efnahagslífsins aftur af stað, þarna 3-4 árum eftir hrun
— Bergur Ebbi (@BergurEbbi) July 9, 2018