Víða um jarðir er frelsi, jafnrétti og bræðralag á undanhaldi. Heimskan hefur tekið við af ritrýndum fræðum og ábyrgri upplýsingu, og óreiðan er fyrir vikið að verða algild, en andlag þessa alls er að sannleikurinn situr eftir eins og hver önnur tilfinning eða upplifun.
Gildir hér einu þótt elstu forsagnir hafi varað við þessu í tíma, og nægir að nefna Hávamálin sjálf sem herma að „vits er þörf þeim er víða ratar,“ og bætir því við að „dælt er heima hvað,“ sem merkir svo mörgum öldum seinna að það er auðvelt að vera heima, en til að öðlast vit og reynslu þurfi menn að ferðast og kynnast heiminum.
Og má hér árétta að orðið „heimskur“ er komið af orðinu „heima“ og merkir upphaflega að sá sem heldur sig ávallt heima við og fer ekki fet, einangrast bæði og festist í viðjum vanans, en í fornu fari þótti það ekki mannvænlegt að sitja alltaf eftir á torfu sinni og afla sér engrar þekkingar á næstu bæjum, og taka samtalið.
Þetta á ekki síst við um pólitíkina nú um stundir. Hún er að verða heimskari í orðsins fyllstu merkingu, einkum og sér í lagi sú sem hallar sér til hægri, enda stjórnast hún í auknum mæli af ótta gagnvart öllu því sem útlent er, og fyrirlítur frjálsræði og fjölbreytileika.
Og tónninn er sá sami austan hafs og vestan. Í Frakklandi leggur öfgahægrið áherslu á „franska forgangsröðun“ (f: la priorité nationale), sem þýðir að franskir ríkisborgarar eiga að hafa forgang fram yfir útlendinga í atvinnu, húsnæði og félagslegri aðstoð, en draga eigi verulega úr löglegum innflutningi fólks. Í Þýskalandi vill raunar öfgahægrið senda alla þá til síns heima sem ekki eru fæddir í landinu eða hafa alist þar upp. Og slegið er raunar í svipaða eða sömu bjöllu í fjöldamörgum öðrum Evrópulöndum á borð við Holland, Ítalíu, Pólland og Ungverjaland.
Hinum megin Atlantshafsins, í löndum á borð við Brasilíu, hefur bolsonarisminn fest sig í sessi, en þar er komin popúlísk hægristefna sem byggir á algeru afturhaldi og eindreginni íhaldssemi sem virðist sniðin að þeim strangkaþólsku gildum sem víða njóta hylli í landinu. Það er ekki snefil af frjálslyndi og umburðarlyndi að finna í þessum boðskap, heldur harða og afdráttarlausa andstöðu við þungunarrof, hjónabönd samkynhneigðra, kynleiðréttingar og hinsegin fræðslu í skólum. Og slagorðin glymja á götum og torgum, og endurspegla áherslu á biksvarta bókstafstrú og ættjarðarást þar sem Brasilía og Guð eru ofar öllu, ásamt því raunar að hygla forrríkasta fólki landsins með skattalegu hagræði og almennri gjaldalækkun á allan lúxus, hvort sem það eru heilsulindir eða snekkjur, og annað í þeim dúr.
„Og raunar er frelsið einmitt það sem fer hvað mest í taugarnar á heimska hægrinu, þar á meðal frelsi einstaklingsins og frelsið til athafna og orðs og æðis.“
Höfundur þessarar stefnu ber raunar guðdómlegt heiti ef út í það er farið, Jair Messias Bolsonaro, og hans heimska hægri lifir góðu lífi þrátt fyrir að foringinn sá arna hafi verið hrakinn frá völdum eftir að hafa tapað forsetakosningunum haustið 2022 fyrir vinstrimanninum Luiz Lula da Silva, og bannað að taka þátt í stjórnmálum ári seinna vegna misbeitingar á valdi, sem endaði svo með því að hann var dæmdur í ríflega 27 ára fangelsi á síðasta ári fyrir að skipuleggja tilraun til valdaráns.
Fyrir heimska hægrið er það ekki tiltökumál, enda sækir Bolsonaro fyrirmynd sína til norðurhluta Ameríku þar sem Donald nokkur Trump er fyrir á fleti, þess sama og beitir nú tollum eins og hverju öðru stríðstóli og berst eins og berserkur gegn helstu bandamönnum sínum, og nægir þar að nefna Kanada sem á lengri landamæri með Bandaríkjunum en aðrar þjóðir þar í álfu.
Og tónninn er eins öfgafullur og hann er ófyrirséður, því ef aðrir þjóðarleiðtogar sitja ekki og standa eins og Washington-valdinu þóknast, skal hætta öllum viðskiptum við þá, eða reisa um þá slíka og þvílíka tollamúra að frjálsum viðskiptum er sjálfhætt.
Og raunar er frelsið einmitt það sem fer hvað mest í taugarnar á heimska hægrinu, þar á meðal frelsi einstaklingsins og frelsið til athafna og orðs og æðis. Því það ber að setja rannsóknum og vísindum stólinn fyrir dyrnar, og þá ekki síður fjölmiðlum og fyndnum skemmtikröftum, svo og náttúrlega dómstólum ef þeir dæma í bága við bilaða einræðistilburði.
Þetta er heimska hægrið sem telur sig geta þetta sjálft, enda ber að loka sig frá öðrum löndum og snúa klukkunni við, svo konan komist aftur á bak við eldavélina og börnin fái að nýju lært að einsleitnin er eina vitið.