Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. En hvaða fyrirmyndir býður þorpið upp á?
Hverju myndi tíu ára barn svara ef við spyrðum það í dag: „Hvað langar þig að verða þegar þú verður stór?“
Kannski frægur áhrifavaldur, fótboltastjarna eða skemmtikraftur. En hversu mörg börn myndu nefna vísindamann, kennara, hjúkrunarfræðing, iðnaðarmann eða frumkvöðul sem vill bæta heiminn?
Það er ekkert að því að dást að frægu fólki. En gefa þær fyrirmyndir sem við höldum mest á lofti börnunum nægilega fjölbreytta mynd af því hvað felst í farsælu lífi?
Hvernig líður ungri manneskju sem telur sig aldrei geta orðið eins og þessar súperstjörnur?
Börn alast upp í menningu – ekki aðeins í skólum
Rajan Parrikar, doktor í rafmagnsverkfræði, beinir athyglisverðri gagnrýni að íslensku samfélagi í nýlegri grein í Morgunblaðinu. Hann telur að skemmtanir, áfengi og frægð hafi fengið óhóflegt vægi í menningu okkar.
Við þurfum ekki að vera sammála honum um allt. En hann setur fram mikilvæga áminningu: „Börn alast ekki upp í skólum. Þau alast upp í menningu.“
Þarna hittir hann naglann á höfuðið. Við höfum áhyggjur af námsárangri, kvíða og vanlíðan barna og ungmenna. Við ræðum hvað skólarnir þurfi að gera betur, áhrif samfélagsmiðla og sívaxandi kröfur til ungs fólks.
En hvað með okkur sjálf?
Hvaða skilaboð sendum við börnunum með eigin hegðun? Hverjum dáumst við að? Hverjir fá athygli okkar? Og hvað teljum við vera raunverulegan árangur í lífinu?
Börn læra ekki aðeins af því sem við segjum. Þau læra ekki síður af því sem við gerum.
Þú þarft ekki að verða súperstjarna
Allt of mörg glíma við kvíða, óöryggi og vanlíðan. Orsakirnar eru margvíslegar, en stöðugur samanburður við glansmyndir annarra getur aukið álagið og grafið undan sjálfstrausti. Á samfélagsmiðlum virðast aðrir oft vera fallegri, vinsælli, ríkari eða hæfileikaríkari. En þar sjáum við sjaldnast heildarmyndina.
Í Qigong-kennslu minni legg ég mikla áherslu á einfaldan en mikilvægan boðskap:
Þú ert einstök manneskja. Líf þitt er einstakt og heilagt. Hvert okkar getur gert eitthvað sem enginn annar getur gert. En saman getum við gert enn meira þegar virðing og friður ríkja.
Við höfum öll mismunandi hæfileika, áhuga og drauma. Sumir vilja rannsaka heiminn, aðrir skapa tónlist, vinna með höndunum, hjálpa fólki eða byggja upp fyrirtæki.
Engin ein leið hentar öllum. Þess vegna þurfum við að hjálpa börnum og ungmennum að finna eigin styrkleika, öðlast sjálfstraust, láta sig dreyma og þora að framkvæma.
Ungmenni þurfa ekki að verða betri en einhver önnur. Þau þurfa að fá tækifæri til að verða eins góð og þau sjálf geta orðið, á eigin forsendum.
Við erum öll á ferðalagi. Ekki nást öll markmið samkvæmt áætlun og stundum þurfum við að breyta um stefnu. Líf okkar er ferðalag sem við skulum reyna að njóta sem best. Ýtum undir menningu þar sem við hvetjum, sýnum skilning og stuðning til að halda áfram, þannig að fleiri draumar rætist.
Hverjir eru hetjurnar okkar?
Rajan nefnir íslenska vísindamenn sem hafa náð framúrskarandi árangri. Sigurður Helgason frá Akureyri varð einn fremsti stærðfræðingur heims á sínu sviði, prófessor við MIT og höfundur grundvallarrita sem kynslóðir vísindamanna hafa lært af.
Ari Brynjólfsson, einnig frá Akureyri, hlaut alþjóðleg verðlaun fyrir rannsóknir og þróun geislunartækni, meðal annars á sviði matvælaöryggis.
Hversu margir Íslendingar þekkja þessar sögur? Hversu margir hafa náð merkilegum árangri án þess að við höfum gert þá sýnilega sem fyrirmyndir?
Við eigum að fagna íþróttaafrekum og árangri skemmtikrafta. En hvers vegna gerum við ekki jafn mikið úr afrekum vísindamanna, kennara, frumkvöðla, iðnaðarfólks og þeirra sem vinna ómetanleg störf í þágu annarra?
Hugsum okkur ef hvert barn fengi reglulega að kynnast fólki úr ólíkum störfum og með ólíka hæfileika. Vísindamanni sem segir frá spennandi uppgötvun. Iðnaðarmanni sem sýnir hvernig hugmynd verður að veruleika. Hjúkrunarfræðingi sem lýsir gleðinni við að hjálpa öðrum. Frumkvöðli sem segir frá mistökum sínum og hvernig hann lærði af þeim.
Þarna gætu kviknað draumar sem annars hefðu aldrei orðið til.
Við getum ekki ætlast til að börn stefni að möguleikum sem þau vita ekki af.
Hvernig stendur „þorpið“ sig?
Gamalt orðtak segir að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. En hvernig stendur þorpið okkar sig?
