Hugmyndin um vestrænt lýðræði er falleg og því miður dálítið barnaleg. Við opnum kjörstaði, teljum atkvæði, treystum á fjölmiðla og gerum ráð fyrir að þeir sem taka þátt í stjórnmálabaráttunni spili allir eftir reglum. Ekki bara það, heldur reiknum við með því að allir spili eftir sömu reglum. Svo kemur bara í ljós að sumir láta tilganginn helga meðalið og beita öllum mögulegum og ómögulegum brögðum og brellum til að hafa betur. Svo eru það þeir sem hafa engan áhuga á leiknum í sjálfu sér. Þeirra markmið er að kveikja í vellinum.
Rússar hafa undanfarinn áratug sýnt að þeir kunna að nýta sér veikleika lýðræðisins. Ekki endilega með skriðdrekum eða hermönnum heldur með tölvuþrjótum, falsfréttum, fölsuðum samfélagsmiðlareikningum og áróðri sem er sérsniðinn að gömlum og nýjum ágreiningi Vesturlandabúa.
Bandarísku forsetakosningarnar 2016 mörkuðu tímamót. Rússneskir leyniþjónustuaðilar brutust inn í tölvukerfi Demókrataflokksins og stolnum gögnum var komið í dreifingu. Óháðar rannsóknir sýndu fram á að Rússar höfðu gert skipulagða tilraun til að hafa áhrif á kosningarnar. Ekki var sýnt fram á að atkvæðatalningunni hefði verið breytt. Til þess þurfti ekki heldur að koma: Hægt er að grafa undan trausti á lýðræðinu án þess að snerta einn einasta kjörkassa.
Orðið á götunni er að frá 2016 hafi sama leikrit verið sett á svið í ýmsum útgáfum. Í Frakklandi var gögnum úr kosningabaráttu Emmanuel Macron lekið rétt fyrir forsetakosningarnar 2017. Í Moldóvu hafa netmiðlar tengdir Rússlandi beitt falsfréttum og skipulögðum upplýsingaherferðum til að grafa undan stuðningi við Evrópusambandið. Í Rúmeníu vöknuðu 2024 grunsemdir um svo alvarleg utanaðkomandi afskipti að forsetakosningarnar voru felldar úr gildi. Í Þýskalandi, Póllandi og Tékklandi eru staðfest dæmi um að Rússar hafi reynt að hafa afskipti af kosningum og niðurstöður þeirra.
Mikil afskipti Rússa af BREXIT-kosningunni í Bretlandi 2016 fóru ekki fram hjá neinum. Rússar hafa mikinn hag af því að veikja Evrópusambandið sem mest þeir geta.
Skýrsla ESB frá því í mars 2026 lýsir kerfisbundnum afskiptum Rússa af innanríkismálum margra Evrópuríkja: Byrjað er á að grafa undan trúverðugleika stjórnmálaleiðtoga, síðan er samfélagslegur ágreiningur magnaður upp og loks er reynt að gera sjálfar kosningarnar tortryggilegar.
Snilldin, ef snilld skyldi kalla, felst í því að Rússar þurfa ekki að búa til ágreininginn. Í rauninni þurfa þeir bara að hella bensíni á eld sem þegar logar. Við sjáum sjálf um að rífast. Rússarnir sjá um að magna rifrildið.
Orðið á götunni er að lýðræðið verði ekki sterkara með því að banna allar óþægilegar skoðanir eða afgreiða alla andstæðinga sem útsendara Moskvu. Ef við gerum það erum við algerlega farin að spila eftir reglunum sem Rússar setja.
Vörnin lýðræðisins felst í traustum fjölmiðlum, gagnsæi, upplýstum kjósendum og stofnunum sem geta sannað það sem þær halda fram. Ógnin stafar af falsfréttum og innri sundrungu.
Pútín þarf ekkert að stjórna Vesturlöndum. Honum nægir einfaldlega að Vesturlandabúar hætti að treysta sjálfum sér.
Rússar hafa algerlega lagt sitt af mörkum til að grafa undan vestrænu lýðræði. Þeir hafa líkast til haft óeðlileg afskipti af öllum kosningum á Vesturlöndum síðastliðin áratug og sennilega lengur. Orðið á götunni er að það séu nytsamlegir sakleysingjar hér á landi sem halda að hér á Íslandi hafi Rússar aldrei haft afskipti af neinu, sama hvað þeir hafa gert erlendis. Mikill er barnaskapur þeirra sem halda að Rússland hafi ekki verið í liði með Ólafi Ragnari Grímssyni, Halldóri Benjamín Þorbergssyni, Guðrúnu Hafsteinsdóttur og öðrum þeim sem stóðu fyrir „Áfram Ísland“ hreyfingunni og vildu ekki leyfa Íslendingum að sjá hvað fælist í aðild að ESB.
Orðið á götunni er að Ísland væri þá eina landið á vesturhveli jarðar sem Rússar hafa engan áhuga á. Trúlegt eða hitt þó heldur. Það er hins vegar ekki víst að allir geri sér grein fyrir því með hvaða liði þeir eru raunverulega að spila.