Eyjan

Óttar Guðmundsson skrifar: Eldfim erfðamál

Mynd
Mynd

Erfðamál eru viðkvæm og valda iðulega deilum. Í Íslendingasögum var börnum mismunað eftir því hvort þau voru skilgetin eða ekki. Konur erfðu ekki til jafns við karla. Hetjur Íslendingasagna gátu gert börn sín arflaus ef þeim bauð svo við að horfa. Egill afi minn Skallagrímsson var aldrei sáttur við eftirlifandi börn og kom öllum sínum auðæfum undan og faldi þau í jörð. Börnin sátu því eftir arflaus þegar kallinn loksins dó í hárri elli. Æ síðan hafa svekktir afkomendur Egils leitað silfursins án árangurs. Þórður frændi minn Sturluson á hinn bóginn sá til þess að öll sín börn, skilgetin og frilluborin fengju eðlilegan arf.

Ég hef stundum haldið fyrirlestra um Íslendingasögur og gert þessi erfðamál að umtalsefni. Þau eru alltaf eldfim og kynslóðirnar líta þau ólíkum augum. Þegar ég ræði við eldri borgara um erfðamál Egils afa segi ég að Agli hafi tekist það sem marga eldri borgara dreymir um að gera. Lög nútímans banna hins vegar gömlu fólki að gera börn sín arflaus eins og hann gerði. Þetta finnst gamlingjum fyndið og þeir hlæja mikið að þessum bollaleggingum. Greinilegt er að í salnum eru alltaf einhverjir sem hafa velt þessum möguleika fyrir sér. Þeim ofbýður vanþakklæti og heimtufrekja og afskiptaleysi barna sinna. Menn vildu fegnir eiga þann möguleika að ráðstafa eigum sínum að vild til annarra aðila eða jafnvel kattavinafélaga.

Þegar ég held þess sömu ræðu í hópi yngra fólk finnst engum þetta fyndið. Áheyrendur telja það skelfilega tilhugsun að aldraðir foreldrar geti gert þau arflaus. Brandarinn sem vekur alltaf mikla kátínu hjá eldi borgurum fellur því dauður og marklaus niður meðal unga fólksins. Þetta sýnir vel hversu persónulegt skopskyn fólks er.

Ég vann lengi á sænskum spítölum. Þegar arabískir höfðingjar voru að deyja hópaðist að mikill fjöldi aðstandenda. Þeir einir fengu að erfa sem voru viðstaddir dauðastríð og banastund. Fólk kepptist við gera síðustu andartök hins deyjandi sem þægilegust og vera sýnilegt. Kannski væri ráð að taka upp þennan sið. Enginn fær að erfa nema hann hafi sinnt gamla fólkinu í banalegunni og sýnt lágmarkskærleika og kurteisi.