Kaldvík, sem vill hefja sjókvíaeldi í Seyðisfirði, uppfyllir ekki lögbundnar fjárhagskröfur til að fá úthlutað leyfi til sjókvíaeldis. Það hefur barist í bökkum og væri komið í þrot ef ekki væri fyrir innspýtingu á innspýtingu ofan frá norsku móðurfélagi. Samt hafa ráðuneyti og stofnanir hér á landi veitt leyfi til fyrirtækisins og byggja það á gömlum og úreltum fjárhagsupplýsingum. Katrín Oddsdóttir, lögmaður og umhverfisverndarsinni, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
„Stofnanirnar eru fullar af mjög kláru fólki. Það er hins vegar búið að berja á þeim með einhverju svona: Fyrirtækið á rétt á að fá umsóknina sína afgreidda og fá já. Þetta er náttúrlega ákveðin hugsanavilla. Lögin eru bara hlutlaus gagnvart því hvort þú fáir eitthvað eða ekki. Ef ég segi við þig: „Heyrðu, ég ætla að fá bílpróf“ og þú spyrð: „Ertu sautján?“ Ég segi: „Nei, en ég verð það. Og ég ætla að fá bílpróf,“ þá mátt þú ekkert gefa mér bílprófið.
Þú átt bara að segja: „Nei, vinkona, þú færð ekki bílpróf. Og svo geturðu komið þegar þú ert 17 ára og sótt um það að fá bílpróf en akkúrat samkvæmt þeim lögum sem ég hef í höndunum núna þá átt þú ekki rétt á þessu bílprófi.“
Þetta væri óskandi af því ég er búin að sjá svo mörg tækifæri fyrir hina íslensku stjórnsýslu til að segja nei og nei þýðir ekki aldrei. Það þýðir bara ekki miðað við fyrirliggjandi gögn málsins og fyrirliggjandi rannsókn sem við getum framkvæmt á þessum forsendum. Og ég meina eins og í Seyðisfirði. Það eiginlega liggur bara ekki fyrir óháð mat á hættum af ofanflóðum í sjálfum Seyðisfirði.
Það er búið að gera einhverjar svona pínulitlar tilraunir til að meta þessa litlu kvíaröð ef hún væri akkúrat hér. Myndi hún mögulega, ef hún væri einbýlishús á tveim hæðum, drepa manneskju eða ekki? Þetta eru í raun og veru niðurstöðurnar sem við erum að fá, þar sem Veðurstofunni er stillt einhvern veginn upp við vegg og hún er látin framkvæma einhver staðbundin ofanflóðamöt í staðinn fyrir að svæðið sé bara tekið fyrir í heild sinni, það séu bara teiknaðar inn þessar snjóflóðalínur því við eigum ferlana, sé bara útskýrt nákvæmlega hvaða svæði þarna séu algjörlega off-limits, sem eru held ég stærstur hluti þeirra í raun og veru, þú veist, gert mat sem byggir á því að við viljum ekki að það fari skriða á akkeri á sjókvíum og það sleppi milljón eldislaxar rétt hjá stóru ánum okkar í Vopnafirði.
Þetta er bara heimskulegasta sem ég hef heyrt og það eru líka geggjaðir litlir laxastofnar í Seyðisfirði og árósarnir þar eru of nálægt þessu til þess að þetta ætti að mega en það er líka litið fram hjá því. Það eru svo mörg atriði sem er litið fram hjá og eitt sem ég verð að segja þér er að í lögunum um fiskeldi, í áttundu grein þar, þar segir: Ef þú ætlar að veita rekstrarleyfi þá verður að vera sönnun á því þegar þú veitir leyfið að viðkomandi sé með 30% eigið fé.
Bara mjög eðlilegt af því þú ert að fjárfesta í búnaði til að geta beitt rekstrarleyfinu, þannig að þú þarft að eiga pening til að geta keypt græjurnar sem þú þarft til að koma þessu í gang. Kaldvík, eins og við vitum, er búið að vera í hörmulegum fjárhagserfiðleikum síðustu mánuði og misseri og skjalið sem ég fæ ekki betur séð en að MAST byggi á, að þegar þeir uppfylla þetta skilyrði, er 15 mánaða gamalt og vísar í stöðuna eins og hún var nokkrum mánuðum fyrr.
