Eyjan

Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig

Mynd

Lykilstarfsmenn fyrirtækja og samtaka í sjávarútvegi fara þaðan beint til starfa í ráðuneyti og stofnunum sem koma að lagasetningu og leyfisveitingum. Þá fer fólk á milli stjórnsýslustiga og vinnur að sama málinu á tveimur stjórnsýslustigum. Þarna er ítrekað vanhæfi og vanhæfi veldur því að ákvörðun verður ógildanleg. Handarbaksvinnubrögð leiddu til þess að sjókvíareldi er heimilað inn á svæði sem er í einkaeigu landeigenda í Seyðisfirði. Þetta er eins og ef einhver tilkynnti manni að búið væri að heimila kjúklingabú inni í garðinum hjá manni. Katrín Oddsdóttir, lögmaður og umhverfisverndarsinni, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Eins og þú lýsir þessu og það er nú tilfinningin sem maður hefur fyrir þessu. þá hafi verið svona innbyggt í kerfið og í stofnanirnar ákveðinn stimpilkúltúr; að stimpla þegar kemur að sjókvíaeldi. En þú ert að segja, ef ég skil þig rétt, að það sé alls ekki of seint að stöðva þetta.

„Nei, nei, bara í fyrsta lagi veit það hver maður sem virkilega vill vita það að ef það er pólitískur vilji til að taka ákvörðun, hver svo sem ákvörðun er, þá er það hægt. Og ég get nefnt lög eins og lög um vernd Breiðafjarðar sem eru bara ákaflega falleg lög sem voru búin til 1995 til að vernda þessa einstöku byggð og menningarsögu og náttúru sem Breiðafjörðurinn geymir.

Það væri að sjálfsögðu hægt að setja eins lög um vernd Seyðisfjarðar og grundvallað það á þessari miklu sérstöðu sem þetta bæjarfélag hefur. En það eru líka bara til eðlilegri og einfaldari leiðir sem eru þær að hreinlega fara eftir þeim lögum sem eru þó þegar í gildi varðandi þetta mál og þá þarf að byrja á því að sjá og horfast í augu við það að þetta skipulag sem allt þetta bull byggir á er mjög, mjög, mjög gallað.

Og ég ætla bara að nefna nokkur dæmi í fyrsta lagi. Það kemur í ljós núna loksins þegar búið er að mæla netlög í Seyðisfirði og netlög eru í raun og veru hversu langt þú sem landeigandi sjávarjarðar átt út í sjó, er almennt svona 115 metrar og það er bara svona þín jörð, hún nær svo langt. Það er til veiðiréttur og hann er bara þinn veiðiréttur og svo framvegis. Þegar netlögin voru loksins mæld í Seyðisfirði eftir að skipulagið var gert, og bara aftur, af hverju ekki á undan? Þá kemur í ljós að nýtingarsvæðin til sjókvíaeldis eru inni á þessum netlögum. Þannig að þetta er eins og ég myndi segja, ég ætla bara að láta þig vita, Ólafur minn, ég er búin að leyfa hérna kjúklingabú inni í garðinum þínum, þú veist. Og bara, það er leitt frá því að segja en ég mun nú sennilega byggja það aðeins fyrir utan girðinguna, ekki hafa áhyggjur. Svona bara vinnur eru ekki eðlilegt fólk.

Í öðru lagi þá kom vanhæfur starfsmaður að þessu skipulagi sem fólst í því að það var lykilstarfsmaður hjá Skipulagsstofnun sem var að vinna í skipulaginu alveg í tvö ár eða eitthvað og bara svona mjög dugleg í því. En síðan fékk hún að fara yfir í innviðaráðuneytið í einhvers konar lánsóperustarf og þar kom hún líka að því að staðfesta skipulagið. Og umboðsmaður Alþingis sagði fyrir tveimur árum: Þetta er vanhæf manneskja og almennt í lögfræðinni er það alltaf þannig að vanhæfni veldur því að ákvörðun er ógildanleg.

Hins vegar fékk bara þáverandi skipulagsráðherra sem var Inga Sæland að skoða þetta einhvern veginn og segja bara nei, nei. Við teljum þetta hafi ekki haft mikil áhrif, okkar mat, eitthvað svona og þetta bara, nei, nei, skipulagið bara heldur sér. Við erum búin að fara á fundi með Ingu, Svandísi, Ragnari, Hönnu Katrínu, Jóhanni Páli og náttúrlega fjölmörgum öðrum ráðherrum og benda þeim á bara gagnvart þeirra persónulegu ábyrgð sem ráðherra málaflokkanna sinna, hversu mikil ábyrgð er á þeirra herðum að láta ekki svona fyrirsjáanleg stórslys sem ég held að verði niðurstaðan ef að sjókvíaeldi verður leyft í Seyðisfirði. Ég held við endum á því að sjá rosalegt umhverfisslys.“

Þarna kemurðu inn á þetta sem við vorum að tala um áðan. Það er svona þessi innbyggði bias í stofnunum og ráðuneytum í þágu þessara stóru fyrirtækja sem eru að byggja upp þetta sjókvíaeldi.

„Ég tel að það sé því miður bara staðreyndin og sannleikurinn.“

Ráðherrarnir, ég þekki það alveg frá gamalli tíð að ráðherrar þeir eru háðir infrastrúktúrnum eða innviðunum í sínu ráðuneyti og þeirri þekkingu sem þar er. Og það þýðir að embættismenn, ókjörnir embættismenn, og nú er ég ekkert að segja þetta til að lasta þá. En þeir hafa ekki verið kjörnir en þeir fara með ansi mikið vald af því það eru þeir sem ráðleggja ráðherranum.

„Já, þetta er alveg hárrétt og þetta er það sem ég held að sé nákvæmlega vandamálið eins og til dæmis í atvinnuvegaráðuneytinu. Þar held ég að því miður sé komið of mikið af fólki sem er með bakgrunn, þú getur nefnt núverandi ráðuneytisstjóra sem var framkvæmdastjóri SFS. Þetta er bara mjög óheppileg blanda af hagsmunum.

Ég er ekki að segja að hann gangi erinda SFS í dag. En hafir þú unnið sem framkvæmdastjóri slíkra lobbísamtaka þá held ég að það sé ekki mjög gott að þú farir síðan beint inn og sért allt í einu farinn að halda pennanum í lagafrumvarpsgerðinni, það er bara ekki gott. Og annað dæmi, nú komumst við að því þegar við erum að kæra þessa ákvörðun sem var að koma frá MAST, rekstrarleyfið, við fórum að skoða gögnin sem við fáum náttúrlega seint og um síðir og höfum bara mánuð til að kæra þetta en það liðu þarna 11 dagar áður en við fáum gögnin og þá er þetta eitthvert gríðarlegt magn af skjölum.

Þá sjáum við eitthvað nafn sem við könnumst við? Bíddu, þessi. Ha? Það er aðalstarfsmaðurinn hjá Kaldvík sem vann þar alveg árum saman við að koma þessari umsókn í gegn. Hann er núna farinn að vinna hjá MAST og fær að taka einhvers konar þátt í þessari málsmeðferð þar.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.