Eyjan

Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar: Árangursrík stjórnsýsla veitir atvinnulífinu skilvirka þjónustu

Mynd

Hversu mörg ný fyrirtæki og verðmæt störf verða aldrei til á Íslandi vegna flókinna reglna, óþarfa tafa og óskilvirkrar stjórnsýslu?

Þetta er spurning sem við ættum að taka alvarlega. Því þegar frumkvöðull gefst upp, fyrirtæki hættir við fjárfestingu eða nýsköpunarverkefni flyst úr landi, tapar samfélagið ekki aðeins viðskiptatækifæri, heldur missum við líka framtíðarstörf, þekkingu og skatttekjur.

Í nýrri úttekt OECD á Íslandi kemur fram að þótt íslenskt viðskiptaumhverfi sé að mörgu leyti gott séu hindranir við stofnun fyrirtækja meiri en í mörgum löndum innan OECD.

OECD metur að einföldun stjórnsýslu og regluverks fyrir ný fyrirtæki gæti aukið landsframleiðslu á mann um 1% á tíu árum.

Það er mat á mögulegum ávinningi, ekki tryggð niðurstaða. En það sýnir að góð stjórnsýsla er miklu meira en spurning um afgreiðsluhraða. Hún er hluti af verðmætasköpun þjóðarinnar.

Erum við að vinna réttu verkefnin?

Árið 2005 lauk ég meistaranámi í stjórnun og stefnumótun við Háskóla Íslands. Lokaritgerð mín ber heitið Árangursrík stjórnsýsla.

Þar byggði rannsóknin á að: Árangursrík stjórnsýsla vinni réttu verkefnin, hagkvæmt og skilvirkt. Til þess að staðreyna að svo sé þarf að mæla árangur og forgangsraða verkefnum í samræmi við mikilvægi á hverjum tíma.

Alþingi setur lög og hefur eftirlit með framkvæmdavaldinu. Ráðherrar, ráðuneyti og stofnanir bera ábyrgð á að lögbundin verkefni séu framkvæmd af fagmennsku og innan þeirra heimilda sem gilda. En erum við nægilega meðvituð um að eitt mikilvægasta hlutverk stjórnsýslunnar er að skapa skýr, réttlát og skilvirk starfsskilyrði fyrir atvinnulífið?

Það er nefnilega ekki nóg að stjórnsýslan sinni eigin verkefnum samkvæmt reglum. Hún þarf líka að tryggja að reglurnar og framkvæmd þeirra þjóni samfélaginu sem best.

Hvers vegna þarf að vera flókið að stofna fyrirtæki?

Hugsum okkur ungan frumkvöðul sem hefur þróað nýja vöru úr íslensku sjávarfangi. Hann vill stofna fyrirtæki, hefja framleiðslu og selja vöruna á erlendum mörkuðum.

Hvar byrjar hann? Hvaða lög gilda? Hvaða leyfi þarf? Hvað kosta þau? Hversu langan tíma tekur afgreiðslan? Hversu margar stofnanir þarf hann að hafa samband við?

Þetta ættu að vera einfaldar spurningar með skýrum svörum.

OECD bendir sérstaklega á að upplýsingar um leyfi á Ísland.is séu skipulagðar eftir tegund leyfa fremur en þeirri atvinnustarfsemi sem fólk hyggst hefja. Fyrir vikið getur verið erfitt að fá heildaryfirsýn.

Hvers vegna getur frumkvöðull ekki einfaldlega lýst hugmyndinni sinni og fengið strax skýrt yfirlit yfir allt sem þarf að gera?

Ég tel að við eigum að setja okkur það markmið að Ísland verði eitt auðveldasta land heims til að stofna og byggja upp fyrirtæki. Á Ísland.is ætti hver sem hyggst hefja atvinnustarfsemi að geta fengið á einum stað upplýsingar um viðeigandi lög, reglur, leyfi, kostnað og áætlaðan afgreiðslutíma.

Allar umsóknir ættu að vera rafrænar þar sem því verður við komið. Fyrirtæki ættu aðeins að þurfa að skila sömu upplýsingum einu sinni og geta fylgst með framvindu mála á einum stað. Stjórnsýslan á sjálf að sjá um að samhæfa samskipti opinberra aðila.

Frumkvöðullinn á að geta einbeitt sér að því að skapa verðmæti.

Ókeypis fræðsla getur skapað framtíðarstörf

Margir hafa góða viðskiptahugmynd og mikla sérþekkingu, en skortir reynslu af rekstri, fjármögnun, markaðsrannsóknum eða markaðssetningu.

Hvers vegna tryggjum við ekki öllum aðgang að gjaldfrjálsri rafrænni grunnfræðslu um stofnun fyrirtækja, viðskiptaáætlanir, verðlagningu, sölu og útflutning?

Við eigum þegar öfluga aðila á þessu sviði, meðal annars KLAK, háskóla og atvinnuþróunarfélög. Með samstarfi mætti gera þessa þekkingu aðgengilega miklu fleirum.

