Sjónvarpsþátturinn Højskolen á TV2 í Danmörku nýtur mikilla vinsælda en þar mætast kunnir stjórnmálamenn og nemendur úr æðri skólum og ræða saman ýmis helstu álitamál samtímans. Fyrir rúmri viku var meðal gesta þáttarins ung kona að nafni Afrah al-Jabouri sem verið hefur áberandi á samfélagsmiðlinum TikTok undanfarið en hún er islamskrar trúar og hylur hár sitt með slæðu. Berlingske greindi frá því nýverið að al-Jabouri hefði ítrekað lýst yfir stuðningi við klerkastjórnina í Teheran og aðspurð neitaði hún að svara því hvort sér þætti húðstrýking sanngjörn refsing fyrir framhjáhald.
Þessi mál voru gerð að umtalsefni í forystugrein Berlingske í vikunni sem leið sem og sú mótsögn að umrædd kona (og fleiri Múhameðstrúarmenn búsettir í Danmörku) vísuðu til danskra gilda, líkt og umburðarlyndis, til að verja afstöðu sem gengi í berhögg við dönsk gildi. Þessi mótsagnakennda afstaða til umburðarlyndis nýtur stuðnings sumra róttækra vinstrimanna — þeirra á meðal þingmanns Alternative, Önnu Bjerre, sem einmitt kom fram í áðurnefndum sjónvarpsþætti, en hún vék þar talinu að þeim fordómum sem minnihlutahópar mættu sæta. En höfundur forystugreinar Berlingske bendir á að gagnrýnin á Afrah al-Jabouri hafi ekkert með fordóma gegn minnihlutahópum að gera. Hún sé fædd og uppalinn í Danmörku en aðhyllist sjónarmið sem séu meira til samræmis við málflutning klerkanna í Íran en dönsk grunngildi. Hér vakni grundvallarspurningar um mörk umburðarlyndis — sér í lagi þegar fólk er uppalið í vestrænu lýðræðisríki en stefni að því leynt og ljóst að kollvarpa þeim gildum sem samfélagið byggir á. Greinarhöfundur vísar í þessu sambandi til frægrar „umburðarlyndisþversagnar“ heimspekingsins Karls Popper sem taldi óheft umburðarlyndi leiða til þess að umburðarlyndið sjálft hyrfi. Opin og lýðræðisleg þjóðfélög yrðu að verja sig með því að takmarka umburðarlyndi gagnvart þeim sem beinlínis skorti umburðarlyndi.
Höfundur greinarinnar vísar til þess að vestræn gildi hafi sætt hörðum árásum undanfarin ár frá stjórnvöldum í ýmsum einræðisríkjum en líka frá stórum hópum innflytjenda frá löndum sem í greininni eru kölluð „MENAPT“ en þá er vísað til Austurlanda nær, norðanverðrar Afríku, Pakistans og Tyrklands. Ég hef áður fjallað um það hér á þessum vettvangi að hvort tveggja í Frakklandi og Þýskalandi hafa stjórnmálaöfl fólks frá þessum löndum bundist vanheilögu bandalagi með róttækum vinstriflokkum gegn kapitalisma og borgaralegum sjónarmiðum. Í Frakklandi er þessi stefna nefnd islamogauchisme.
Hvað er vestræn menning?
Hér vakna ýmsar grundvallarspurningar um verndun vestrænna gilda. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, gerði þau að megininntaki magnaðs ávarps sem hann flutti í Aþenu fyrir rúmri viku — degi eftir að hann hafði fundað með íslenskum ráðamönnum. Ræðan var flutt í ljósaskiptunum með Akrópólishæð í bakgrunni. Hún hófst með þeim orðum að sýnilegar mannvistarleifar væru gjarnan minnisvarðar um sögu sem runnið hefði sitt skeið en öðru máli gegndi um þær minjar sem sæjust í bakgrunni. Aþenska lýðræðið hefði frá því í fornöld verið stjórnmálamönnum, listamönnum og heimspekingum innblástur. Því næst rifjaði hann upp árás Persa á borgina 480 fyrir Krists burð en borgin hefði risið úr öskustónni og synir Aþenu og síðar Rómar borið vestræna siðmenningu til endimarka jarðarinnar. Í sjálfri Washingtonborg sé Grikkland hið forna hvarvetna nærri með súlnagöngum og hvolfþökum. Hann minnti á að stofnendur Bandaríkja Ameríku voru gagnmenntaðir í klassískum fræðum og sumir hverjir miklir grísku- og latínugarpar. Stjórnskipulag Bandaríkja Ameríku sem staðið hefur í fjórðung úr þúsöld er innblásið af stjórnskipunarhugmyndum fornaldar.
Rubio nefndi að í Aþenu hinni fornu hafi þegar verið komin fram öll grundvallareinkenni vestrænnar siðmenningar og gat þar sérstaklega sterkrar einstaklingshyggju og óþrjótandi metnaðar og hugvitssemi — sífellda útþrá sem birtist okkur í landafundum og aðdáun á dirfsku. Af sama meiði sé óseðjandi löngun til að skilja heiminn, rannsaka dýpstu leyndardóma náttúrunnar og ystu myrkur geimsins. Annað teikn vestrænnar menningar sé andúð á höftum og helsi og löngun til að fá leystar þær þrautir sem talið er ómögulegt að leysa. Fyrir okkur vestrænum mönnum sé það að þekkja þessa eiginleika að þekkja sig sjálfan. Það hafi verið þessi þekkingarþrá og sífellda útrás sem knúið hafi áfram vestræna menningu og skilið hana frá öðrum menningarheimum þar sem stöðugleiki og lífsbjörgin ein var víðast hvar höfuðdyggð.
