Eyjan

Vilhelm Jónsson skrifar: Skóflustungan er ókeypis – reikningurinn ekki

Mynd

Það er alltaf hátíð þegar íslenskir stjórnmálamenn taka fyrstu skóflustunguna að nýrri stórframkvæmd.

Ráðherrann mætir, ljósmyndararnir smella af og framtíðin er að sjálfsögðu björt. Það er talað um tímamót, framfarir og nauðsyn þess að hugsa stórt.

Það vantar yfirleitt aðeins einn gest í veisluna.

Manninn með reiknivélina.

Nýjasta tilefnið er öryggisfangelsið að Stóra-Hrauni. Þar tók dómsmálaráðherra fyrstu skóflustunguna að framkvæmd sem áætlað er að kosti um 30 milljarða króna þegar hún verður fullgerð.

Þrjátíu þúsund milljónir króna.

Fangelsið á að rúma 128 fanga. Það jafngildir rúmlega 234 milljónum króna á hvert fangarými.

Með skóflustungunni hefur ráðherrann markað sér stað í sögu framkvæmdarinnar. Nú er bara að sjá hvort hún verði minnisvarði um ráðdeild eða enn eitt dæmið um íslenskan flottræfilshátt.

Enn ein hátíðarræðan

Dómsmálaráðherra ræddi þann alvarlega vanda að fangelsisdómar fyrnist vegna skorts á fangarýmum.

En það hefði verið fróðlegt að heyra ráðherrann ræða líka notkun Hólmsheiðarfangelsis til að vista fólk sem bíður brottvísunar úr landi, án þess að hafa hlotið fangelsisdóm.

Þetta eru engin einstök tilvik. Stjórnvöld hafa sjálf viðurkennt að gæsluvarðhald vegna brottvísunarmála hafi meðal annars farið fram á Hólmsheiði.

Og nú, árið 2026, stendur dómsmálaráðherra með skófluna í höndunum og talar um fangelsisdóma sem fyrnast vegna skorts á fangarýmum.

Hvað skyldu margir dómar hafa fyrnst á meðan stjórnvöld voru að undirbúa skóflustunguna?

Fangelsisdómar fyrnast vegna plássleysis, en ríkið hefur á sama tíma vistað fólk bak við lás og slá sem ekki hefur verið dæmt til fangelsisvistar.

Það hefði verið verðugt umhugsunarefni í hátíðarræðunni.

Árið 1995 var vígð ný fangelsisbygging á Litla-Hrauni. Nú, aðeins 31 ári síðar, er hafin bygging nýs fangelsis á sama svæði sem á að leysa eldra fangelsið af hólmi.

Þrjátíu og eitt ár. Og aftur er komið að því að byggja nýtt.

Auðvitað þarf fangelsiskerfið öruggt og viðunandi húsnæði. En nauðsyn þess að leysa vandamál veitir engum undanþágu frá aðhaldi.

Nýja fangelsið á að rúma 128 fanga en núverandi Litla-Hraun hefur verið sagt rúma 83. Ef gömlu rýmin verða öll lögð niður nemur varanleg fjölgun því 45 fangarýmum.

Mynd
Mynd/Aðsend

Hvernig fara Norðmenn að þessu?

Árið 2020 luku Norðmenn byggingu tveggja nýrra fangelsa í Agder með samtals 300 fangarýmum.

Lokakostnaðurinn var 1.053 milljónir norskra króna, eða um 13,6 milljarðar íslenskra króna miðað við gengi í október 2026.

Norðmenn byggðu því 300 fangarými fyrir sem svarar 13,6 milljörðum íslenskra króna. Hér á að byggja 128 fangarými fyrir um 30 milljarða.

Og það er aðeins áætlunin. Hver veit hvar reikningurinn endar?

Það eru um 45 milljónir íslenskra króna á hvert fangarými í Noregi á móti 234 milljónum hér heima.

Taka þarf tillit til verðlagsbreytinga, gengis og mismunandi öryggiskrafna. Samanburðurinn er því ekki fullkominn. En jafnvel þótt norski kostnaðurinn sé hækkaður verulega vegna liðinna ára kallar munurinn á skýringar.

Hvað vita Norðmenn um hagkvæmar fangelsisbyggingar sem við vitum ekki?

Og hefur einhver hér heima haft fyrir því að spyrja þá?

425 milljónir á dag – bara í vexti

Á sama tíma og stjórnvöld kynna nýjar stórframkvæmdir er þjóðinni sagt að sýna aðhald.

Seðlabankinn beitir háum vöxtum til að draga úr eftirspurn og verðbólguþrýstingi. Heimili og fyrirtæki finna fyrir því.

Samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 eru vaxtagjöld ríkissjóðs áætluð um 155 milljarða króna á ári.

Það jafngildir um 425 milljónum króna á dag.

Á hverjum einasta degi.

Á meðan er rætt um skort á fjármagni til að efla björgunarþyrlukost Landhelgisgæslunnar og tryggja úthald varðskipa. Heilbrigðiskerfið glímir við erfið verkefni, þjóðvegir þarfnast víða viðhalds og aðrir innviðir kalla á fjárfestingar.

En þegar ný stórframkvæmd er kynnt virðist alltaf hægt að finna milljarðana.

Það er auðveldara að taka fyrstu skóflustunguna að nýju húsi en að fagna viðgerð á þjóðvegi sem hefði átt að lagfæra fyrir tíu árum.

Þrjátíu milljarðar – eða fimmtíu?

Kostnaðaráætlanir opinberra stórframkvæmda hafa stundum einkennilegan eiginleika. Þær virðast nógu lágar meðan verið er að afla stuðnings við verkefnið, taka svo að hækka þegar fer að hilla undir fyrstu skóflustunguna og halda gjarnan áfram að bólgna út byggingartímann.

Eru 30 milljarðarnir að Stóra-Hrauni loksins talan sem stendur — eða aðeins enn ein viðkomustöðin á leiðinni að lokareikningnum?

Verður hann 40 milljarðar? Eða jafnvel 50?

Þetta eru ekki spár heldur spurningar um kunnuglega áhættu og ábyrgð.

Verði kostnaðurinn 50 milljarðar nemur hann rúmlega 390 milljónum króna á hvert fangarými.

Hver á að grípa inn í ef kostnaðurinn fer fram úr áætlun?

Hver fær síðustu myndina?

Þetta snýst ekki um einn ráðherra eða eina ríkisstjórn. Þetta snýst um vinnubrögð sem hafa viðgengist árum og áratugum saman.

Það er auðvelt að mæta með skóflu og brosa framan í myndavélarnar þegar framkvæmd hefst.

Erfiðara er að standa fyrir framan þjóðina árum síðar og útskýra hvers vegna reikningurinn varð hærri en ráð var fyrir gert.

Þá er sá sem tók fyrstu skóflustunguna gjarnan löngu farinn, nýir ráðherrar teknir við og skattgreiðendur sitja eftir með reikninginn.

Kannski ætti næsta hátíð að vera haldin þegar framkvæmd lýkur innan kostnaðaráætlunar.

Þá mætti jafnvel bjóða manninum með reiknivélina í myndatökuna.

Og þegar umræðan snýst um nýtt fangelsi fyrir 30 milljarða króna er freistandi að spyrja hvort þeir sem fara svona frjálslega með fé annarra ættu ekki sjálfir að fá að kynnast húsakynnunum.

Það er auðvelt að sýna stórhug með peningum annarra.

En þegar reikningurinn kemur er stórhugurinn yfirleitt horfinn — og enginn kannast við að hafa haldið á skóflunni.

Höfundur er athafnamaður.