fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Foreldrarnir fóru í ÁTVR og keyptu vín fyrir 30 þúsund – Tímdu svo ekki að gefa börnunum bland í poka

Fókus
Föstudaginn 6. júlí 2018 13:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Mamma og pabbi fóru í ÁTVR og keyptu vín og bjór fyrir helgina fyrir næstum þrjátíu þúsund krónur. Þau ætluðu að hafa það huggulegt og einnig bjóða vel völdum vinum í heimsókn og veita vel.“

Þannig hefst dæmisaga sem séra Jóhanna Magnúsdóttir deilir á samskiptamiðlum. Þeir sem lesa lengra ættu að átta sig fljótlega á samhenginu. Jóhanna heldur áfram:

„Börnin þeirra, fjögur stykki, – báðu um bland í poka og snakk til að hafa kósý um helgina og báðu um 1500 krónur samtals, en þá andvörpuðu foreldrarnir og spurðu börnin hvort þau héldu að þau skitu peningum – og því fylgdi sögunni að með þessu áframhaldi hefðu þau ekki efni á að halda húsinu og þá hefðu þau (börnin) nú mikið á samviskunni!!“

Þarna er Jóhanna eins og lesendur hafa nú áttað sig á, að deila á stjórnvöld vegna þeirrar krísu sem upp er komin á Landspítalanum, þar sem um 30 ljósmæður hafa sagt upp störfum þar sem þær eru ósáttar við að launakjör sín. Jóhanna lýkur dæmisögunni á þessum orðum:

„Það er svona sem ríkisstjórn Íslands kemur fram við almenna launþega. Bruðlar í sjálfa sig og „vini“ sína – en kvartar og kveinar yfir launþegunum sem gera í raun eðlilegar kröfur.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Tinna þráir að hitta fjölskyldu sína á Sri Lanka – Þú getur hjálpað henni – Fékk hörmulegar fréttir af blóðmóður sinni

Tinna þráir að hitta fjölskyldu sína á Sri Lanka – Þú getur hjálpað henni – Fékk hörmulegar fréttir af blóðmóður sinni
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu myndina: Katrín gerði það sama og Davíð – Er þetta gert að ráðum almannatengla?

Sjáðu myndina: Katrín gerði það sama og Davíð – Er þetta gert að ráðum almannatengla?
Fókus
Fyrir 3 dögum

Ofurskutlan sem enginn veit hvort sé á föstu eða ekki er með skilaboð til einhleypra kvenna

Ofurskutlan sem enginn veit hvort sé á föstu eða ekki er með skilaboð til einhleypra kvenna
Fókus
Fyrir 3 dögum

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart

Hélt framhjá með tveimur yngri mönnum – Viðbrögð eiginmannsins komu á óvart