Orðið á götunni er að ekkert geti komið í veg fyrir að nýr forstjóri Vegagerðarinnar, Bergþóra Þorkelsdóttir, muni fara óhefðbundnar leiðir á fyrstu dögum í nýju starfi. Ráðning Bergþóru var umdeild og reynt var að leggja stein í götu hennar þegar fundið var að reynslu hennar og menntun, meðan ráðherrar Framsóknarflokksins vegsömuðu hana í hvívetna, ekki síst fyrir að vera fyrsta konan sem gegndi starfinu. Ekki slæmt veganesti það.
Hvort gatan reynist Bergþóru greið héðan af skal þó ósagt látið. Vegferð hennar hófst í hálfgerðri torfæru og má því til sanns vegar færa að hún þurfi að byggja brýr til þess að sanna sig í starfi á fyrstu dögum þess.
Orðið á götunni er að sá leiðangur stefni í öngstræti. Bergþóra átti að taka við nýju starfi þann 1. ágúst næstkomandi, en fólk á förnum vegi segir að Bergþóra muni ekki hefja störf á tilsettum tíma þar sem hún ætli að fara í nokkurra vikna hestaferð, en hún ku vera mikil hestakona. Einhverjir hafa haft orð á því að Bergþóra sé að fara villu vegar með þessari ákvörðun sinni og eigi heldur að halda sig á beinu brautinni með því að hefja störf á umræddum tíma. Nú eða fara milliveginn og stytta reiðtúrinn, eða fresta honum. Henni séu í raun allir vegir færir ennþá, þar sem vegir liggi til allra átta í málinu, enda enn nokkrir dagar þangað til að 1. ágúst renni upp og nægur tími til ákvarðana. Má því segja að Bergþóra sé á einskonar krossgötum, en þar sem er vilji, þar er vegur.