Þetta eru þrjár línur frá einhverjum endurskoðanda sem segir að hann telji bara að þetta sé flott. Síðan þá erum við með tvö árshlutauppgjör og ársreikning sem sýnir hið gagnstæða. Og af hverju myndirðu ekki byggja á því sem nýjustu gögnum þegar fréttirnar eru búnar að fjalla um þetta upp á hvern einasta mánuð að það sé að fjara undan þessu fyrirtæki rekstrarlega? Og eina ástæðan fyrir því er ekki að fara á hausinn er sú að norska mamman heldur áfram að dæla í það peningum eða afskrifa einhver lán sem hlutafé og annað til þess að láta þetta líta betur út.“
Þú ert að lýsa lögbroti, sem sagt.
„Ég er að lýsa því að þetta sé vanrannsakað. Og MAST hefur allar heimildir til að kalla eftir öllum gögnum hvað varðar þetta skilyrði og ég skil ekki af hverju það hefur ekki verið gert en svo fer ég að lesa póstana þar sem ég sé hvernig Kaldvík hótar MAST, af hverju ekki komin ákvörðun og hvað er að gerast og við áskiljum okkur allan rétt. Og ég skil bara að fólk einhvern veginn að lokum bara hálfpartinn gefist upp og segi ókei, þetta verður þá bara kært og það er þá bara þannig þú veist, þau hafa voða litla tapa.
Fólkið sem ég vinn fyrir hefur mikla tapa. Það kostar helling að þurfa að kæra hverja einustu niðurstöðu til þess að fá rétta niðurstöðu. Það er ekki sanngjarnt að leggja það á borgara þessa lands að sitja í sjálfboðaliði kvöld og nótt og dag við að útskýra fyrir stjórnsýslunni af hverju hún er í bullandi lagalegri villu.“
En nú eruð þið búin að ná eyrum ráðherranna, þessara sem bera pólitísku ábyrgðina. Ertu bjartsýn á að þetta leysist farsællega?
„Nei, bara verða að fá að vera alveg heiðarlega þar, ekki akkúrat á þessum tímapunkti. Ég held að ástæðan fyrir því að við náðum eyrunum hafi verið það að það var öskrað nógu hátt en ég spyr mig hversu lengi þarf þá öskrið að vara til þess að hin pólitíska athygli haldist á málinu, nægilega lengi til þess að raunverulega eitthvað sé að gert? Ég held að þessi fundur sem við eigum með Kristrúnu í næstu viku muni segja mjög mikið til um það hvort og þá hvernig þau hafa raunverulega áhuga á að stíga inn í þetta ef þau vilja til dæmis hlutina almennilega með því að opna þetta strandsvæðisskipulag og vinna það eins og eðlilega hefði átt að vinna.
Þá væri það merki um það að já, þau ætluðu að gera eitthvað í þessu. En ég óttast það að það sé bara verið að svona slökkva þessu litlu svona elda úti í móa á meðan borgin brennur til þess að láta líta út fyrir það að það sé verið að hlusta til þess að málið róist og þau geti farið að einbeita sér að því næsta, ekki það að ég ætli þeim illan ásetning heldur bara er það þannig sem við sjáum svo oft að stjórnvöld vinna því miður.
Það er hvert málið á fætur öðru sem kemur upp en svo er eitthvað annað komið og þá gleymist það fyrra. Og í þessu tilfelli mun það ekki fá að gerast því við munum aldrei gefast upp og það verður aldrei sjókvíaeldi í Seyðisfirði, það er ég alveg viss um. En hvort að akkúrat þessi ríkisstjórn og þessir ráðherrar og þessar stjórnsýslustofnanir sem nú eru með málið til meðferðar muni vakna og finna allt í einu þörf til þess að fara réttum megin við lögin og sannleikann og réttlætið veit ég ekki.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.