Engir eru jafn stéttvísir og forstjórar stórfyrirtækja.
Stéttavindund þeirra birtist í mjög sterkri tilheigingu þeirra til að hækka laun sín og þeirra sem eru í kringum þá.
Forstjórar sitja gjarnan í stjórnum annarra fyrirtækja – og eru þá látnir samþykkja laun annarra forstjóra. Sem síðan samþykkja launin þeirra.
Með þessum hætti getur verið ótrúlegur stígandi í forstjóralaunum á stuttum tíma.
Nú sjáum við að vöxtur er aftur hlaupinn í forstjóralaun á Íslandi – langt umfram það sem gerist á almennum vinnumarkaði.
Þarna sjá forstjórar um sig og sína – en að auki er þetta til marks um einkennilega efnahagsbólu sem er að verða til í landinu mitt inni í höftunum.