Það vakti athygli nýlega að meirihlutinn í Reykjavík lagði fram hugmynd að hagræðingu í rekstri borgarinnar sem felst í því að fækka borgarfulltrúum úr 23 í 15.
Þessi einfalda tillaga gæti sparað um 125 milljónir á ári í rekstri borgarinnar sem samsvarar um 500 milljónum króna á einu kjörtímabili.
Einnig hefur það vakið athygli að ríkisstjórnin er að fækka stofnunum með sameiningu og tilheyrandi hagræðingu í rekstri ríkisins. Gert er ráð fyrir að þessi áform muni spara um 15 milljarða króna á ári eða um 150 milljarða á 10 árum. Ríkisstjórnin er nú með um 60 stofnanir undir smásjánni hvað varðar sameiningar.
Bent hefur verið á að nú séu 154 stofnanir hjá ríkinu eða um 40 á hverja 100 þúsund íbúa. Sambærileg tala í Noregi er 3,3 og 3,5 í Svíþjóð. Við erum sem sagt hlutfallslega með um tólf sinnum fleiri stofnanir en þessi nágrannalönd okkar. Það er því af nógu að taka!
Þessar hagræðingarfréttir eru góðar fyrir okkur skattgreiðendur en ef tekið er tillit til skyldu-lífeyrisgjalda og virðisaukaskattsins erum við með einhverja hæstu skattbyrði almennings á Vesturlöndum.
Verðlag á Íslandi er með því hæsta sem gerist í Evrópu. Almennt verðlag hjá okkur er um 73% hærra en í ESB, um 40% hærra en í Danmörku og um 30% hærra en í Noregi samkvæmt yfirliti frá ChatGPT sem byggir á Eurostat fyrir árið 2026.
Allir kostnaðarliðir heimilanna eru hæstir hjá okkur og á það við matvæli, húsnæði, samgöngur og veitingar.
Krónan er aðal sökudólgurinn!
En stærsti orsakavaldur hás verðlags hjá okkur er krónan, örgjaldmiðillinn okkar sem ávallt krefst vaxtaálags (svokallað krónuálag).
Óstöðugleiki krónunnar og stöðug rýrnun hennar í þau rúmlega 100 ár sem hún hefur „þjónað“ okkur veldur því að vextir eru alltaf tvisvar til þrisvar sinnum hærri en í nágrannalöndum okkar og munu verða það áfram að óbreyttu.
Með einföldum samanburði kemur í ljós að vextir af 60 milljón króna húsnæðisláni til 30 ára sem eru í dag 8,75% á Íslandi og 4,54% í Danmörku þýðir að íslenska fjölskyldan greiðir um 2 milljónum króna meira en danska fjölskyldan á ári í vexti.
Ef vextir væru þeir sömu á Íslandi og í Danmörku (sem er með krónu tengda við evru) myndi framfærslukostnaðar fjögurra manna fjölskyldu lækka um 17% eða um 167 þúsund krónur á mánuði. Það munar um minna!
Áhrif lægri vaxta ná langt út yfir húsnæðismarkaðinn
Ljóst er að lægri vextir myndu hafa víðtæk áhrif á annan framfærslukostnað heimilanna
Sem dæmi má nefna að matvælaverð myndi lækka þar sem fjármagnskostnaður matvælaframleiðenda, innflutningsfyrirtækja og smásöluverslunarinnar myndi lækka.
Orkureikningar heimilanna myndu lækka vegna hagkvæmari fjármögnunar orkufyrirtækjanna og eldsneytissalanna.
Bygging húsnæðis yrði ódýrara með ódýrari fjármögnun framkvæmda.
Ríkissjóður gæti lækkað sinn vaxtakostnað um allt að 100 milljarða króna á ári sem gæti leitt til lægri skatta hjá okkur eða löngu tímabærs afgangs í ríkisrekstrinum.
Það er því ljóst að krónan er stærsti áhrifavaldur hás verðlags á Íslandi.
Eigum við þetta kannski bara skilið?
Í þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst benti Já hreyfingin á þá staðreynd að með upptöku evru og lækkun vaxta í kjölfarið myndi framfærslukostnaður heimilanna og fjármögnunarkostnaður fyrirtækja og hins opinbera lækka svo um munar.
En því miður kaus meirihluti þjóðarinnar að loka augunum fyrir þessum valkosti. Hann vildi ekki einu sinni kanna hvort þjóðinni stæði stöðugur, alþjóðlegur gjaldmiðill til boða.
