Elva Björk Ágústsdóttir, umsjónarkona hlaðvarpsins Poppsálin og sálfræðikennari, skrifar:
Margir kannast eflaust við söguna um glæpamanninn Charles Manson og hópinn sem fylgdi honum, eða Manson-fjölskylduna svokölluðu. Hópurinn, eða költið, komst í heimsfréttir eftir morðið á leikkonunni Sharon Tate árið 1969.
Sharon, eiginkona leikstjórans og framleiðandans Roman Polanski, var ólétt og gengin nær níu mánuði á leið þegar hún var myrt. Manson fjölskyldan drap að minnsta kosti sjö manns og reyndu að drepa fyrrum forseta Bandaríkjana Gerald Ford.
Í nýjasta þætti Poppsálarinnar er fjallað um sögu Charles Manson, hvernig Manson fjölskyldan varð til og tengingu fjölskyldunnar við fræga einstaklinga innan Hollywood.
Poppsálin er poppmenningarlegt hlaðvarp með sálfræðilegu ívafi. Fjallað er um ýmis sálfræðileg málefni sem tengjast poppmenningu sem og áhugaverðar rannsóknir og pælingar innan sálfræðinnar.
Charles Manson átti auðvelt með að laða fólk til sín og virðist hafa verið mjög sjarmerandi. Hann kynntist og hafði áhrif á frægt tónlistarfólk eins og Dennis Wilson úr Beach Boys og Neil Young.
Manson fjölskyldan fór að myndast á meðan Manson sjálfur sat bak við lás og slá, en Charles Manson eyddi meiri hluta ævi sinnar í fangelsi. Í eitt af þeim fáum skiptum sem hann var frjáls maður tók hann þátt í LSD rannsókn á læknastöð. Þar fór hann að upplifa sig sem einhvers konar frelsara eða Jesú Krist og náði að fá aðra þátttakendur LSD tilraunarinnar á sitt band og stækka Manson fjölskylduna. Manson fjölskyldan var því samansafn af LSD neytendum, aðallega ungum konum, heimilislausu fólki og glæpamönnum.
Manson fjölskyldan bjó á tímabili á heimili Dennis Wilson og þar spiluðu þeir tónlist saman og lokkuðu til sín fleiri ungar konur í neyð.
Charles Manson trúði því að heimsendir í einhverri mynd væri í nánd. Hann taldi kynþáttastríð vera í vændum og að þau sem fylgdu honum yrðu óhullt og kæmust lífs af í komandi heimsendi.
Fjöldamorðið sem Manson fjölskyldan framdi árið 1969 átti að vera upphafið að þessu kynþáttastríði og heimsendi.
Í nýjasta þætti Poppsálarinnar er farið yfir sögu fjölskyldunnar og kannað hvaða eiginleika Charles Manson hafði sem ýtti undir myndun fjölskyldunnar. Þeirri spurning er velt upp hvort Charles Manson hafi verið andlega veikur, hvort uppeldið hefði haft áhrif á líf Manson og hvort hippamenningin og LSD neyslan hafi gert útslagið.
Hægt er að nálgast þáttinn um Manson fjölskylduna hér: