Eyjan

Pawel Bartoszek: Jón Gnarr er áfram stjórnarliði og býður ekki upp á annað – stjórnin stendur ósködduð

Mynd
Pawel Bartoszek
Pawel Bartoszek

Samskipti milli manna í þingflokki Viðreisnar eru hin ágætustu og ekki verður annað sagt um samskipti ráðherra flokksins og þingmanna. Það er hins vegar ekki hægt að deila um upplifun manna. Samband þingflokksformanns Viðreisnar við Jón Gnarr er mjög gott og samningur milli þeirra um að Jón styðji ríkisstjórnina og heldi áfram í nefndum fyrir þingflokkinn, auk þess sem hann á kost á sérfræðiaðstoð á vegum þingflokksins staðfestir að ríkisstjórnarmeirihlutinn á Alþingi er óbreyttur. Pawel Bartoszek, nýr þingflokksformaður Viðreisnar, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Þú ert nýtekinn við sem formaður, varst áður formaður utanríkismálanefndar.

„Já, það passar. Mér var falinn þessi heiður og þetta ábyrgðarmikla hlutverk í þinginu sem ég bara er nokkuð stoltur af. Í árum talið hef ég kannski ekkert setið á þingi mjög lengi. Ég hef sat í eitt ár þarna 2016 til 2017 og nú eru þau orðin tvö hér en auðvitað hef ég töluverða reynslu í gegnum kannski meira en áratug núna í stjórnmálastarfi, líka í borgarstjórnanna, þannig að ég allavega féllst á það og bara er því feginn og glaður að hafa verið falið þetta hlutverk og hlakka bara til að vinna með þessum góða þingflokki til þess að koma okkar góðu stjórnarmálum í gegn, ná hallalausum fjárlögum sem er næsta verkefni þessa hausts og síðan auðvitað stuðla að því að þau leiði til þess að vextir og verðbólga fari hér niður.“

Og það er nú sem betur fer, greiningardeildir og, ja, Seðlabankinn sjálfur er að tala um það að horfur varðandi verðlagsþróun, miðað við svona að það komi ekki einhver áföll að utan, eru býsna góðar núna.

„Já, þær allavegana eru að batna þannig að við vonumst til þess og auðvitað með það sem ríkissjóður getur auðvitað helst gert í því er auðvitað bara að stuðla að jöfnuði og jafnvægi í þeim rekstri, ekki vera að dæla peningum út í hagkerfið og kynda undir verðbólgubálið. Það hafa að mínu mati verið mistök. Ég segi ekki að það hafi verið mistök að hérna peningum í hagkerfið í Covid. Það er enginn að tala um það. Hins vegar voru menn fulllengi að draga saman seglin eftir það og það voru þarna fjárlög þar sem menn ráku sig í hátt upp í 100 milljarða halla og fjárlaganefnd á sínum tíma bætti mjög í útgjöldin, í alls konar hluti, og þetta var nú áður en Grindavík, þeir atburðir fóru að gerast, þannig að menn nýttu að mínu mati ekki tækifærið beint eftir Covid til þess að draga saman seglin og afleiðingin er of mikil þensla sem við höfum verið að vinna á en nú auðvitað þýðir bara ekkert annað en að líta fram á veginn og þessi hallalausu fjárlög sem við ætlum að ná núna eru bara leiðin að því.“

Sviðsljósið hefur verið dálítið á Viðreisn að undanförnu. Jón Gnarr, hann sagði sig úr þingflokknum en það er gerður skriflegur samningur milli þín og hans …

„Mín fyrir hönd þingflokksins.“

Einmitt, um að hann styður ríkisstjórnina. Hann situr áfram í nefndum á vegum þingflokksins og hann hefur aðgang að sérfræðiaðstoð á vegum þingflokksins.

„Einmitt.“

Mér sýnist þetta vera í raun og veru þannig að hann sé í þingflokknum en hann er laus undan mætingarskyldu.

„Æ, ég myndi nú kannski ekki hérna taka undir að það sé. Auðvitað er hann titlaður utan þingflokka þegar hann tekur til máls í þingsal og alls staðar og þetta er auðvitað pólitísk yfirlýsing af hans hálfu. En á hinn bóginn, það er hans ákvörðun og ég auðvitað gleðst ekki yfir henni. Það er enginn þingflokksformaður sem gleðst yfir því þegar fækkar í hans góða liði en veruleikinn er bara sá og ég er glaður og ánægður að það hafi tekist þó að gera milli okkar þennan skriflega samning og þá liggur það bara fyrir að, og Jón hefur reyndar sjálfur sagt það, hann er ekki available. Hann er ekki til í það að ræða við aðra þingflokka um að ganga til liðs við þá og hætta þá að styðja stjórnina þannig að ríkisstjórnin nýtur áfram stuðnings 36 þingmanna og hann sinnir ákveðnum ábyrgðarstörfum hérna sem hann hefur gert hingað til og það er bara mjög mikilvægt að halda því til haga því að það hefur aðeins svona verið smá ruglingur á þessari umræðu en það eru engin fjárhagsleg áhrif af þessum samstarfssamningi sem við höfum gert. Jón fær núna í rauninni ákveðnar, hverjum þingmanni fylgir ákveðið framlag frá þinginu. Viðreisn fékk auðvitað það framlag Jóns þegar hann var í þingflokkum og nú fær Jón það framlag beint, eins og Guðmundur Ingi fær sambærilegt framlag og það hefur ekkert með neinn samning að gera.

Sá samstarfssamningur sem við gerðum er bara pólitísks eðlis. Jón styður ríkisstjórnina. Jón situr í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, Vestnorræna ráðinu og Þingvallanefnd sem allt eru ólaunuð störf, það er að segja þau bara leiða af starfi hans sem alþingismanns. Og síðan getur hann fengið aðstoð og þjónustu þingflokksins eftir nánara samkomulagi ef hann óskar eftir því. Þannig að þetta er að mínu mati svona ákveðin lending en auðvitað myndi ég gleðjast yfir því ef að það samstarf myndi ganga vel og leiða til þess að Jón sæi sér fært að koma í þingflokkinn aftur. En við erum ekki á þeim stað í dag.“

Nei, hann tiltók mál sem hann hefur barist mikið fyrir og verið hans hjartans mál eins og til dæmis málefni barna með fjölþættan vanda, að þau hafi ekki fengið nægilegan forgang hjá þingflokki Viðreisnar. Ætlið þið að bregðast eitthvað við? Hafið þið skoðað þessi mál eitthvað? Hefur hann ekki eitthvað til síns máls, þetta eru náttúrlega mjög brýn og erfið mál og börn eru að deyja?

„Jón hefur náttúrlega verið okkar maður í þessu og hann var í ákveðnum starfshópi sem ráðherra skipaði á sínum tíma en þessi mál eru í velferðarnefnd og það hafa verið gerðar breytingar á barnaverndarlögum og farsældarlögum og Jón sjálfur hefur reyndar sagt í viðtölum að hann rekur margar af þeim breytingum sem þar eru til sinna áhrifa. Þannig að ég tel að hann hafi þegar haft áhrif en auðvitað er þetta bara málaflokkur þar sem við þurfum alltaf að gera betur og það þýðir ekkert að skafa ofan af því en ég myndi ekki segja að það sé kannski háð brotthvarfi Jóns sérstaklega með hvaða hætti við tiltökum þann málaflokk. Við bara þurfum áfram að hafa augun á boltanum þar; Útrýma biðlistum, bæta þessa þjónustu og taka betur utan um börnin okkar.“

Hann nefndi líka einhverja samskiptaörðugleika. Bæði milli ráðherra flokksins og milli ráðherranna og þingflokksins. Ég get ekki fengið þig hingað og ekki spurt út í þetta.

„Þú ert þarna að vísa í viðtal í Spursmálum þar sem held ég í rauninni að í hollinnu á undan kom sveitarstjórnarmaður úr Sjálfstæðisflokknum sem svona bar þennan orðróm á borð og svo er Jón spurður út í hann og hann svona einhvern veginn tekur undir það. Mér finnst í rauninni ekkert góður bragur á því að fara að rekja eða hrekja upplifanir fólks af einhverju. Ég meina, ef fólk upplifir eitthvað þá hefur það stundum eitthvað til síns máls.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.