Eyjan

Orðið á götunni: Alþingisvaktinni hleypt af stokkunum?

Mynd

Næturvaktin, Dagvaktin og Fangavaktin slóu í gegn á sínum tíma með ódauðlega persónu Georgs Bjarnfreðarsonar í forgrunni sem Jón Gnarr gæddi ævarandi lífi. Er verið að þreifa fyrir sér með nýja þáttaröð, Alþingisvaktina? Erfitt var að ýta þeirri hugsun frá sér eftir umfjöllun fjölmiðla um upphlaup þingmannsins Jóns Gnarr þegar hann stal fyrirsögnum fjölmiðla á fimmtudaginn og varð fyrsta frétt RÚV í 10 mínútur þó svo að allt léki á reiðiskjálfi úti í heimi, fréttir af stórtjónum vegna óveðurs á Íslandi og að þing ASÍ, stærstu almannasamtaka Íslands, logaði í illdeilum. Fréttir af öllu þessu viku fyrir fyrir ákvörðun Jóns Gnarr um að yfirgefa þingflokk Viðreisnar en halda samt áfram stuðningi við flokkinn og ríkisstjórnina.

Orðið á götunni er að fjölmiðlar hafi hlaupið fram úr sér vegna þessa enda var hér ekki um heimssögulegan viðburð að ræða eins og ætla hefði mátt af umrótinu á fjölmiðlum Sýnar og RÚV þennan dag. Engum dylst að Jón Gnarr er þjóðþekktur maður, einn besti leikari landsins, fyrrum borgarstjóri og forsetaframbjóðandi.

Þegar mesta umrótinu lauk fóru menn að velta fyrir sér innihaldi þess sem gerðist. Jón Gnarr sagði sig úr þingflokki Viðreisnar en gegnir samt áfram setu í nokkrum stjórnum og nefndum studdur af flokknum og nýtur sérfræðiþjónustu í þinginu á vegum Viðreisnar. Hann hefur gert skriflegan samning við Viðreisn um stuðning við flokkinn og ríkisstjórnina á Alþingi. Þetta skref Jóns Gnarr mun því ekki hafa nein áhrif á styrk og stöðu ríkisstjórnarinnar. Það er kjarni málsins.

Fólk verður samt að átta sig á því að Jón Gnarr er stór persóna í íslensku samfélagi og það er erfitt fyrir stóra einstaklinga að finna sig á þingi ef þeir fá ekki verðug viðfangsefni að eigin mati. Menn verða að átta sig á því að Jón Gnarr gegndi stöðu vinsæls borgarstjóra árin 2010 til 2014, allt kjörtímabilið, en á kjörtímabilinu þar á undan höfðu fjórir borgarstjórar komið við sögu. Jón Gnarr var borgarstjóri í fjögur ár. Athyglisvert er að enginn eftirtalinna borgarstjóra hefur setið á þeim valdastóli eins lengi og Jón: Markús Örn Antonsson, Árni Sigfússon, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Þórólfur Árnason, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Ólafur Magnússon, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Einar Þorsteinsson, Heiða Björk Hilmisdóttir og Hildur Björnsdóttir. Jón hefur vinningin yfir 10 borgarstjóra frá síðasta aldarþriðjungi. Það er ekki lítið afrek.

Þá er þess að minnast að þegar Jón Gnarr fór í forsetaframboð árið 2024 lenti hann í fjórða sæti með meira en 10 prósent fylgi. Það var sama sæti og Davíð Oddsson hreppti átta árum fyrr þegar þessi fyrrum valdamikli forsætisráðherra bauð sig fram í forsetakjöri.

Orðið á götunni er að það sé algengt að þjóðþekktir stjórnmálamenn sem taka sæti á þingi, hér á landi sem erlendis, lendi stundum í vandræðum með að finna sig í umhverfi þar sem þeir ráða ekki för og eru ekki aðalpersónur eins og þeir hafa verið úti í þjóðfélaginu. Það getur valdið óróa og jafnvel vandræðum ef ekki tekst að finna stórum persónunum verðug verkefni þegar til þingsetu kemur. Þegar Jón Gnarr hefur unnið í stórum hópum að gerð sjónvarpsþátta eða kvikmynda hefur hann jafnan verið í aðalhlutverki og þá hefur allt gengið vel. Nú er hann frekar „starfsmaður á plani“ og það getur valdið vissri ólund.

Fróðlegt er að rifja upp þann vanda sem Sjálfstæðisflokkurinn lenti í eftir stórsigur í Alþingiskosningunum árið 1974. Þá hlaut flokkurinn 42,7 prósent atkvæða og fékk 25 þingmenn kjörna. Meðal þeirra voru þjóðþekktir menn sem voru vanir því að vera kóngar í ríkjum sínum. Jón Sólnes hafði verið ótvíræður leiðtogi á Akureyri, Albert Guðmundsson var ávallt stórstjarna, innan vallar og utan, og svo voru það héraðshöfðingjar á borð við Pálma Jónsson og Friðjón Þórðarson. Síðar átti Jón Sólnes eftir að fara í sérframboð og Albert, Friðjón, Pálmi og reyndar Eggert Haukdal gerðu Gunnari Thoroddsen kleift að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn árið 1980 og mynda ríkisstjórn fram hjá formanni og meirihluta þingflokksins. Allir voru þeir þjóðþekktir, stórar persónur sem höfðu ekki sætt sig við hlutskipti sitt á Alþingi fram til þess tíma.

Orðið á götunni er að það sé vandi að vera stór persóna á Alþingi, nema viðfangsefnin séu einnig stór. Því er að sumu leyti hægt að skilja ólund Jóns Gnarr vegna stöðu hans þar. Vitanlega er ekki viðunandi fyrir svo mikilvægan mann að vera eins konar „starfsmaður á plani“, óbreyttur þingmaður, rétt eins og til dæmis Klausturdónarnir Bergþór Ólason og Karl Gauti, Diljá Mist, Stefán Vagn, Jens Garðar, Sigríður Andersen, Nanna Margrét og Jón Zimsen. Það er vitanlega ekkert gleðiefni að vera í slíkum hópi og von að spurt sé: Hvað er ég að gera hér?

Svo gæti farið að upphlaup Jóns Gnarr geti leitt til góðs. Hann gerði að umtalsefni að honum þætti vanta upp á að núverandi ríkisstjórn hafi sett málefni barna og unglinga í vanda framar á forgangslista. Útspil Jóns gæti haft það í för með sér að þessi mikilvægu mál fengju forgang og verðskuldaða athygli. Það yrði gleðilegt og ríkisstjórninni til framdráttar.

Orðið á götunni er að Jón Gnarr muni þróa Alþingisvaktina í rólegheitum þannig að þjóðin þurfi ekki að gleyma vini sínum Georg Bjarnfreðarsyni sem státar af fimm háskólagráðum.