Eyjan

Þorsteinn Pálsson skrifar: Ekkert bólar á íslensku landbúnaðarleiðinni

Mynd
Mynd

Afstaða bænda var snar þáttur í þeirri ákvörðun, sem fólst í niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, að láta Ísland standa án pólitískrar baktryggingar í samstarfi Evrópuþjóða um vestræn gildi og frjáls viðskipti, sem efnahagur þjóðarinnar á allt undir.

Um leið höfnuðu bændur aðild að einhverju umfangsmesta styrkjakerfi í landbúnaði sem þekkist og stuðningskerfi við atvinnuháttabreytingar í veikum byggðum. Boðskapurinn var: Við gerum þetta sjálf.

Í þjóðaratkvæðagreiðslunni neituðu bændur jafnframt að upplýsa þjóðina, sem borgar landbúnaðarstyrkina, hvert þeir stefna. Hver er íslenska leiðin utan við reglur markaðsbúskaparins og án alþjóðlegrar samvinnu og aðstoðar? Hvers vegna fær þjóðin ekki að vita neitt um efni hennar?

Fyrir nokkrum vikum skaut upp gömlu deilumáli um tollfrelsi eða tollvernd á íblönduðum ostum, sem notaðir eru til pítsugerðar. Það er gott dæmi um að hvergi örlar á heildar stefnumörkun umfram það að segja nei. Engu er líkara en alíslenska leiðin sé bara fólgin í þessu eina orði: Nei?

Snoturt hjartalag í framkvæmd

Enginn vafi leikur á því að bændur eiga greiðari leið að hjörtum landsmanna en aðrar atvinnugreinar. Hjartalagið snýr fyrst og fremst að þeim sem framleiða lambakjöt, mjólk og grænmeti.

Í pólitískri framkvæmd snýst þetta um að fara þrjár hjáleiðir frá meginleið markaðsbúskaparins, sem er undirstaða verðmætasköpunar þjóðarbúsins, velmegunar almennings og velferðarkerfisins.

  • Ein hjáleiðin snýst um að almenningur og fyrirtækin í landinu eru ásátt um að ríkissjóður megi nota skattpeninga þeirra til umtalsverðra landbúnaðarstyrkjastyrkja fremur en til dæmis samgöngubóta eða heilbrigðisþjónustu.
  • Önnur hjáleiðin snýst um sérstakan skatt á neytendur í formi tollverndar. Sá skattur er svo hár að hann jafngildir þeirri skattheimtu, sem fer í beinu styrkina.
  • Þriðja hjáleiðin er umdeildari en snýst um að viðurkenna að í einhverjum mæli megi afurðastöðvar landbúnaðarins ganga á svig við þær samkeppnisreglur, sem gilda um alla aðra og eru helsta trygging neytenda fyrir aðhaldi í verðlagsmálum.

Þegar á hinn bóginn kemur að því að bændur krefjast þess að almenningur viðurkenni sömu hjáleiðir fyrir iðnaðarframleiðslu á hvítu kjöti, sem byggir nær alfarið á innfluttu fóðri og á engan þátt í byggðafestu, er verið að misnota hjartalagið.

Tómarúm í umræðunni um nýjan veruleika á landsbyggðinni

Áður fyrr var litið svo á að sjávarútvegur og landbúnaður ættu að halda uppi störfum á landsbyggðinni án tillits til þjóðhagslegrar hagkvæmni.

Með framseljanlega aflamarkskerfinu heyrði þessi hugsun sögunni til í sjávarútvegi. Þeirri aðlögun fylgdi víða talsverður sársauki. Ávinningurinn fólst í færri en miklu öflugri sjávarútvegsfyrirtækjum og færri störfum. Fáir vilja hverfa aftur til gamla tímans.

En það hefur líka orðið hagræðing í landbúnaði. Bændum hefur fækkað gífurlega þótt það hafi ekki verið skilgreint markmið. Og undanþága frá samkeppnislögum fækkar afurðastöðvum og störfum við vinnslu landbúnaðarafurða, sem að verulegu leyti byggist á innfluttu vinnuafli.

Vaxtarbroddur í fjölgun starfa á landsbyggðinni liggur því hvorki í sjávarútvegi né landbúnaði í framtíðinni þótt báðar greinar séu enn hluti af byggðafestu. Landsbyggðin á því mest undir því að aðrar atvinnugreinar þroskist þar. Velmegun fólksins byggist svo á því að þær séu sjálfbærar.

Þegar bændur réðu þjóðinni að segja nei voru þeir að þrengja þá möguleika, sem Ísland gæti átt í alþjóðlegu samstarfi til að fylla upp í þetta tómarúm. Það er ekki tilviljun að sterkustu bæjarfélögin á landsbyggðinni eru þau, sem byggja á rekstri fyrirtækja sem taka lán í vaxtaumhverfi Seðlabanka Evrópu og kalla hvorki eftir hjáleiðum né styrkjum.

Mögulegt fyrsta skref inn í nýjan tíma

Forysta bænda nálgast viðfangsefnin eins og svefngengill, sem er ómeðvitaður um umhverfi sitt. Það gengur hins vegar ekki til lengdar að láta landbúnaðinn fremur en aðra þætti í þjóðarbúskapnum ráðast af þess konar aðstæðum.

Mikilvægt er því að stjórnvöld taki frumkvæði og móti landbúnaðarstefnu í almannaþágu. Það þarf jafnframt að gerast í ljósi þess almenna og víðtæka skilnings, sem landsmenn hafa á íslenskri framleiðslu lambakjöts, mjólkur og grænmetis.

Þrætueplið um tollflokkun á innfluttum íblönduðum osti til pítsugerðar má nota sem táknrænt fyrsta skref inn í nýjan tíma. Ef það rúmast innan alþjóðlegra  skuldbindinga gæti málamiðlunin falist í því að halda ostatollverndinni um leið og ákveðin yrði áfangaskipt aðlögun að afnámi tollverndar fyrir iðnaðarframleiðslu á hvítu kjöti.

Málamiðlun um skýrt afmarkaða framleiðslu

Einhvers staðar þarf að byrja á heildstæðri stefnumörkun.

Málamiðlun af þessu tagi myndi byggja á þeim skilningi að hjáleiðir um meginreglur markaðsbúskaparins eigi aðeins að ná til þeirra hefðbundnu búgreina, sem ekki geta staðist kröfur markaðarins en þjóðin vill eigi að síður slá skjaldborg um á landsbyggðinni.

Með öðrum orðum: Bændur yrðu teknir fram fyrir neytendur þegar kemur að mjólkurframleiðslu. En þegar kemur að iðnaðarframleiðslu á hvítu kjöti víki sérhagsmunir fárra fyrir hagsmunum fjöldans.