
Tíminn fram að sveitarstjórnarkosningum verður fljótur að líða. Sex spennandi vikur fram undan. Flest bendir til þess að Samfylkingin verði víða sigurvegari kosninganna. Mestu máli skiptir hvernig forysta flokkanna er skipuð í einstökum sveitarfélögum og svo staðan á landsvísu. Í stórri könnun Gallups sem birt var um helgina kemur fram að Samfylkingin heldur 30 prósenta fylgi á landsvísu, þar sem staða flokksins er langsterkust í þéttbýlinu á höfuðborgarsvæðinu þar sem stóru sveitarfélögin eru. Ekki þarf að búast við miklum árangri hjá stjórnarandstöðuflokkunum á Alþingi, nema Miðflokknum sem mælist vel um þessar mundir. Framsókn fengi engan þingmann kjörinn í kosningum ef fylgi flokksins yrði eins og Gallup mælir nú eftir að flokkurinn hefur skipt um formann til að ná auknum slagkrafti. Nýi formaðurinn hefur gert baráttuna gegn ESB aðild að helsta baráttumáli flokksins. Formannsskiptin hafa haft þveröfug áhrif og fylgið dalar áfram.
Íbúafjöldi stærstu kjördæmanna er sem hér segir: Reykjavík 140 þúsund, Kópavogur 40 þúsund, Hafnarfjörður 32 þúsund, Reykjanesbær 23 þúsund, Garðabær 21 þúsund, Akureyri 20 þúsund, Mosfellsbær 14 þúsund. Árborg 13 þúsund. Íbúafjöldi þessara átta stærstu sveitarfélaga landsins er samtals 303 þúsund af um 380 þúsund íbúum landsins eða 80 prósent. Úrslit kosninga í framantöldum sveitarfélögum skiptir því höfuðmáli þegar á heildina er litið.
Orðið á götunni er að kosningarnar í Reykjavík geti orðið mjög líflegar. Núverandi borgarfulltrúar allra flokka njóta ekki mikils álits borgarbúa, ef marka má kannanir sem gerðar hafa verið. Þeir mælast með mjög lítið traust. Flokkar sem tefla fram nýjum og áhugaverðum oddvitum munu trúlega njóta góðs af því. Það á ekki síst við um Samfylkinguna og Viðreisn. Einnig teflir Miðflokkurinn fram alveg nýjum frambjóðendum enda hefur flokkurinn engan borgarfulltrúa núna. Samkvæmt skoðanakönnun sem Maskína gerði fyrir DV og birt var um síðustu helgi mælist Samfylkingin stærst. Það lítur út fyrir að Sjálfstæðisflokkurinn muni berjast við 20 prósenta múrinn sem er allt annað en flokksmenn höfðu vonast eftir. Niðurstaða kosninganna gæti orðið í líkingu við að Samfylkingin fengi sex borgarfulltrúa kjörna, Sjálfstæðisflokkurinn fimm, Viðreisn fjóra, Vinstrið þrjá og aðrir minna. Þá mætti gera ráð fyrir því að Samfylkingin gæti myndað meirihluta og valið sér samstarfsflokka.
Maskína gerði einnig stóra könnun fyrir DV um fylgi flokka í Hafnarfirði. Niðurstöður hennar voru merkilegar og sýndu að núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknar er kolfallinn. Samkvæmt þessari könnun tapaði Framsókn öðrum sinna bæjarfulltrúa, Samfylking og Sjálfstæðisflokkur töpuðu einnig einum fulltrúa hvor en Viðreisn bætti við sig tveimur. Samkvæmt þessari könnun verður myndaður nýr bæjarstjórnarmeirihluti í Hafnarfirði að loknum kosningum.
Orðið á götunni er að Sjálfstæðismenn í Kópavogi telji stöðu flokksins þar góða. Í síðustu kosningum fékk flokkurinn 33 prósent atkvæða og fjóra menn kjörna af ellefu bæjarfulltrúum og myndaði meirihluta með Framsókn sem fékk tvo menn kjörna. Ekkert bendir til þess að Framsókn fái nema einn mann kjörinn að þessu sinni. Í kosningunum 2022 fékk Samfylkingin einungis einn mann kjörinn. Miðað við stöðu flokksins á landsvísu, einkum á höfuðborgarsvæðinu, og nýja forystu flokksins í Kópavogi má ætla að Samfylkingin muni keppa við Sjálfstæðisflokkinn um forystusætið í Kópavogi. Annar hvor þessara flokka mun trúlega mynda nýjan meirihluta í bænum að loknum kosningum.
Mosfellsbær og Reykjanesbær eru þau sveitarfélög þar sem Framsóknarflokkurinn fékk mikið fylgi í síðustu kosningum. Miðað við stöðu flokksins núna má ætla að fylgið færist annað og því mun hafa mikið að segja hvert fylgi flokksins leitar nú. Síðast fékk Framsókn fjóra menn kjörna í Mosfellsbæ og 31 prósent fylgi og 23 prósent fylgi í Reykjanesbæ og þrjá menn kjörna af ellefu í báðum tilvikum. Ómögulegt er að spá fyrir um hvernig fylgi muni þróast í þessum sveitarfélögum en miðað við stöðuna á landsvísu er viðbúið að Samfylkingin bæti stöðu sína mikið á báðum stöðum.
Í Garðabæ og í Árborg var útkoma Sjálfstæðisflokksins sérlega góð í síðustu kosningum. Í Garðabæ fékk flokkurinn 49 prósent atkvæða og 46 prósent fylgi í Árborg. Á báðum stöðum er flokkurinn með hreinan meirihluta bæjarfulltrúa. Orðið á götunni er að miðað við stöðu flokksins á landsvísu megi gera ráð fyrir því að það verði erfitt fyrir hann að halda svo góðri stöðu í þessum sveitarfélögum að þessu sinni. Meirihlutar gætu fallið. En hinu er ekki að neita að hvergi á Íslandi er staða Sjálfstæðisflokksins eins sterk og varanleg og í Garðabæ.
Á Akureyri mynda nú þrjú framboð meirihluta í bæjarstjórn: L-listi Viðreisnar og óháðra með þrjá bæjarfulltrúa, Sjálfstæðisflokkur með tvo og Miðflokkurinn með einn fulltrúa. Síðast fékk L-listi 19 prósent fylgi, Sjálfstæðisflokkurinn 18 prósent og Framsókn 17 prósent. Miðflokkur fékk þá einungis átta prósent og Samfylkingin 12 prósent fylgi. Ætla má að Samfylkingin og Miðflokkur bæti miklu við sig á Akureyri í komandi kosningum, ekki síst vegna sterkrar stöðu flokkanna á landsvísu. Staðan á Akureyri er flókin að þessu sinni og ekki þyrfti að koma á óvart þó að það kæmi í hlut Samfylkingarinnar að leiða næsta bæjarstjórnarmeirihluta eftir sigur í kosningunum.
Orðið á götunni er að verði úrslit kosninganna í maí í líkingu við þetta þá muni enn aukast vandræði Sjálfstæðismanna samhliða því að Samfylkingin styrki stöðu sína víðast hvar í þessum átta stærstu sveitarfélögum landsins þar sem 80 prósent landsmanna búa.