Eyjan

Pawel Bartoszek: Andstaða við bókun 35 er einhvers konar hugmynd um fullveldið

Mynd
Pawel Bartoszek
Pawel Bartoszek

Ef Alþingi samþykkir bókun 35 á næstu vikum er mál ESA gegn okkur orðið ansi veikt. Pawel Bartoszek, formaður þingflokks Viðreisnar og fyrrverandi formaður utanríkismálanefndar Alþingis, segir að ef hann hefði sannfæringu fyrir því að það væri í þágu íslenskra hagsmuna að berjast gegn málshöfðun ESA gegn Íslandi vegna samningsbrota á grundvelli bókunar 35. Það er hins vegar ekki svo að það sé í þágu okkar hagsmuna. Pawel er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

„Þetta er væntanlega eitthvað svona í grundvallaratriðum einhvers konar hugmynd um fullveldið og þau prinsipp að lög sem eru samin annars staðar trompa ekki lög sem innan gæsalappa við sjálf semjum.“

En það er bara verið að taka lög sem við erum búin að staðfesta hér á Íslandi.

„Þetta er bara ágætt, þetta er ekki þannig að Evrópuþingið setur einhver lög og þau trompi íslensk lög. Þetta eru sem sagt reglur sem Evrópuþingið setur og við höfum síðan leitt í gegnum íslensk lög og þá segjum við bara að við ætlum að láta í þeim tilfellum sem þetta rekst á þau lög hafa forgang og aftur, ég tel að við séum þarna að uppfylla okkar þjóðréttarlegu skuldbindingar og tryggja það að íslenskir neytendur, almenningur, fyrirtæki njóti að fullu ágóðans af EES-samningnum.“

Já, nú það má bæta hér við að ég talaði fyrir stuttu við Dóru Sif Tynes, sem er sérfræðingur í ESB-rétti og EES-rétti líka, og hún sagði að það væri alveg borðleggjandi að Ísland tapar þessu máli fyrir EFTA-dómstólnum ef að það er svo þegar að það verður dæmt í því og væntanlega yrði það fellt niður ef við innleiðum bókun 35 með lagasetningu og hún sagði: „Það þarf ekki annað en bara að leggja fram einn, tvo hæstaréttardóma þar sem kemur bara fram að Hæstiréttur bara segir að það sé ekki búið að innleiða þetta þannig að íslensku lögin þau verða að gilda.“

„Þannig er það málið. Eftirlitsstofnun EFTA er búin að leggja fram mál og þá kannski er maður svona, ég veit í hverju þetta væri að úttala sig um okkar sigurmöguleika en náttúrlega ástæða fyrir því og aftur, ef ég teldi íslenskum hagsmunum borgið betur með því að fara í fullt í hart í þessu máli þá myndi ég ekki hika við að eina sekúndu að mæla með að við myndum gera það. En í fyrsta lagi þá þú veist, ég hef heyrt þetta mat á það að ítrekaðir dómar Hæstaréttar auðvitað styrkja ekki okkar málflutning.

En hitt er svona mál sem segir hvort það verði fellt niður eða ekki, það er auðvitað ekkert hægt að fullyrða um það.“

Ja, hún, hún taldi það.

„En hins vegar myndi ég segja, ef Alþingi Íslendinga einhvern tímann á næstu vikum eða mánuðum samþykkir lögin um fulla innleiðingu á bókun 35 eins og þau lögðu fram, þá er málstaður Eftirlitsstofnunar EFTA fyrir eftirlitsstofnun orðinn ansi veikur. 

Þá erum við ekki lengur brotleg við EES.

„Þá gætu menn vissulega farið í eitthvað mál og sagt að við hefðum verið brotleg við það áður en hvaða tilgangi þjónar það? Tilgangurinn er væntanlega bara að tryggja einsleitni á innri markaðnum og hún verður tryggð þegar Alþingi samþykkir þessi lög.“

Já, vegna þess að það er það sem EFTA-dómstóllinn er að dæma um í þessu máli, það er ekki, það mun ekki falla einhver dómur þar sem Ísland verður skikkað til að gera eitt eða neitt eða borga bætur eða neitt svoleiðis. Það mun bara falla dómur sem segir annaðhvort: Já, Ísland er brotlegt eða nei, Ísland er ekki brotlegt.

Í þessu máli mun þessu tiltekna máli reynir ekki á bótakröfu. Þetta er ekki einhver tiltekinn einstaklingur sem er að reka þessi mál. En þau mál geta komið upp og auðvitað hafa gert hér innanlands.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.