Vogun vinnur
Í forngrískri menningu var boðað að hámarka skyldi árangur á öllum sviðum þjóðlífsins, það væri beinlínis forsendan fyrir tilvist mannsins. Menn skyldu keppa að því að verða bestir, sterkastir, fegurstir — teygja sig sífellt nær fullkomnun.
Á okkar tímum berðust margir fyrir heimi hins algera öryggis en við þær aðstæður birtist okkur hvorki vegsemd sigursins né smán ósigursins. Á stundum virtist framtíðarsýnin hreint ekki frýnileg og svo að sjá sem Vesturlönd væru að koðna í meðalmennskunni. Hér væri okkur hollt að horfa til Grikklands hins forna. Þeir hafi talað um thumos — hina brennandi ástríðu, lífsorku og stolt (thumos er einmitt einkunn sem Hómer gefur Akkilesi í Ilíonskviðu, sem talin var fræknastur allra fornkappa). Án þessa glötuðu þjóðir viljanum til að berjast, viljanum til ná lengra, viljanum til að halda lífi. Rubio hefði hér getað vísað til áðurnefnds Karls Popper sem sagði að við skipulagningu þjóðfélags yrði að miða við frelsið en ekki eingöngu öryggið — þó ekki væri nema af þeirri ástæðu að frelsið eitt gæti tryggt öryggið.
Rubio gerði að umtalsefni að vestrænir menn skammist sín oft fyrir það sem einmitt einkenndi þeirra eigin menningarheim og greindi þá frá annarri siðmenningu. Velmegunin hefði á seinni árum orðið kveikja að sektarkennd — menn tryðu því jafnvel ekki að þeir verðskulduðu þá stöðu sem þeir nytu. Samhliða hefði ættjarðarást orðið skammaryrði og hvarvetna á Vesturlöndum gengið hart fram í fordæmingu á eigin sögu og menningu — börnum jafnvel innrætt að þau skyldu skammast sín fyrir landið sem þau ættu að erfa. Á sama tíma hefðu ríki á Vesturlöndum galopnað landamæri sín fyrir fólki frá framandi menningarheimum, flutt framleiðslugreinar til annarra heimshorna og látið heri sína veslast upp. Æ fleiri ríki hefðu útvistað fullveldi sínu til alþjóðlegra skrifræðisbákna — langt utan seilingar borgaranna.
Að standa og falla með hugsjónum sínum
Rubio segir okkur standa á krossgötum. Þær ákvarðanir sem teknar verði næsta áratuginn muni móta sögu okkar til langrar framtíðar. Hygðust Vesturlönd halda forystu sinni í heiminum eða láta sér lynda áframhaldandi hnignun og niðurlægingu? Bandaríkjamenn væru staðráðnir í að efla styrk sinn með því að ná aftur stjórn á mikilvægum aðfangakeðjum, efla iðnað og stórauka landvarnir. Þeir stefndu að því að Bandaríkin yrðu áfram forysturíki í tækni og nýsköpun, þar með talið í nýrri sókn geimrannsókna.
En Evrópa yrði að vakna af löngum svefni og tendra á ný þann eld sem kveiktur var í Grikklandi hinu forna. Saman verði Bandaríkin og Evrópa að mynda bandalag sem tekist geti á við ógnir nýrra tíma. Nýgerður samningur Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands sé þar tímanna tákn. Til standi að endurskoða málefni norðurslóða og efla öryggi alls Atlantshafsbandalagsins. En í öllu fjölþjóðlegu samstarfi skyldu menn hafa hugfast að það sé ekkert rangt við að sýna eigin þjóð hollustu umfram allt annað. Þetta hafi Forngrikkir vitað vel. Þeir hafi verið tilbúnir að leggja allt að veði — verðskuldaði málstaðurinn hollustu þeirra. Rubio tekur í þessu sambandi ýmis dæmi, meðal annars af Spartverjunum þrjú hundruð sem háðu úrslitaorrustu við Persana — kusu heldur að berjast til síðasta blóðdropa en að hörfa. Hann vísar enn fremur til lokaorða sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna, þar sem segir að til stuðnings yfirlýsingunni „í trausti þess að njóta verndar hinnar guðlegu forsjónar, leggjum vér líf vort, eigur vorar og heilagan heiður að veði hver fyrir annan“.
Andstæðu þessa megi sjá hjá klerkastjórninni í Teheran þar sem dauðinn sé vegsamaður en ekki lífið. Börnum sem fremji sjálfsmorðsárásir sé hampað sem þjóðhetjum. Þar verði píslarvættið að markmiði í sjálfu sér (einhver nefndi þetta „dauðakölt“ á vondri íslensku). Þess vegna er verulega ógeðfellt til þess að vita að til sé fólk sem alist hefur upp á Vesturlöndum en vegsamar mannvonsku æðstuklerkanna í Íran. Vestrænar hetjur eru tilbúnar að falla fyrir málstað sinn en ákalla ekki dauðann. Þarna birtist grundvallarmunur á menningarheimum. Í okkar menningu er lífið metið að verðleikum og einmitt þess vegna er það hetjudáð að vilja frekar fórna lífinu en svíkja hugsjónir sínar.