Eyjan

Óttar Guðmundsson skrifar: Þingmenn fara í bað

Mynd
Mynd

Víða í Íslendingasögum er sagt frá örlagaríkum ferðum í heitar laugar. Allar hörmungar Laxdælasögu má rekja til þess að Kjartan Ólafsson, Bolli frændi hans og Guðrún Ósvífursdóttir hittust í lauginni í Sælingsdal. Kjartan og Bolli voru óreyndir í ástamálum en Guðrún tvígift og veraldarvön. Hún sat berbrjósta í heitu vatninu fyrir framan þessa laungröðu æskumenn. Þessi dramatíska undferð kostaði þá báða lífið. Guðrún iðraðist þess í ellinni að hafa freistað piltanna í pottinum með kynþokka sínum. 

Í Sturlungu er skýrt frá baðferðum Snorra Sturlusonar ásamt fleiri málsmetandi höfðingjum. Nándin í heitu baðinu gerði það að verkum að mönnum tókst að leysa flókin innanlandsvandamál. Sturla frændi minn Sighvatsson sat í lauginni að Reykjum í Miðfirði og gamnaði sér við ástkonu sína meðan þeir Þorvaldssynir lögðu húsin að Sauðafelli í rúst. Síðustu orð Egils afa míns Skallagrímssonar voru „vil ég fara til laugar.“ Hann hafði óbilandi trú á sundlauginni í Mosfellsdal enda ókeypis fyrir eldri borgara. 

Baðferðir hafa því alltaf gegnt mikilsverðu hlutverki í Íslandssögunni. Það var mér mikið ánægjuefni að lesa fregnir af drukknum þingmönnum sem brutust inn í laugina á Vopnafirði á dögunum. Þeir vildu gera sér glaðan dag og halda áfram spaklegri umræðu í lauginni utan venjulegs opnunartíma. Þetta gerðist í kjördæmaviku þegar þingmenn eiga að sinna kjósendum sínum og hver öðrum. Þarna sameinuðust í pottinum Framsóknarmenn, Sjálfstæðismaður og Miðflokkssmenn í heilagri niðurdýfingarskírn. 

Einhverjir úrtölumenn hafa hneykslast á þessu þjóðlega athæfi þingmannanna. Slíkt fólk áttar sig ekki á því hversu góð áhrif það hefur á gang landsmálanna þegar bosmamiklar þingkonur sitja berbrjósta með góðglöðum samþingmönnum sínum í heitu vatni. Við slíkar kringumstæður má sameinast um nýja þjóðarsátt gegn verðbólgu- og vaxtadraugnum. 

Ég hitti Snorra Sturluson á dögunum. Hann vildi ganga alla leið og breyta hinni stórskemmdu Laugardalslaug í nýtt Alþingishús þar sem allir fundir færu fram í vatninu. Stúkuna umdeildu mættu endurbyggja svo að hún fengi nýtt hlutverk enda yrði alltaf fjölmenni á þingpöllum. Þingmenn klæddust sundfötum eða ekki við vinnu sína sem gerði allt fjas um gallabuxur og annan klæðaburð óþarft. „Þetta Alþingi í vatni mundi vekja mikla hrifningu erlendis og blása nýju lífi í ferðaiðnaðinn,“ sagði Snorri. „Þingið fær virðingu við hæfi! Það er nefnilega ómögulegt að halda uppi löngu málþófi á sundskýlu eða bikini einu fata.“