Mikið er skrafað við kaffivélar landsins um að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hafi nú aukið völd sín innan stjórnarinnar til muna með því að gera ekki kröfu um að stjórnarsamstarfi meirihlutans verði slitið í kjölfar Ásmundarsalarheimsóknar Bjarna Ben fjármálaráðherra.
Viðbrögð Katrínar við meintum sóttvarnarbrotum Bjarna Ben sem nú eru í rannsókn voru mildari en búist var við í byrjun. Gerir hún ekki kröfu um afsögn hans og sagði í sjónvarpsviðtali á RÚV að hún hefði orðið fyrir vonbrigðum en að atvikið væri ekki óafsakanlegt.
„Ég geri ekki kröfu um afsögn nei, en auðvitað er þetta mál sem skaðar traustið á milli stjórnarflokkanna í þeim stóru verkefnum sem við stöndum í og auðvitað hef ég áhyggjur af því,“ sagði Katrín í umræddu viðtali.
Vilja þeir sem þekkja til meina að Katrín sjái sér leik á borði með því að kalla ekki eftir afsögn Bjarna. Slík vinahót gætu rýmkað til fyrir Hálendisþjóðgarðsumræðu Vinstri grænna og stíflað söluna á Íslandsbanka.