Orðið á götunni er að kennarar og skólastjórnendur fari offari gegn Ingu Sæland menntamálaráðherra og löngu tímabærra áforma hennar um að koma skikki á einkunnagjöf og gera hana skiljanlega og gegnsæja. Hér sé beinlínis um einelti að ræða.
Inn þeirra sem hneykslast yfir framgöngu kennara er Úlfar Bragason, prófessor emeritus við Árnastofnun, sem birti um helgina færslu á Facebook. Þar skrifar hann: „En ég man aldrei eftir að KENNARAR OG KENNARAFORYSTAN HAFI LAGT RÁÐHERRA. Í EINELTI EINS OG NÚ. Ef kennarar beita einelti, er þá furða að nemendur þeirri geri það?
Það er unnt að vera gagnrýninn í skólayfirvöld - en sanngirni og umræða er nú það sem er eðlileg framganga þeirra sem ætla sér að vera til fyrirmyndar börnum og ungmennum.“
Orðið á götunni er að mörgum sé líkt innanbrjósts og Úlfari.
Forysta Kennarasambandsins samanstendur af níu manns. Allir eru þeir í starfi hjá sambandinu, allir á svimandi háu kaupi og formaðurinn með um 2,5 milljónir á mánuði samkvæmt tekjublaði
Aðildarfélögin eru sjö, varaformaður og formaður eru kosnir og sjö formenn undirfélaga mynda stjórn og allir eru þeir í fullu starfi, fá stéttarfélög hafa alla stjórnarmenn á fullum launum. Minnir þetta óneitanlega á Sovét fyrri tíma.
Þessu til viðbótar eru nærri 30 aðrir starfsmenn sem sinna hagsmunagæslu fyrir félaga sína. Það eru sem sagt nærri 40 starfsmenn á skrifstofunni en auk þess fá félagar greitt fyrir setu í margs konar setu í stjórnum og ráðum sem eru mýmörg. Hver kennari borgar um 1,4 prósent af öllum laun inn í félagið, gríðarlega hátt félagsgjald. Gríðarlega hátt, svo borgar ríkið framlag í sjúkra- og orlofssjóði félagsins. Kennarasambandið er því ekki á nástrái. Það á auðvelt með að pönkast í ráðuneyti menntamála en þar starfa rúmlega fimmtíu manns að fjölbreyttum verkefnum sem snúa að barna og menntamálum.
Orðið á götunni er að Kennarasambandið vilji stjórna mennta- og skólamálum og uni því ekki að hér á landi eru lýðræðislega kjörin stjórnvöld með umboð frá kjósendum til að stýra þeim málum. Hagsmunagæslan er jafnvel grímulausari hjá Kennarasambandinu en bændaforystunni. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi ná engan veginn sama dampi í sinni stjórnsemi. Það er spurning hvort Kennarasambandið ætti ekki að einbeita sér að kennslu. Þar má margt bæta. Þeirra er ekki að stjórna
Orðið á götunni er að það sé verulegt áhyggjuefni að fólkinu sem er falið að kenna börnunum okkar og leika veigamikið hlutverk í því að búa þau sem best út í lífið skuli hrjósa hugur við og finnast það óyfirstíganlegt verkefni að innleiða á heilum vetri einföldun á einkunnagjöf sem gerir einkunnir gegnsærri og skýrari en það fyrirkomulag sem verið er að hverfa frá. Þorri foreldra styður það að einkunnir séu gefnar í tölum.
Orðið á götunni spyr hvað næst? Mun forysta Kennarasambandsins næst gera kröfu um að einkunnir á Tripadvisor verði í bókstöfum eða jafnvel í mismunandi litakóðum? Kennarar eru komnir langt yfir strikið fyrir löngu og framganga þeirra gegn Ingu Sæland ber öll merki eineltis. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft. Synd að PISA skuli ekki mæli færni í eineltistilburðum. Þar virðast íslensk skólabörn fá meiri sýnikennslu en í námsgreinum.
Orðið á götunni er að líkast til endurspegli framganga forystunnar, núverandi og fyrrverandi, ekki vinnubrögð kennara almennt í skólastofunni. Kennsla er nefnilega mikilvægt starf fyrir börnin okkar og framtíðarhag þjóðarinnar.