Þess vegna munum við öll, í boði Nei hreyfingarinnar fá að þjást undir vaxtaokri krónunnar næstu árin þar til við tökum upp evru!
En það er meira sem gerir Ísland að einu dýrasta landi heims
Í landinu okkar eru 61 sveitarfélag með að meðaltali 6.600 íbúa. Í Danmörku eru þau 98 með um 60 þúsund íbúa að meðaltali eða um 10 sinnum fleiri en á Íslandi.
Sameining sveitarfélaga í til dæmis 20 myndi þýða fækkun sveitarstjórna um 41 og færri sjálfstæð og dýr stjórnsýslukerfi. Gera má ráð fyrir að slík sameining myndi spara allt að 3 milljarða króna á ári samkvæmt áætlun frá ChatGPT. Sá sparnaður rynni beint í vasa okkar skattgreiðenda.
Í landinu okkar eru um 150 stéttarfélög. Í Finnlandi starfa um 80 stéttarfélög með um 70 þúsund manns í hverju félagi. Hér eru um 2500 manns í hverju stéttarfélagi að meðaltali.
Við greiðum rekstrarkostnað þeirra með aðildargjöldum okkar sem nema um 21 milljarði króna á ári.
Með sameiningu stéttarfélaga væri hægt að spara verulegar fjárhæðir og skila þeim fjármunum til félagsmanna.
Sem dæmi um vel heppnaða hagræðingu má nefna að lífeyrissjóðum á Íslandi hefur verið fækkað um 80% frá árinu 1980 eða úr 96 í 19. Með því hafa milljarðar sparast sem hafa gert landið okkar samkeppnishæfara með betri nýtingu fjármuna.
Gerum Ísland ódýrara!
Dæmin hér að ofan sýna að það er hægt að hagræða víða á Íslandi.
Ef landið okkar væri fyrirtæki ( Ísland ehf. ) væri fyrir löngu búið að ráðast í þessar hagræðingaraðgerðir.
En það þarf meira til. Skoðum það nánar.
Nýlega kom fram að framlegð á hvern lítra eldsneytis olíufélaganna á Íslandi er allt að fimm sinnum hærri en í Svíþjóð. Vaxtamunur bankanna er meiri en í nágrannalöndum okkar og tryggingakostnaður bifreiða er allt að þrefaldur miðað við löndin í kringum okkur.
Nýlega var ég á Spáni og sá verðmiða á rúnnstykki í bakaríi sem kostaði 29 cent eða um 41 krónu. Sama rúnnstykki er auglýst í bakaríi á Íslandi á um 300 krónur eða sjö sinnum meira.
Í verslun í nágrenninu sá ég eins lítra ginflösku á 17 evrur eða um 2350 krónur. Sama flaska kostar 10.850 krónur hjá ÁTVR eða næstum 5 sinnum meira en á Spáni.
Öll verðum við vör við hið háa verðlag hjá okkur þegar við ferðumst erlendis. Við sjáum það einnig á greiðslukortareikningi okkar að bankarnir taka allt að 5% gengisálag þegar við greiðum þá.
Það þarf þjóðarátak í lækkun verðlags á Íslandi
Tökum höndum saman og vinnum öll að lækkun rekstrarkostnaðar heimila, fyrirtækja og hins opinbera á Íslandi án þess að skerða grunnþjónustu og lífskjör
Meginmarkmiðið væri að lækka húsnæðiskostnað, matvælaverð, vexti, skatta og kostnað við opinbera stjórnsýslu.
Aðalatriðin og sjö forgangsverkefni eru þessi að mínu mati:
- Lækka vexti með aðild að ESB og upptöku evru.
- Keyra verðbólguna niður með aðhaldi og hallalausum rekstri ríkisins og sveitarfélaga.
- Fækka og sameina ríkisstofnanir, sveitarfélög og stéttarfélög eins og lífeyrissjóðirnir hafa gert..
- Lækka matarverð, tryggingar, lán og eldsneyti með aukinni erlendri samkeppni.
- Lækka skatta og álögur með aukinni framleiðni og kostnaðaraðhaldi hjá hinu opinbera.
- Lækka verð á nauðsynjavörum með afnámi innflutningstolla og lækkun gjalda.
- Efla atvinnulífið með minni skriffinnsku og hvatningu til nýsköpunar.
Að mínu mati gætu ofangreindar ráðstafanir lækkað framfærslukostnað heimilanna um allt að 20%.
Það myndi gera landið okkar samkeppnishæfara og betra land til á búa í og ferðast til.
En byrjum á því að leggja niður minnsta og dýrasta gjaldmilil í heiminum og stefnum á upptöku evru.