Eyjan

Orðið á götunni: Marta María hittir naglann á höfuðið – hvernig er ástandið heima hjá þeim?

Mynd

Orðið á götunni er að Marta María Winkel í Smartlandi Morgunblaðsins hafi hitt naglann á höfuðið er hún skrifaði um sundferð fimm þingmanna stjórnarandstöðunnar í Selárlaug í Vopnafirði síðla kvölds í lok mikils gleðskapar í nágrenninu.

Þetta var í kjördæmaviku en slíkar vikur eru ætlaðar til þess að þingmenn geti verið í kjördæmum sínum og eflt tengslin við kjósendur. Sundferð þingmannanna var í trássi við lög og Marta María bendir á að þegar unglingar eru staðnir að búðahnupli er ávallt hringt í lögreglu, foreldrar boðaðir á staðinn og að lokinni yfirheyrslu ákveður ákæruvaldið hvort gefin er út ákæra.

Orðið á götunni er að það sé dapurlegt þegar kjörnir fulltrúar, sem hafa það hlutverk að setja löndum sínum lög til að fara eftir, brjóta sjálfir lögin í einhverju fylleríisrugli. Aðspurðir segja hinir brotlega þingmenn ekkert fréttnæmt vera við sundferð þeirra og lýsir það vitanlega átakanlegu skilningsleysi á eigin hlutverki og stöðu.

Marta María bendir réttilega á að svona fylleríssundferð með vinnufélögum í vinnuferð er ekki bara svik við kjósendur og vanvirðing við lögin. Þetta eru líka svik við maka og nánustu ættingja. Flestum myndi bregða við að frétta af maka sínum í nætursundi með vinnufélögum og augaleið gefur að sundfataleigan í lauginni hefur verið lokuð á þessum tíma sólarhrings og varla mætir fólk í vinnutengdan kvöldverð með sundföt í vasanum. Þess vegna er ósköp eðlilegt að spyrja hvernig ástandi sé heima hjá þessum þingmönnum sem hljóta að vera ansi skömmustulegir gagnvart sínum nánustu.

Orðið á götunni er að athyglisvert sé að þingmenn þiggi fljótandi og fastar veitingar í ríkulegu magni eftir að hafa fengið kynningu frá fyrir tæki Sir James Radcliffe, bresks auðkýfings sem er eigandi Selár og fleiri góðra laxveiðiáa fyrir austan og einn stærsti einstaki landeigandi á Íslandi. Ekki þarf að efast um að kræsingarnar hafa verið dýrlegar og eðalvínin streymt úr bikurum ofan í þingmennina. Enda breyttist veislan í fyllerí og gleðskapurinn í galskap.

Orðið á götunni er að Sir James Radcliffe sé ekki með íslenskan ríkisborgararétt og þar af leiðandi ekki kosningarétt og því erfitt að sjá góða ástæðu fyrir þingmenn að leggja lag sitt við hann eða þiggja greiða úr hans hendi í kjördæmaviku sem á að verja með kjósendum.

Orðið á götunni er að enn fremur sé það athyglisvert að allir þingmennirnir sem voru staðnir að því að stelast í laugina eru stjórnarandstæðingar, tveir Miðflokksmenn, þar með talinn formaðurinn, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, tveir Framsóknarmenn, þar með talin fyrrverandi formaður þingflokksins, Ingibjörg Isaksen, og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Jens Garðar Helgason. Allt hefur þetta fólk varað mjög við erlendum áhrifum á Íslandi, lofsamað allt sem íslenskt er og lagt sérstaka áherslu á að við getum allt sjálf.