Þorpið er ekki aðeins heimilið og skólinn. Það eru líka afar og ömmur, vinir, íþróttafélög, vinnustaðir, fjölmiðlar, stjórnmálamenn og við sjálf. Öll höfum við áhrif á þá menningu sem börnin alast upp við.
Ég minnist þess sem amma mín sagði þegar ég taldi mig hafa gefið meira í jólagjöf en ég taldi mig hafa fengið til baka: „Gefðu af heilum hug, það er svo gott að geta gefið og við fáum sjálf til baka þó síðar verði.“ Þessi einfalda lífsregla hefur fylgt mér alla tíð.
Hún minnir okkur á að hamingjan felst ekki aðeins í því sem við eignumst eða afrekum fyrir okkur sjálf, heldur einnig í því sem við gefum hvert öðru af heilum hug.
Við getum öll verið góðar fyrirmyndir. Með því að sýna virðingu, hjálpa náunganum, hvetja unga fólkið, sýna forvitni og gleðjast yfir árangri annarra. Leitum leiða til að „gera betur í dag en í gær“.
Ræktum menningu friðar, forvitni og umburðarlyndis
Hvernig væri samfélag þar sem við legðum jafn mikla áherslu á góðvild og árangur, samvinnu og samkeppni, innri frið og ytri velgengni?
Þar sem börn lærðu að það er eðlilegt að vera ólík, gera mistök, spyrja spurninga og fara eigin leiðir?
Þar sem við hvetjum hvert annað áfram í stað þess að vera sífellt að bera okkur saman við „súperstjörnur“?
Ég tel að við þurfum að rækta meðvitaðri menningu friðar, forvitni og umburðarlyndis.
Friður byrjar í hugarfari okkar og samskiptum. Forvitni opnar nýjar leiðir til þekkingar og sköpunar. Umburðarlyndi gerir okkur kleift að virða ólíkar skoðanir og hæfileika.
Þetta eru ekki aðeins falleg orð. Þetta eru undirstöður samfélags þar sem fólki getur liðið vel og allir fengið tækifæri til að njóta sín.
Við þurfum líka að kenna börnum að draumar rætast ekki af sjálfu sér. Þau þurfa að leggja sig fram, sýna þrautseigju og læra að bera ábyrgð á eigin lífi. En ábyrgð á eigin lífi þýðir ekki að við eigum að standa ein. Við þurfum öll á stuðningi, hvatningu og velvild annarra að halda.
Hvert okkar getur gert eitthvað einstakt. Saman getum við gert miklu meira.
Tengjum kynslóðirnar betur saman
Rajan vekur einnig athygli á því hvernig við komum fram við eldra fólk. Hér er mikilvæg tenging við uppeldi barna okkar. Eldri kynslóðin býr yfir reynslu, þekkingu og lífsvisku sem við ættum að nýta miklu betur.
Hvers vegna ekki að skapa fleiri tækifæri fyrir eldra fólk til að miðla reynslu sinni til barna og ungmenna?
Við gætum byggt upp leiðsagnar- og mentorstarf í skólum, félagsmiðstöðvum og atvinnulífi þar sem kynslóðirnar læra hver af annarri.
Ungt fólk fær leiðsögn og fjölbreyttari fyrirmyndir. Eldra fólk fær tækifæri til að miðla reynslu sinni, halda áfram að leggja sitt af mörkum og læra nýja tækni af þeim yngri.
Þannig verður þorpið sterkara.
Hvað getum við sjálf gert – strax í dag?
Við þurfum ekki að bíða eftir nýjum lögum, nefndum eða fjárveitingum til að bæta menningu samfélagsins.
Foreldrar geta hlustað betur á drauma barna sinna. Kennarar geta kynnt fjölbreyttari fyrirmyndir. Fjölmiðlar geta sagt fleiri sögur af fólki sem lætur gott af sér leiða. Fyrirtæki geta opnað dyr sínar fyrir ungu fólki. Eldri borgarar geta miðlað af reynslu sinni.
Öll getum við byrjað á því að sýna meiri góðvild, áhuga og hvatningu í daglegum samskiptum.
Það kostar ekkert að segja við unga manneskju: „Þú hefur hæfileika. Hvað langar þig að gera? Hvernig get ég hjálpað þér?“
Stundum getur ein slík setning breytt miklu.
Framtíð Íslands byrjar hjá okkur sjálfum
Við Íslendingar eigum margt gott. Við búum yfir sköpunarkrafti, frumkvæði, samheldni og miklum mannauði.
En framtíð samfélagsins ræðst ekki aðeins af hagvexti, tækniframförum eða námsárangri. Hún ræðst líka af því hvernig manneskjur við hjálpum börnunum okkar að verða.
Rajan Parrikar hefur haldið uppi spegli fyrir íslenskt samfélag. Við ættum að taka þá áminningu til okkar og nýta hana til góðs.
Við skulum því ekki aðeins spyrja hvað unga fólkið okkar vill verða. Spyrjum líka hvernig samfélag við viljum að það alist upp í og hvað við sjálf getum gert til að skapa það.
Það þarf heilt þorp til að ala upp barn og hjálpa því að blómstra.
Við erum öll hluti af þorpinu og við eigum hvert og eitt að leggja okkur fram um að gera það betra.
Höfundur er formaður Öldungaráðs Viðreisnar, viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, áhugamaður um að friður ríki og kennir Qigong – lifsraekt.is