Eyjan

Orðið á götunni: Ari og Mogginn á fullu í upplýsingaóreiðu

Mynd

Ari Edwald, borgarfulltrúi Miðflokksins, fer mikinn á forsíðu Morgunblaðsins í dag og fárast yfir því að stöðugildum hafi fjölgað um 26% hjá Reykjavíkurborg á tíu árum á sama tíma og íbúum borgarinnar hafi fjölgað um 14% og séu 139 þúsund. Blaðið segist hafa leitað viðbragða Ara við því að hjá Reykjavíkurborg starfi 11,3% þeirra sem eru á aldrinum 18-70 ára. Þá er því haldið fram að þetta hlutfall sé hærra en hjá öðrum sveitarfélögum.

Orðið á götunni er að mikið skorti á að samanburður og talnameðferð Morgunblaðsins og Ara standist skoðun. Í fyrsta lagi séu notaðar fólksfjöldatölur frá 1. janúar 2025, eða tæplega tveggja ára gamlar tölur en íbúar borgarinnar munu hafa verið 147.625 þann 1. júní sl. Þetta breytir samanburðinum verulega vegna þess að íbúum hefur fjölgað um ríflega 21% á þessum en ekki 14%.

Þá virðist samanburður við önnur sveitarfélög bera saman epli og appelsínur, ef svo mætti komst að orði, og samanlagður starfafjöldi A- og B-hluta Reykjavíkur borinn saman við starfafjölda A-hluta nágrannasveitarfélaganna.

Orðið á götunni er að hvorki Morgunblaðið né Ari taki tillit til þess að verkefni Reykjavíkurborgar hafa aukist mikið og breyst á síðustu árum, sem kunni að skýra út fjölgun stöðugilda. Einnig er athyglisvert að ekki er greint frá fjölgun stöðugilda hjá nágrannasveitarfélögunum, sem tínd eru til samanburðar, á sama árabili.

Þjónusta við fatlað fólk var færð frá ríkinu til sveitarfélaganna árið 2011. Á síðustu árum hefur löggjafinn ítrekað aukið umfang þessarar þjónustu með lagasetningu og á síðustu árum hefur ríkið fært tekjustofna til sveitarfélaganna sem nemur 12-14 milljörðum árlega. Bróðurparturinn af því fjármagni rennur til Reykjavíkur, að langmestu leyti í að fjármagna ný störf vegna aukinnar þjónustu, m.a. notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA).

Þetta er aðeins eitt dæmi. Fleiri dæmi má nefna um ný lögbundin verkefni varðandi farsæld barna, aukið umfang og nýjar skyldur vegna grunnskóla og skólaþjónustu.

Í raun má segja að aukið starfsmannahald sveitarfélaga og þar með Reykjavíkurborgar sé í grunninn þríþætt:

  1. Formleg tilfærsl verkefna frá ríki til sveitarfélaga, þar sem ábyrgð á þjónustu eða framkvæmd breytist.
  2. Ný lögbundin verkefni, þar sem Alþingi setur sveitarfélögum nýjar skyldur eða útvíkkar þær sem fyrir eru.
  3. Aukið umfang eldri verkefna, til dæmis vegna fjölgunar þjónustuþega, aukinnar sérþarfar, húsnæðisvanda eða meiri krafna um þjónustu og eftirlit.

Morgunblaðið og Ari líta með öllu fram hjá þessum þáttum og gefa í skyn að fjölgun stöðugilda hjá Reykjavík skeri sig úr þegar horft er til sveitarfélaga almennt og stafi af óstjórn og útgjaldaþenslu meirihluta í borgarstjórn undir forystu Samfylkingarinnar.

Orðið á götunni er Morgunblaðið og Ari stuðli með þessum villandi og ranga samanburði vísvitandi að upplýsingaóreiðu.