Það hafði legið fyrir frá upphafi að klár meirihluti Seyðfirðinga var harðlega á móti því að sjókvíaeldi yrði leyft í Seyðisfirði. Í bænum er mikil gróska á mörgum sviðum, t.d. mikil og vaxandi ferðaþjónusta, og sjókvíaeldi myndi skaða aðra atvinnugreinar í bænum. Ólafur ræðir við Katrínu Oddsdóttur, lögmann og umhverfisverndarsinna, í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Það eru komin áþreifanleg gögn um það að þetta sjókvíaeldi hefur valdið margvíslegum skaða. Eldislaxinn sleppur úr kvíunum og blandast villta laxinum. Það eru komnir blandaðir lax stofnar í mjög margar ár. Nú, það er ýmiss konar úrgangur sem fellur frá þessu þannig að við vitum ekki nákvæmlega hvaða áhrif þetta hefur á lífríkið. Er ekki, er ekki bara best að hætta þessu sjókvíaeldi?
„Jú, mér finnst það persónulega að þetta ætti að sjálfsögðu að vera eitthvað sem er fasað út.“
Er hægt að banna þetta bara núna?
„Ja, þú veist, það væri hægt en það myndi örugglega valda miklum dómsmálum og svona. Ef ég væri einráð í landinu myndi ég leggja til að það yrði gert bara til að reyna að bjarga náttúrunni frá frekari skaða. Það yrði þá alltaf að koma til móts við fólkið sem hefur af þessu atvinnu.“
Já. En hvað er það stór hópur? Er þetta fjölmenn atvinnugrein?
„Það er alls ekki eins fjölmennt og fólk vill láta. Eins og til dæmis ef við tölum um Seyðisfjörð þá held ég að þar væru í mesta falli einhver tíu störf á staðnum sem er bara eins og einn veitingastaður. Og þau eru með marga veitingastaði en þau eru líka bara með framtíðarsýn. Seyðisfjörður er ekki eins og hver annar bær. Við skulum hafa það alveg á hreinu. Þetta er bara mjög, mjög kröftugt og mjög skapandi og mjög menningarlegt og mjög einstakt samfélag.
Maður finnur það þegar maður kemur í Seyðisfjörð, þau björguðu gömlu húsunum sínum á meðan það var verið að rífa þau um alla Vestfirði af því þau einhvern veginn hugsa aðeins öðruvísi. Og auðvitað er til fólk á Seyðisfirði sem er fylgjandi þessu, fólk sem hefur bara áhuga á því að fá þess konar störf í bæinn sinn og annað. Það má ekki tala um þetta eins og þetta sé alveg svart og alveg hvítt.
En þetta er hins vegar algjört einsdæmi þegar kemur að andófi heimamanna gegn fyrirhuguðu eldi. Þetta hefur ekki gerst neins staðar annars staðar á landinu. Íslendingar eru stundum svolítið aumir í því að standa upp fyrir hönd náttúrunnar. Og Seyðfirðingar eru svolítið sér á báti að þeir hafa ekki lagst út af kylliflatir og sagt: „Ó, já, fáum við örfá störf? “ Samt hefur gengið mjög erfiðlega undanfarið í bæjarfélaginu, þarna lokaði bræðslan og togarinn fór og það eru bara þessi klassísku minni þegar sjávarbyggðirnar fá þessi stóru högg á sig.
Það er samt búið að taka grunna fyrir fimm ný hús á Seyðisfirði nýlega og það er fullt af ungu fólki sem vill búa þarna. Þau eru með LungA-skólann, þau eru með mjög öfluga ferðaþjónustu, þau eru náttúrulega með Norrænu og gríðarlega skipaumferð og það er rosalegt líf þarna á sumrin. Það náttúrlega, vantar fjölbreyttari störf, það má alveg segja það. En ég veit að það er bara mjög mikið í farvatninu og þau eru með alls konar hugmyndir og þau þurfa bara að fá að gera þetta sjálf á sinn hátt en að troða þessu þarna niður einhverju mengandi stóriðju sem þau segja bara og fullyrða að muni skemma þau störf sem fyrir eru, það nær náttúrlega ekki nokkurri átt.“
Nei, nei, nei, það hljómar alla vega ekki mjög skynsamlegt. Hvernig er það, nú búa ekki 13 þúsund manns á Seyðisfirði þannig að það hafa einhverjir utanbæjarmenn skrifað undir.
„Já, já, enda Seyðisfjörður og seyðfirsk náttúra er ekki einkamál þeirra. Og rétt eins við öll berum ábyrgð á bara náttúru Íslands, ekki bara þau sem búa nálægast. En Seyðfirðingarnir ég tók eftir því af því ég fékk nú að stýra þessum mótmælum á Austurvelli á sunnudaginn, að það var mjög mikið af brottfluttum Seyðfirðingum mætt þar. Ég held að það sé mjög mikið af fólki sem hafi taugar til bæjarins og alveg eins og það mættu þarna 250 manns á Seyðisfirði, þá voru þau ekki öll þaðan, en það voru auðvitað líka bara Austfirðingar sem vildu sýna bræðrum sínum á Seyðisfirði og systrum samstöðu.
Það verður aldrei þannig að við getum einhvern veginn sagt Seyðfirðingar einir eiga að ráða af eða á. Ég vil ekki að það fari eftir því hvort einhver meirihluti í einhverjum bæ vilji eða vilji ekki einn daginn fá mengandi stóriðju að svarið verði já eða nei. Hins vegar er það þannig í skipulagslögum og í lögum um umhverfismat og annað að það á að taka mið af samfélaginu sem hefur áhrif á framkvæmdirnar og það hefur einhvern veginn bara láðst að gera það þarna af því þetta er búið að liggja fyrir frá því 2020 þegar 55% kosningabærra Seyðfirðinga skrifuðu undirskriftarlista og sögðu stopp.
Þannig að þetta er ekki einhver svona spurning um hvort kannski meirihluti þeirra sé andvígur. Það hefur legið fyrir á öllum stigum málsins og er svo sérstök forsenda. Þannig að ég er ekki að segja: Meirihlutinn á bara að ráða. Ég er að segja: Í þessu tilviki þá erum við bara með bæjarfélag þar sem fólkið hefur sagt það ítrekað og afar skýrt að það hafni þessu, hafni þessari atvinnusköpun og þá verðum við auðvitað að hlusta á það. Finna leiðir til annaðhvort að sætta þau þannig að þau vilji þetta eða finna eitthvað annað og gera eitthvað annað.“