Eyjan

Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði

Mynd

Hrikaleg staða fjármála Seltjarnarnesbæjar er enn á ný komin á dagskrá eftir að sex mánaða uppgjör var birt nýlega þar sem halli á A-hluta bæjarins var 521 milljón króna, skuldir höfðu aukist um 880 milljónir króna á fyrri hluta ársins og heildarskuldir eru komnar í 9,5 milljarða. Bæjarfélagið ræður greinilega ekki við fjármál sín lengur og ljóst er að Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga er í startholunum að grípa inn í. Vert er að hafa í huga að Seltjarnarnes er lítið bæjarfélag með 4.700 íbúa og hefur verið undir stjórn Sjálfstæðisflokksins alla tíð. Lengi vel stjórnaði Sigurgeir Sigurðsson bænum af fagmennsku og festu en hann lét af störfum fyrir aldurs sakir kringum síðustu aldamót. Frá þeim hafa verið þrír uppburðarlitlir bæjarstjórar sem virðast hafa misst tök á fjármálum bæjarins. Að tapa 521 milljón króna í 4.700 manna bæjarfélagi jafngildir því að Reykjavíkurborg tapaði 16 milljörðum á sama tíma en íbúafjöldi borgarinnar er 147 þúsund. Borgin tapaði á fyrri hluta ársins 3,2 milljörðum króna á A-hluta og gagnrýndu Sjálfstæðismenn það harðlega. Þeir mættu líta yfir bæjarmörkin út á Nes áður en þeir kveða upp áfellisdóma!

Orðið á götunni er að það hljóti að vera mikið áfall fyrir Seltjarnarnesbæ að hafa fengið áminningu frá Eftirlitsnefnd sveitarfélaga vegna þess að fjárhagsstaðan er svo slök að sveitarstjórnarlög teljast hafa verið brotin, eins og fram kom í frétt á RÚV í vikunni. Þar kom fram að þrjú sveitarfélög á landinu hafi brotið svonefnda jafnvægisreglu í sveitarstjórnarlögum en það voru Seltjarnarnes, Strandabyggð og Vopnafjarðarhreppur. Þar með er Seltjarnarnesi jafnað við afskekkta og fámenna hreppa úti á landi. Það getur ekki talist viðunandi hjá sveitarfélagi sem hefur státað af því að vera með hvað hæstar meðaltekjur íbúa á landinu um árabil og þar með miklar útsvarsgreiðslur.

Bærinn hefur hins vegar þumbast við að innheimta ekki sömu útsvarsprósentu og nágrannabyggðirnar á höfuðborgarsvæðinu og montað sig af því með skætingi í aðra um skattpíningu og skort á frjálshyggju. Bærinn hefur ekki haft efni á þessari óábyrgu stefnu og tekur nú út afleiðingar hennar með gríðarlegri skuldasöfnun sem gæti leitt til þess að yfirvöld verði að grípa inn í og setja bænum yfirstjórn fjármála. Setja bæinn í gjörgæslu.

Fyrir kosningarnar í maí á þessu ári mátti öllum vera ljóst í hvað stefndi. Oddviti Sjálfstæðisflokksins bar sig samt mannalega fyrir kosningar og gerði lítið úr vandanum en kenndi verðbólgu, vöxtum og lífeyrissjóðsgreiðslum um skuldasöfnun og óráðsíu bæjarins. Talsmenn minnihlutaflokkanna bentu á þetta en kjósendur völdu að grípa ekki inn í og tryggðu Sjálfstæðisflokknum áframhaldandi meirihluta atkvæða.

Orðið á götunni er að Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokksins, hefði átt að upplýsa um þessa skelfilegu stöðu miklu fyrr og leggja spilin á borðið fyrir kjósendur síðastliðið vor. Hann hefði einnig átt að hvetja til aðgerða fyrir löngu. Nú stígur hann fram með litlar og veikburða sparnaðartillögur sem eru í besta falli hlægilegar en alla vega óboðlegar í stöðunni. Fram undan er mikið verk við að reyna að bjarga fjárhagsstöðu bæjarins og freista þess að koma böndum á fjármálaóreiðuna. Til þess þarf að kalla til verka fagmenn og fólk sem hefur burði til að taka á vandanum. Því miður er óhjákvæmilegt að Þór Sigurgeirsson víki. Annars má gera ráð fyrir því að Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga grípi inn í – ef hún er ekki þegar búin að gera ráðstafanir til þess.

Það er ekki bara á Seltjarnarnesi sem staða fjármálanna er vond. Upplýst hefur verið að á A-hluta Hafnarfjarðarbæjar var tapið 1,9 milljarður króna á fyrstu sex mánuðunum en áætlanir fyrri meirihluta gerðu ráð fyrir tveggja milljarða afgangi. Sveiflan til hins verra er því um fjórir milljarðar og ljóst að ekki ræðst neitt við rekstur bæjarins. Rósa Guðbjartsdóttir, núverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, ber mesta ábyrgð á hörmulegri stöðu Hafnarfjarðar um þessar mundir. Hún stýrði bænum með Framsókn og réði mestu.

Núverandi oddviti Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði kennir því um að lóðir hafi ekki selst eins hratt og vænst var. Það er skýring hans og staðfestir að ekkert ræðst við rekstur bæjarins. Orð hans gef jafnframt til kynna að Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði reiði sig á að tekjur af lóðasölu borgi óráðsíu í rekstri bæjarins og stuðli þar með beint að háu lóðaverði og þar með háu húsnæðisverði.

Orðið á götunni er að sú þjóðsaga að Sjálfstæðismenn séu betur til þess fallnir en aðrir að stýra sveitarfélögum á Íslandi stenst enga skoðun og er kolfallin, hafi hún verið talin gild. Þeir gera sín alvarlegu mistök, ekki síður en aðrir og jafnvel fremur en aðrir. Dæmin af Seltjarnarnesi og Hafnarfirði sýna það svo ekki verði um villst en þau eru ekki tæmandi. Fjarri því.