Þegar við skrifuðum undir EES-samninginn skuldbundum við okkur til að lögfesta forgang innleiddra laga og regla sem leiddu af honum ef þörf væri á. Hæstiréttur hefur bent á að hann geti ekki beitt þennan forgang öðruvísi en að hann verði lögfestur. Okkur ber því skylda til að innleiða bókun 35, sem felur þennan forgang í sér. Þangað til við gerum það njóta einstaklingar og fyrirtæki á Íslandi ekki sömu réttinda og íbúar annarra ríkja EES njóta. Þetta er fyrst og fremst réttindamál fyrir Íslendinga. Pawel Bartoszek, þingflokksformaður Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Þú ert nú nýstiginn upp úr stóli formanns utanríkismálanefndar. Bókun 35, fyrstu umræðu lokið. Málið í nefnd. Búið að vera þar núna í einhvern tíma, hver er staðan á því?
„Það er í rauninni búið að vera þar en, en það er ekkert, ég myndi ekki segja að það væri fast í nefnd, það var bara tekið inn. Það var veittur tveggja vikna umsagnarfrestur sem rennur út að mig minnir á morgun. Og eftir það þá byrja menn að taka inn gesti og býst ég við og síðan bara afgreiða málið. Þetta mál hefur auðvitað farið í gegnum utanríkismálanefnd tvisvar á seinustu tveimur þingum og síðan ekki hlotið afgreiðslu í þingsal.
En ég kannski sé ekki endilega á þeim umsögnum sem hafa runnið inn hingað til að það séu einhverjir nýir fletir komnir á málið sem kalli á að umturna algjörlega afstöðu nefndarinnar, þó ég auðvitað ætli ekkert að segja því fólki sem þar er nú fyrir verkum en mér sýnist nú að þetta sé nú bara eins og þetta hefur verið.“
Er ekki bókun 35 í grunninn sáraeinfalt mál?
„Ég myndi halda það og við skulum líka kannski taka fram að við spurðum um daginn: Hvernig mun líf okkar breytast ef við tökum upp bókun 35? Það myndi ekki breytast nokkurn skapaðan hlut. Svona fyrir utan það að það eru örfá mál á ári og varla á ári þar sem reynir á þessa túlkun en svo ég kannski skýri aðeins fyrir hlustendum út á hvað þetta gengur þá var það þannig að þegar við skrifuðum undir EES-samninginn og staðfestum hann þá fól það í sér loforð, vegna þá samninga við Evrópusambandið sem EFTA-ríkin gerðu að ef það kemur upp, í rauninni verða átök á milli regla sem varða innri markaðinn og einhverra annarra regla þá gildi reglur sem varða innri markaðinn.
Þannig er þetta í Evrópusambandinu og þar er þetta reyndar bara mjög skýrt. Það er bara forgangsréttur Evrópuréttar ef að það eru einhver lög sem Evrópuþingið setur og síðan lög sem landsþing setja og þau rekast á. Ef þetta er ekki stjórnarskrármál þá gilda reglurnar sem Evrópuþingið setti. Mér finnst það reyndar bara, af því ég er Evrópusinni, þá finnst mér það í rauninni bara einfaldara kerfi heldur en sú flókna smíð sem við höfum gert til þess að komast fram hjá einhvers konar hugmyndum um framsal ríkisvalds í gegnum stjórnarskrá. En við lofuðum sem sagt að setja slíka reglu ef þess væri þörf. Það var gert svona hálfpartinn með 3. grein EES-samninginn, þar er sagt um að það eigi að túlka almenn lög til samræmis við Evrópurétt. En síðan þá hefur Hæstiréttur komist að því smám saman að þessi grein sé ekki nóg til þess að veita forgang og það leiðir til þess að ég tel okkur skuldbundin af því að hérna, taka upp slíka reglu.“
Við erum skuldbundin. Þriðja greinin, hún útlistar það alveg að ef þörf krefur þá þarf að lögbinda þetta.
„Ég tel að við séum skuldbundin af alþjóðarétti, það er að segja, það sem út á við höfum við sagt: Ef það er þörf á að setja slíka reglu þá munum við gera. Það reyndi ekki á það fyrst af dálítið skondinni ástæðu. Fyrstu árin til dæmis kom dómur, um tíma var lægri virðisaukaskattur á íslenskar bækur en erlendar bækur. Hæstiréttur kvað upp dóm um það að það stæðist ekki EES-samninginn en meðal annars á þeirri forsendu svona eftir á að EES-samningur var þá nýrri heldur en lög um virðisaukaskatt, þ.e.a.s. og þá voru þetta komin nýrri lög sem trompuðu eldri lög.
Síðan þá er náttúrlega komið fullt af lögum sem eru nýrri en EES-samningurinn þannig að forgangsáhrif EES-réttarins eru orðin minni með tímanum vegna þess.“
Þannig að Hæstiréttur hefur í sjálfu sér kannski ekki breytt um skoðun, hann er samkvæmur sjálfum sér og segir: Nýrri lög trompa eldri.
„Og það gerir það. Ég reyndar er nú kannski þeirrar skoðunar að, ja, það þýðir ekki að deila við dómarann. Ég held að menn hefðu alveg getað mögulega komist að þeirri niðurstöðu að út frá, út af því að það er almennt svo litið á að Ísland með því að staðfesta undir EES-samninginn, það felur í sér að ríkið vill uppfylla þær kvaðir sem í honum felast og þá hefði mögulega mátt túlka það þannig að það gæti einhverra forgangsraða. En það þýðir ekki að deila við dómarann.
Niðurstaða Hæstaréttar er sú að bókun hefur ekki að fullu verið réttilega innleidd. Og þá eigum við að gera það og ég bara tek það fram af því ég átti til dæmis nýlega þegar ég var enn þá formaður utanríkismálanefndar að það komu evrópskir þingmenn og við áttum fund með Evrópusambandinu og þau hafa aðeins verið að spyrja um bókun 35 og ég hef sagt: Það er hugur ríkisstjórnarinnar að koma þessu í gegn. En við erum ekki að gera þetta fyrir ykkur. Við erum ekki að innleiða bókun 35 af því að við viljum að eitthvað fólk gleðjist í Brussel.
Mér er alveg sama um það, svo ég segi það bara. Ef að ég teldi að það væri gott fyrir íslenska hagsmuni að fara í hart í þessu máli, láta reyna á það fyrir EFTA-dómstólnum að hafa þar sigur, þá myndi ég ekki hika við eina sekúndu að gera það. Ég bara sé ekki hvað er unnið með því. Af því að ef að niðurstaðan er, ef lagastaðan er eins og er í dag þá þýðir það að íslensk fyrirtæki og íslenskur almenningur nýtur ekki að fullu þeirra réttinda sem felast í EES-samningnum. Og af hverju viljum við hafa það þannig? Ég bara skil það ekki.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.