Á Ísland.is gæti frumkvöðullinn þannig fengið bæði leiðbeiningar um opinberar kröfur og aðgang að fræðslu og stuðningi við að byggja upp fyrirtækið. Grunnþjónustan ætti að vera gjaldfrjáls. Lögbundin leyfis- og eftirlitsgjöld þyrfti hins vegar að meta sérstaklega.

Þetta væri fjárfesting í nýjum fyrirtækjum, framtíðarstörfum og skatttekjum ríkis og sveitarfélaga.

Framtíðarstörfin verða ekki til af sjálfu sér

Í fyrri grein fjallaði ég um mikilvægi þess að Ísland byggði upp öfluga þekkingarklasa á sviðum þar sem við höfum sérstakt forskot.

Hafið, vatnið og orkan – ásamt forvitninni, þekkingunni og mannauðnum.

Við eigum að stefna að því að verða í fremstu röð á alþjóðavísu í sjávarútvegstækni, vatnstækni, líftækni, jarðhita og öðrum greinum þar sem íslensk sérþekking getur skapað verðmæt störf. En slík framtíðarsýn kallar á meira en frumkvæði fyrirtækja.

Stjórnvöld, atvinnulíf, háskólar og rannsóknarstofnanir þurfa að vinna saman að því að skapa góð skilyrði fyrir vöxt þessara greina. Þar skipta rannsóknir, menntun, innviðir og fjármögnun miklu máli. En einnig skýr lög, fyrirsjáanlegar reglur og skilvirk leyfisveiting.

Við getum ekki ætlað okkur að verða í fremstu röð í alþjóðlegri nýsköpun ef stjórnsýslan þróast ekki í takt við þann metnað. Það þýðir ekki að draga eigi úr kröfum um umhverfisvernd, öryggi eða réttindi fólks.

Það þýðir að gera réttu hlutina rétt – án óþarfa tafa.

Hversu mörg störf gætum við skapað?

Við vitum ekki með vissu hversu mörg störf einfaldari stjórnsýsla gæti skapað á Íslandi. En við getum rannsakað það. Hversu langan tíma tekur að stofna fyrirtæki og afla leyfa? Hvað kosta stjórnsýsluferlin? Hversu margar fjárfestingar tefjast? Og hversu mörg fyrirtæki gætu vaxið hraðar ef óþarfa hindrunum væri rutt úr vegi?

Ég tel að stjórnvöld eigi að hefja slíka rannsókn í samstarfi við atvinnulífið og háskólana.

Í framhaldinu ætti að setja mælanleg markmið um styttri afgreiðslutíma, einfaldari ferli og aukna ánægju fyrirtækja með opinbera þjónustu.

Árið 2011 vann ég skýrslu um samræmt yfirlit um hlutverk og árangur í ríkisrekstri. Þar lagði ég áherslu á að almenningur, Alþingi og stjórnvöld gætu fylgst með árangri opinberra stofnana með skýrum og aðgengilegum hætti.

Sú hugsun á vel við hér. Það er ekki nóg að stjórnvöld segist vilja styðja nýsköpun og atvinnuuppbyggingu. Við verðum að geta sýnt fram á árangurinn.

Gerum stjórnsýsluna að samkeppnisforskoti Íslands

Við Íslendingar erum fámenn þjóð. Það ætti að geta verið styrkleiki okkar. Við ættum að geta samhæft opinbera þjónustu, nýtt stafræna tækni og skapað fyrirtækjum skýrari og einfaldari starfsskilyrði en margar fjölmennari þjóðir.

Það krefst sameiginlegrar stefnu Alþingis og framkvæmdavaldsins, faglegra vinnubragða og vilja til umbóta.

Hvers vegna setjum við okkur ekki það markmið að hver sá sem vill stofna fyrirtæki á Íslandi geti á einum degi fengið heildaryfirlit yfir allar opinberar kröfur sem starfsemin þarf að uppfylla? Einnig að leyfisumsóknir hafi skýra ábyrgðaraðila, gagnsæja tímaáætlun og rafræna afgreiðslu?

Þetta eru verkefni sem við getum ákveðið að ráðast í.

Árangursrík stjórnsýsla vinnur réttu verkefnin, hagkvæmt og skilvirkt.

Hún tryggir réttindi borgaranna, verndar almannahagsmuni og skapar atvinnulífinu traust og samkeppnishæft starfsumhverfi.

Við eigum ekki aðeins að spyrja hvað stjórnsýslan kostar. Við eigum líka að meta hversu mikil verðmæti hún getur skapað.

Hugleiðum: Hversu mörg ný störf gætu orðið til þegar skilvirk stjórnsýsla einfaldar nýsköpun, fyrirsjáanleika og gefur Íslandi samkeppnisforskot?

Höfundur er formaður Öldungaráðs Viðreisnar, viðskiptafræðingur með MS í stjórnun og stefnumótun, áhugamaður um að friður ríki og kennir Qigong – lifsraekt.is