Þegar lögin um að umsóknir um sjókvíaeldi við Ísland yrðu að fara í gegnum útboðsferli, en ekki bara úthlutað á færibandi eins og áður, tóku gildi var sagt að þeir sem væru þegar með umsóknir inni áður en lögin tækju gildi yrðu í gamla kerfinu og þyrftu ekki að fara í útboð. Síðan settist einhver í ráðuneytinu ofan á lögin og beðið var með birtingu í nokkra daga. Skýrslur voru dagsettar aftur í tímann og passað upp á að sem flestar umsóknir næðu inn áður en lögin voru birt. Ólafur Arnarson ræðir við Katrínu Oddsdóttur, lögmann og umhverfisverndarsinna, í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
„Almennt er það þannig að auðvitað á ekki sama manneskja að hafa afskipti að máli á tveimur minnsta stjórnsýslustigum og þetta er hin almenna vanhæfisreglan. Svo líka verðum við að átta okkur á því jafnvel þó að þetta myndi einhvern veginn sleppa í gegnum það nálarauga sem vanhæfisreglurnar eru þá er stóra reglan sem öll stjórnsýslulögin og stjórnsýsluréttur grundvallast á sú að réttlætinu þarf ekki bara aðeins að vera fullnægt, því þarf líka að líta út fyrir að vera fullnægt.
Og þetta að finna þetta nafn allt í einu í skjölum málsins kominn hinum megin við borðið og farinn að skipta sér af þessu þar, þetta lætur mér ekki líða eins og ég geti treyst þessari niðurstöðu. Ég verð bara að fá að viðurkenna það hér fullum fetum að þetta lætur mér líða eins og ég geti ekki treyst þessari niðurstöðu. Svo eru það fjölmargir aðrir ágallar sem bætast við á henni sem gera það að verkum að ég treysti henni bara alls ekki en þetta er alveg til þess fallið að auka verulega vantrú manns á því að það sé verið að vinna af fullum fagleika og fullum heilindum að því að veita þessu leyfi.
Þarna er ég ekki að halla á einstaka starfsmenn eða segja að þau séu spillt eða það sé búið að múta þeim eða neitt slíkt. Ég segi bara, það er eins og þú sagðir áðan, ákveðið bias, þar sem það er eins og þú sért að renna boltann niður brekku og hann er að renna alltaf í áttina að já-inu. Hann rennur aldrei í áttina að nei-inu.“
Nei, af því það er uppi á hæðinni.
„Já, það er eins og það sé upp á við. En lögin segja bara: Ef þessi gögn liggja ekki fyrir þá segir maður: Nei. Svo sýnir maður þeim: Heyrðu, þessi gögn lágu ekki fyrir. Já, en við gáfum þeim séns á að koma með ný og já, það eru ekki gögnin sem áttu að liggja fyrir. Já, en þú veist, og þá er þetta bara orðið svona eins og einhvers konar meðvirkt samband, eitthvað foreldrasamband þar sem það situr einhver grjótfúll og starir á þig með dæmandi augnaráði fyrir aftan eitthvað mahóní skrifborð og það eina sem þú vilt gera er einhvern veginn að finna leið til að þóknast honum.
„Ég er ekki að segja að fólk sé að gera eitthvað rangt en þetta er það sem að ég sé horfandi utan frá á allar þessar leyfisveitingar, á þetta skipulag og á það hvernig ráðherrarnir telja sig algjörlega valdalausa gagnvart því að hafa eitthvað um þetta að segja . Þetta er það sem ég sé.“
Þegar ég hlusta á þig þá einhvern veginn sannfærist ég um að þessari ákvörðun hljóti að verða snúið við.
„Já, gott að heyra. Ég gleðst yfir því. Við vonum það auðvitað. Við skrifuðum nú tvær tuttugu og eitthvað blaðsíðna kærur og skiluðum inn núna í vikunni gagnvart þessu máli. Við unnum líka núna í vikunni mjög mikilvægan sigur þegar loksins HMS, Húsnæðis- og mannvirkja- og Skipulagsstofnun féllst á það að þessir blessuðu sjávarjarðareigendur mínir ættu aðild að byggingarleyfisumsókninni. Þetta tók tvær kærur til úrskurðarnefndar um umhverfis- og auðlindamál til að fá viðurkennt en mér finnst þetta bara vera augljóst. Þetta er alveg eins og með garðinn þinn og kjúklingabúið.
Ef ég myndi þar að auki segja: Já, ég er búin að heimila hérna einhvers konar möguleika á kjúklingabúið að fara í garðinn þinn en þú mátt ekkert hafa um þetta að segja heldur. Þú veist, nú ætla ég að fara að gera alls konar byggingarleyfi hérna við hliðina á þér og ég skal passa mig að fara ekki alveg yfir girðinguna. Heyrðu, halló, það skiptir bara verulegu máli fyrir þig hvort það myndast kjúklingabú í næsta garði eða ekki.“
Ég myndi nú ætla það. Mig langar aðeins til að koma inn á landeldið. Nú hefur verið talsverð uppbygging í landeldi. Landeldi og sjókvíaeldi, það er mikill munur á þessu.
Mjög, mjög mikill munur. Og ég meina, fyrir mér sem ætla nú að reyna að vera pínu raunsæ þó mér finnist svona þauleldi ekkert ofboðslega falleg hugsun gagnvart dýrunum þá held ég að landeldi sé bara, ég ætla ekki að segja neitt slæmt um landeldi. Mér finnst bara dásamlegt að þarna sé fólk að reyna að gera þessa sömu hluti og þetta mengandi rugl sem sjókvíaeldi er vel. En taktu eftir því hvað það er ótrúlega dýrt og það er engin tilviljun að þeir séu að bölsótast þetta áfram endalaust að reyna að troða þessu ofan í hvern fjörð. Þetta er svo ódýrt, þú færð fjörðinn ókeypis. Í Noregi þarftu að borga milljarða fyrir þessi stæði en hér kosta þau næstum ekkert.“
Já, hvernig stendur á því?
„Akkúrat. Það er út af því að þegar að lögin tóku gildi þar sem kveðið var á um það að þetta yrði að fara í útboð þá var sagt að þeir sem ættu umsókn inni myndu samt fá að fara eftir gömlu lögunum. Fólk átti einhvers konar umsóknir og beðið var með birtingu laganna, einhver gaur uppi í ráðuneyti sat á þeim í einhverja daga og sumar skýrslur voru dagsettar aftur í tímann þannig að það lá eins og þær hefðu legið fyrir birtingu laganna.
Þetta var alveg svakalegt. En fyrir vikið þá hafa þessi félög komist upp með það að þurfa ekki að fara í útboð og ég held að Norðmennirnir séu hlæjandi alla leið í bankann yfir því að vera að koma hérna með sjókvíaeldi til Íslands, ókeypis sko. Ég væri til í það að einhver norskur fjölmiðlamaður myndi fjalla um þetta mál af því að ég væri til í það að mæður þessara kauphallardrengja þarna í Noregi sem eru að bera ábyrgð á þessu myndu frétta af því hvað þeir eru að gera á Íslandi.“
Já. En þetta er náttúrlega alveg ótrúlegt eins og þú ert að lýsa þessu, þetta hljómar eins og spilling.
„Já, þetta hljómar eins og spilling og þetta labbar eins og spilling og þetta kvakar eins og spilling en þetta er einhvers konar íslensk forheimskun samt. Ég vil ekki nota orðið spilling því það gefur í skyn að fólk hafi glæpsamlegan ásetning.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.