
Það er okkur á DV sönn ánægja að tilkynna að Kolbrún Bergþórsdóttir er orðin pistlahöfundur á Eyjunni á DV. Kolbrún hefur verið einn beittasti samfélags- og menningarrýnir á Íslandi undanfarin ár. Skrif hennar hafa jafnan vakið athygli.
Kolbrún er öllum óháð og beinir spjótum sínum í allar áttir. Hún er hlutlaus og sjálfstæð í sinni gagnrýni á samfélagið. Mannlegi þátturinn er henni mikilvægur. Réttlætiskenndin er henni sterk. Það er alltaf þörf fyrir raddir sem þora. Kolbrún er rödd sem þorir og DV fagnar komu Kolbrúnar á DV.
Fyrsti pistill Kolbrúnar birtist kl. 12 á morgun, páskadag. Þar reifar hún Evrópumálin.