Ef marka má Eyrbyggja sögu kemur Þórólfur Mostrarskegg hingað út réttum áratug á eftir Ingólfi Arnarsyni. Þórólfur siglir inn Breiðafjörð og gefur honum nafn. Öndvegissúlur hans voru prýddar Þórsmyndum og fundust reknar á land á nesi því sem nefnt var Þórsnes. Yfir þingstaðnum á nesinu hvíldi svo mikil helgi að menn urðu að fara út í Dritsker til að ganga örna sinna. Á þingstaðnum var „Þórssteinn“ en í Eyrbyggju segir að þar hafi menn verið „dæmdir til blóts og brotnir um, er til blóta váru hafðir“. Þetta hefur verið tekið til marks um að dauðarefsingar hafi verið framdar í heiðni sem eins konar fórnarathafnir.
Það er ekki nema von að þessi frásögn Eyrbyggju hafi valdið mönnum heilabrotum. Hinn mikli þýski réttarsögufræðingur, Konrad Maurer, áleit að fórnarmenn hefðu verið hryggbrotnir ellegar hálsbrotnir á Þórssteininum. Jón Hnefill Aðalsteinsson prófessor taldi eðlilegra að skilja frásögnina svo að menn hafi verið margbeinbrotnir á Þórssteininum. Þetta hafi verið í líkingu við mannblót þau sem rómverski sagnaritarinn Tacitus greinir frá í Germaníu. Eftir að fórnarmennirnir hafi verið margbeinbrotnir hafi þeir veirð hlutaðir í parta og þar sé um að ræða eftirlíkingu Ýmisblótsins — sköpunarblóts til að tryggja farsæla framvindu náttúrunnar. Það blót hafi orðið að endurtaka reglulega svo óskapnaðarölflin næðu ekki heljartaki á lífinu hér á jörð. Endurgerð frumblótsins yrði þeim mun brýnni í nýju landi.
Ekki er allt sem sýnist
Þegar ég las Eyrbyggju í sumar sem leið og kynnti mér þessar kenningar fræðimanna um fórnarathafnir varð ég fyrir einhverju áþekku því sem Forngrikkir kölluðu thauma — undrun í æðra veldi. Margt fleira vakti undrun mína við lesturinn og næsta víst að enn aðrir þættir munu fanga athygli mína við næsta lestur svo sem vænta má af miklum bókmenntum. Mér kemur til hugar í þessu sambandi Antígóna — harmleikur Sófóklesar. Bræður Antígónu börðust báðir og féllu. Kreon konungur gaf út tilskipun þess efnis að annar þeirra, Eteókles skyldi fá viðhafnargreftrun en hinn, Pólíneikes, sem farið hafði með ófriði gegn Þebu, skyldu engar nábjargir veittar og líki hans varpað fyrir hrafnamor. Antígóna brýtur boð Kreons konungs með því að syrgja Pólíneikes og eys hann moldu. Kreon dæmir hana fyrir að hafa brotið bann sitt og eftirleikurinn er allur mjög harmþrunginn. Ég hef tekið frásögnina af Antígónu sem dæmi þegar ég kenni stúdentum um náttúrurétt — Antígóna geldur með lífi sínu fyrir að virða hin eilífu lög sem séu æðri boðum dauðlegra manna. Í því sé falin hetjudáð.
Í liðinni viku las ég síðan nýútkomna bók hins kunna breska fornfræðings, Mary Beard, Talking Classics — The Shock of the Old. Þar kveðst hún ung hafa skilið söguna af Antígónu svo að þar færi ung kona sem stæði uppi í hárinu á einræðisherra og raunar hafi fleiri lagt áþekkan skilning í verkið. En Beard segir Antígónu Sófóklesar miklu flóknari en flestir túlkendur vilji vera að láta. Kreon konungur eigi sé málsbætur. Hann þurfi að koma á reglu í samfélagi í kjölfar blóðugrar borgarastyrjaldar og hreint ekkert sjálfsagt að skyldur við látna ástvini geti vegið þyngra en lög og regla. Raunar hafði þýskir heimspekingurinn Georg Wilhelm Friedrich Hegel álitið Antígónu jafnöfgafulla í sinni afstöðu og Kreon konung — vart mætti á milli sjá hvort færi nærri um hið rétta í stöðunni. Beard bendir líka á að nýlegar rannsóknir á frumtextanum sýni að Antígóna tali nær eingöngu í fyrstu persónu — hún sé að lýsa eigin löngunum en sé ekki látin koma fram sem talsmaður æðri gilda. Spurningin sem Sófókles spyr áhorfendur er hvar við staðsetjum okkur í klofnu ríki andstæðna: Er nokkur möguleiki annar en taka afstöðu með öfgunum á öðrum hvorum ásnum?
Kjarni góðra bókmennta
Þegar Bob Dylan tók við Nóbelsverðlaununum í bókmenntum fyrir réttum áratug gerði hann Ódysseifskviðu að umtalsefni. Ódysseifur væri „travlin‘ man“ eins og hann orðaði það, sem hefði viðkomu hér og þar, villti á sér heimildir, yrði um tíma örmagnaður og fyrr en varði hefði hann verið tvo áratugi fjarri heimahögum. Þrátt fyrir ævintýralega frásögnina fyndum við alls kyns samhljóm með söguhetjunni. En hvers konar hetja er Ódysseifur eiginlega? spyr Mary Beard í áðurnefndri bók. Hvers konar foringi er það sem kemst til síns heima en glatar öllu herliði sínu á leiðinni?
Ég las fyrir skemmstu myndskreytta útgáfu af Ódysseifskviðu fyrir tvo frændur mína, fjögurra og sex ára. Sá yngri átti bágt með að skilja hvers vegna Ódysseifur hefði blindað kýklópann Pólýfemos. Jú, vissulega hafði hann étið nokkra af mönnum Ódysseifs, en áheyrandinn fyllist líka samúð með kýklópanum. Beard segir Hómer (eða hvern svo sem orti kvæðabálkinn) láta áheyrandann draga í efa ýmis grundvallarrök og brugðið sé upp flókinni mynd sem veki menn til umhugsunar og umræðna. Ég held að við förum þar nærri um kjarna allra góðra bókmennta.