Eyjan

Ole Anton Bieltvedt: Semjum meðan við getum enn gert góðan samning

Mynd
Ole Anton Bieltvedt.

„Hver við erum og hver viljum við vera, eða verða, er spurningin. Við erum evrópsk. Ísland er hluti af Evrópu. Ekki bara landfræðilega, heldur líka mannfræði- og menningarlega.

Miklar breytingar fara í hönd. Kannski meiri og örari en nokkurn tíma áður í mannkynssögunni. Við verðum að tryggja okkur öruggt heimaból. Í Evrópu í ESB. Evrópusambandið er okkar einasta og stærsta heimaból. Aðeins sem ESB-meðlimur, fastur Evrópuaðili, getum við tryggt framtíð okkar eftir föngum. Fylgja því bara kostir? Nei, auðvitað ekki, en grunnþörfin er skýr og afdráttarlaus. Við eigum hvergi annars staðar heima. Við erum Evrópubúar og verðum að negla þá stöðu niður.“

Þetta skrifar Ole Anton Bieltvedt í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag. Í greininni fer hann m.a. yfir það hve litlu munaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna. Þar hafi andstæðingar ESB gengið miklu harðar fram en þeir sem vildu ljúka viðræðum. Vopnaburður ESB-andstæðinga hafi hins vegar verið einfaldur. Færri en tíu manns hafi afvegaleitt fólk og haft áhrif á afstöðu þúsunda. Rök þeirra hafi hins vegar verið léleg og haft lítið gildi, nema fullyrðing þeirra um að við yrðum að gefa eftir í fiskveiðilögsögunni.

„Það gátum við ekki og gerum við ekki. ESB mun fallast á þá lausn. Þeir skilja að 200 mílna lögsaga sjávar er fyrir Ísland það sama og lögsaga landsins sjálfs. Við erum fiskveiðiþjóð, ein sú stærsta í Evrópu, þrátt fyrir smæð og fámenni. Við veiðum fiskinn ekki bara fyrir okkur, heldur fyrir hundruð þúsunda Evrópubúa. Tryggjum þeim öllum heilnæman og náttúrulegan mat í reglulegt fæði. Við fiskum og stjórnum veiðimennskunni með skipulagi og aga. Við verjum þá stofna sem við höfum og tryggjum afkomu þeirra og framtíð. Þessa einingu má ekki trufla.

Það var sérstaklega sorglegt með stóran hluta unga fólksins, sem hefði átt að skilja verðgildi fullrar Evrópusameiningar og Evrópuverndar, auk hinna gífurlegu möguleika fyrir menn og málefni sem full aðild hefði veitt okkur.“

Þá bendir Ole Anton á að ESB hefur gert umfangsmikla fríverslunarsamninga við á þriðja milljarð manna, um þriðjung mannkyns. Þá eru níu ríki í biðstöðu eftir að fá að semja en fá það ekki enn vegna þess að þau uppfylla ekki skilyrðin sem við Íslendingar uppfyllum.

Þá spáir Ole Anton því að Bretland semji sig aftur inn í ESB á næstu árum en muni þó ekki njóta sömu góðu sérkjaranna og það naut fyrir BREXIT.

„Verðum fastur og óhagganlegur hluti af þessu mikla veldi meðan aðstæður leyfa okkur enn að gera góðan og gildan samning fyrir okkur sjálf. 200 mílur!“ er niðurlag greinar Ole Antons.