fbpx
Miðvikudagur 15.apríl 2026
Eyjan

Davíð Þór Björgvinsson: Ef NATO fer í skrúfuna er varnarsamningurinn við Bandaríkin brostinn

Eyjan
Sunnudaginn 5. apríl 2026 11:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Varnarsamningurinn við Bandaríkin felur í sér að Bandaríkin taka að sér að verja Ísland í umboði NATO. Af því leiðir að ef NATO líður undir lok eru allar lagalegar forsendur varnarsamningsins brostnar og hann því algerlega í lausu lofti. Davíð Þór Björgvinsson, forseti lagadeildar HA og fyrrverandi dómari við Mannréttindadómstól Evrópu, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hér er hægt að hlusta á brot úr þættinum:

Davíð Þór Björgvinsson - 4
play-sharp-fill

Davíð Þór Björgvinsson - 4

Þetta er dálítið tvíeggjað sem Bandaríkjaforseti er að gera. Ég held að flestir, sem ég hef heyrt í og lesið eftir, séu á þeirri skoðun að það sé bara ágætt að Evrópa sé að taka meiri ábyrgð á sínum vörnum. Það sé óeðlilegt að það sé reitt sig svona mikið á stórveldið í vestri. En á sama tíma þá hafa Bandaríkin, virðast þau vera orðin dálítið ófyrirsjáanleg og erfitt að átta sig á þeim. Og til dæmis ef við tökum Grænland og Kanada og svona þá orðræðu sem forsetinn hefur haft um það, þetta hefði náttúrulega, undir hvaða öðrum forseta sem er, þótt bara farsakennt leikrit.

„Já, þá erum við komin að þessu með varnarsamninginn og NATO-aðildina sem við höfum alltaf litið svo á að væri okkar meginstoð í varnarmálum. Maður er alinn upp við það alveg frá blautu barnsbeini að þetta sé svona hryggjarstykkið í öryggi landsins, bæði aðildin að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin. Ef maður skoðar bæði NATO-samninginn og svo Keflavíkursamninginn eða varnarsamninginn, þá er hugsunin þarna að Bandaríkjamenn annist varnir Íslands í umboði á vegum NATO. Það er sem sagt, fyrir hönd NATO, þá taka Bandaríkin að sér varnir Íslands og það er alveg eðlilegt að menn velti þá fyrir sér að þessar yfirlýsingar Trump um Atlantshafsbandalagið. Og þetta gerist alltaf nægilega, það eru nokkrir dagar síðan. Þeir vilja ekki hjálpa honum þarna í Íran, þá verður maður bara að skoða það hvort að þetta NATO, hvað eigum við að gera við það? Hvers virði er það þá fyrir Bandaríkin?

Ef NATO fer í skrúfuna, formlega séð, þá er varnarsamningurinn líka farinn í skrúfuna. Miðað við svona hvernig frá þessu er gengið lagalega. En. vitaskuld ræðst þetta bara af hagsmunum Bandaríkjanna, það er að segja hvað þeir telja sér hagstætt. Þeir geta alveg tekið að sér að annast varnir fyrir Ísland ef það er það sem þeir telja að henti þeirra hagsmunum, Þótt NATO veikist. En ég er svo sem ekki neinn sérfræðingur í þessum varnarmálum. Ég horfi bara á söguna eftir stríðið og hvernig þetta hefur byggst upp og ég ætla bara ekkert að trúa því að Bandaríkjamenn fari þessa leið að láta NATO fara bara lönd og leið. Það kann að vera rangt mat hjá mér ef maður horfir bara á svona öryggishagsmuni Bandaríkjanna svona glóbalt.

Þeir reyndar fóru með herinn héðan vegna þess að þeir töldu ekki mikilvægt að vera hér með herafla. Það kann að tengjast líka því sem að við ræddum aðeins áður en við kveiktum á græjunum hérna, að er að breytast og þetta er kannski meira í skýjunum og það er ekki sama þörf fyrir hermenn sem maður sér fyrir að stundi landhernað og það séu aðrir þættir. Þeir byggja upp aðstöðu hérna til þess að geta fylgst með flugumferð og skipum og langdrægum flugskeytum sem kunna að berast frá fjarlægum heimshornum yfir Atlantshafið og svo framvegis, þannig að þetta er allt að breytast. En já, það sem er kannski svona niðurstaða mín af þessu, ég ætla bara ekkert að trú því að Bandaríkin ætli að yfirgefa þessi gildi sem NATO og þessi varnarsamningur eru byggð á. Þó það sé svona, hvað eigum við að segja? Já, það sé óróleiki um þessar mundir.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Ekki lengur hægt að þagga niður í konum
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl

Sigmundur Ernir skrifar: Útlendingahatrið flokkar fólk eins og rusl
Eyjan
Fyrir 1 viku

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“

Fyrrum þingmaður segir engan mun á Sjálfstæðisflokknum og Miðflokknum – „Þetta er hættuleg þróun sem ungir karlmenn falla fyrir um allt land“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?

Thomas Möller skrifar: Búa tvær þjóðir í landinu okkar?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir

Guðfinna Jóh. Guðmundsdóttir skrifar: Airbnb íbúðir
Eyjan
Fyrir 1 viku

Kolbrún Bergþórsdóttir komin á DV

Kolbrún Bergþórsdóttir komin á DV
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið: Línur teknar að mótast sex vikum fyrir kosningar – Samfylkingin líklegur sigurvegari kosninganna

Orðið: Línur teknar að mótast sex vikum fyrir kosningar – Samfylkingin líklegur sigurvegari kosninganna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Davíð Þór Björgvinsson: Þörf á betri útskýringum – getur viðræðum ekki lokið öðruvísi en með samningi sem lagður yrði fyrir þjóðina?

Davíð Þór Björgvinsson: Þörf á betri útskýringum – getur viðræðum ekki lokið öðruvísi en með samningi sem lagður yrði fyrir þjóðina?
Hide picture