Eyjan

Ari Kr. Sæmundsen skrifar: Au pair

Mynd
Ari Kr. Sæmundsen

Au pair er franska og gæti sem best þýtt jafningi á íslensku. Hugtakið er notað yfir ungt fólk, aðallega konur, sem sækjast eftir vist hjá fjölskyldum, helst utan heimalandsins, gætir barna og sinnir almennum húsverkum, en fær að launum frítt fæði og húsnæði og smávegis vasapening að auki. Þetta fólk verður hluti af heimilinu og þaðan kemur jafningjahugtakið. Þessi jafningjavist hefur virkað alveg prýðilega um heim allan, að því að manni skilst, og jafningjarnir fengið að kynnast framandi menningu og tungumálum,

Nú bregður svo við að vart hefur orðið aukinnar aðsóknar eða eftirspurnar eftir jafningjum, konum, einkum frá Filippseyjum, og berast af því fréttir að margt misjafnt sé í gangi, verið að misnota þessar konur, þær jafnvel hnepptar í ánauð við komuna til landsins. Dómsmálaráðherra, sem er ófær um að takast á við skipulagða glæpastarfsemi, bregst skörulega við og boðar breytingar á útlendingalögum. Banna skal jafningjavist fólks sem ekki býr innan EES, þannig að t.d. konur frá Bandaríkjunum eða Filippseyjum fá ekki leyfi til jafningjavistar, en konum frá t.d. Rúmeníu og Búlgaríu er það heimilt. Engin hætta á að þær verði misnotaðar?

Þá kveður þingmaður minnihlutans sér hljóðs undir liðnum „störf þingsins“ og telur að þessi breyting á útlendingalögum sé óráð. Hér á landi sé fjöldi gamalmenna sem enginn nennir að sinna eða tala við og því þjóðráð að nýta þennan aukna áhuga á jafningjavist til að vera þessum einstæðingum félagsskapur: elda, þrífa, spila, spjalla o.s.frv. Þetta er náttúrulega eitursnjöll hugmynd, hægt að halda gamlingjanum lengur heima hjá sér sem myndi minnka þörfina eftir hjúkrunarrými. Full ástæða til að þingið ræði þetta betur undir liðunum „fundarstjórn forseta“ og „óundirbúnar fyrirspurnir“ og svo mætti taka endanlega ákvörðun í heita pottinum í næstu kjördæmaviku.

Sett verði á laggirnar Jafningjastofa. Jafningjar verði skuldbundnir til að skrá sig þar og þeim síðan úthlutað verkefnum. Gamlingjarnir sækja um að fá þjónustu jafningja og fara samstundis á biðlista. Það er nefnilega enginn bragur á opinberri þjónustu þar sem ekki er biðlisti. Eftir nokkra mánuði er gamlingjanum úthlutaður jafningi, t.d. Filippseyingi. Vandamálið er að gamlinginn talar bara íslensku og Filippseyingurinn bara tagalog eða filipino. En það verður leyst, því Jafningjastofa útvegar jafnframt túlkaþjónustu, en eini túlkurinn á lausu þá stundina er arabískur og hann sendur heim til gamlingjans. Það vill hins vegar þannig til að foreldrar túlksins eru nýkomnir til landsins í krafti fjölskyldusameiningar, í boði dómsmálaráðherra, og hann kippir þeim bara með til að þeim leiðist ekki einum heima. Nú sitja þau fimm inni í stofu hjá gamlingjanum og spjalla hvert með sínu nefi. Gamlinginn  lærir smám saman hrafl í tagalog og arabísku, kynnist framandi  menningarheimum og matarhefðum og breytist úr veseni og kerfislægum þurfalingi í heimsborgara. Au pair í verki?  

Ég hreinlega elska að fylgjast með  þingstörfum og þingmönnum. Það er svo uppbyggilegt og upplýsandi. Meira af þessu. 

Bestu kveðjur úr óbærilegum léttleika tilverunnar.