Eyjan

Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar: Svamlað í lauginni

Mynd
Mynd

Þjóðinni kemur ekki mikið við hvað þingmenn gera utan vinnutíma meðan þeir haga sér skikkanlega. Stundum hafa þeir ekki gert það. Hér áður fyrr var til dæmis lítið sem ekkert fjallað í fréttum um fyllirísgjörðir einstaka þingmanna, en margar krassandi sögur gengu manna á milli. Í dag hefðu þessir þingmenn verið kjöldregnir í fjölmiðlum og æra þeirra beðið skaða. Sumir núverandi þingmenn hafa reyndar fundið smjörþefinn af því, samanber Klausturmálið alræmda.

Þingmenn eiga mætavel að vita að lítið má út af bregða í framferði þeirra. Verði þeim stórlega á er þeim hegnt fyrir það en smá feilspor getur líka orðið að óþægilegri frétt sem fólk hefur unun af að kjamsa á. Góðu fréttirnar fyrir þingmenn eru að þessar vandræðalegu fréttir gleymast yfirleitt á örfáum vikum. Það á mjög líklega við um nýlega uppákomu þegar nokkrir þingmenn ákváðu að fá sér sundsprett í sundlaug utan opnunartíma.

„Þetta er engin frétt og gerðist utan vinnutíma,“ sögðu Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, og Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðismannsins, þegar fréttist að þau, ásamt þremur öðrum þingmönnum Norðausturkjördæmis, hefðu í kjördæmaviku stolist í sund í Selárlaug í Vopnafirði um kvöld þegar sundlaugin var lokuð.

Bæði Ingibjörg og Jens eiga að vita betur en að halda því fram að framferðið hafi ekki verið fréttnæmt, þótt ekki flokkist það sem umfangsmikill glæpur. Það er alltaf fréttnæmt þegar þingmenn fara ekki eftir reglum og ekki síður þegar þeir aðlaga reglur að eigin hentugleika. Þá skipir ekki máli hvort þeir gera slíkt á vinnutíma eða utan hans. Þegar þingmennirnir ákváðu að skella sér í sund voru þeir að senda þau skilaboð að reglur um opnunartíma eigi ekki við þá. 

Sagan segir að eitthvað sé um að heimamenn í Vopnafirði fari í Selárlaug utan opnunartíma án þess að amast hafi verið við því. Það breytir í engu því að það er hvorki sjálfsagt né eðlilegt að gera slíkt, sérstaklega ef um er að ræða fullorðið fólk sem á að búa yfir slatta af dómgreind. Þegar sundlaug er lokuð þá er hún lokuð. Það getur ekki flokkast sem skynsamlegt af þingmönnum að telja sig hafna yfir almennar reglur og lauma sér í sundlaug og busla þar að vild og vona að enginn frétti af því. 

Auðvitað er svo fjarska vandræðalegt fyrir viðkomandi þingmenn þegar fjölmiðlamenn hringja og spyrja hvort allir hafi verið berir í lauginni. Lesandi sem les frétt þar sem þaulreyndur blaðamaður varpar þeirri spurningu til þingmanns fer hugsanlega í huganum að sviðsetja atvikið og sjá það myndrænt fyrir sér. Þá verða til alls kyns myndir.

Það er líka vandræðalegt þegar gefið er í skyn að viðkomandi þingmenn hljóti að hafa verið vel ölvaðir þegar þeir ákváðu að stelast í sundlaugina. Kannski voru þeir það, kannski ekki. En ef þingmenn vilja endilega vera vel fullir þá er heppilegra að þeir séu það heima hjá sér, fjarri almenningi. 

Ekki er það heldur gott fyrir orðspor Alþingis og þingmanna þegar fjölmiðlar leita til forseta Alþingis til að fá skoðun hans á framferði þeirra. Þórunn Sveinbjarnardóttir er þaulreyndur stjórnmálamaður og svaraði fyrir málið eins og stóísk móðir sem veit af óknyttum barna sinna en ætlar ekki koma þeim í frekari vandræði um leið og hún vill heldur ekki taka af þeim alla ábyrgð á eigin gjörðum. „Mér finnst aðallega óheppilegt að ég þurfi sem forseti Alþingis að taka þetta samtal við fréttamann,“ sagði hún. Hún þurfti ekki að segja mikið meira, við vissum að forseta Alþingis væri ekki skemmt.

Á tímum eins og okkar þegar auðvelt er að vekja upp vantraust og tortryggni þá skiptir máli að þingmenn á Alþingi Íslendinga kunni að hegða sér og láti ekki nappa sig við athæfi sem ekki sómir þeim. Það þarf ekki nema fáa þeirra til að koma óorði á hópinn. 

Sjálfsagt er að fyrirgefa þingmönnunum fimm bjánalegt uppátæki þeirra. Þeir hafa vonandi lært af því og einnig áttað sig á því að sundlaugarferð þeirra var sannarlega efni í krassandi frétt. Frétt sem var þeim ekki til sóma.