Eyjan

Orðið á götunni: Mest ánægja með störf Þorgerðar Katrínar – áberandi lítil ánægja með Guðrúnu og Lilju

Mynd

Í nýrri könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið kjósendur Viðreisnar með störf formanns eigin flokks mest allra, en tæplega 96% kjósenda flokksins eru ánægðir með störf Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.

Raunar  fylgja hinar valkyrjurnar fast á eftir. Ánægja Samfylkingarfólks með störf Kristrúnar Frostadóttur er tæp 94% og ríflega 93% kjósenda Flokks fólksins eru ánægðir með Ingu Sæland. Þá er rösklega 90% kjósenda Miðflokksins ánægður með störf Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.

Því má segja að yfirgnæfandi ánægja sé með störf ofangreindra fjögurra formanna meðal kjósenda flokka þeirra. Öðru máli gegnir um formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar. Aðeins 66% kjósenda Sjálfstæðisflokksins er ánægður með störf Guðrúnar Hafsteinsdóttur og staðan er enn svartari fyrir Lilju Alfreðsdóttur, formann Framsóknar. Einungis 57% kjósenda flokksins eru ánægð með störf hennar.

Orðið á götunni er að niðurstöður þessarar könnunar séu merkilegar fyrir margar sakir. Nú líður að því að kjörtímabilið sé hálfnað og ríkisstjórnin hefur mátt kljást við mótvind á ýmsum sviðum að undanförnu. ´Verið er að vinna að hallalausum fjárlögum sem veldur alltaf einhverjum sársauka og kallar á óánægju. Samt raða formenn ríkisstjórnarflokkanna sér í fyrstu þrjú sætin þegar spurt er um ánægju með störf þeirra.

Orðið á götunni er að einna merkilegast við könnunina sé sá ótvíræði stuðningur sem mælist við Þorgerði Katrínu meðal kjósenda hennar flokks. Enginn íslenskur stjórnmálamaður hefur þurft að þola eins harkalega og lúalega gagnrýni og hún á undanförnum mánuðum og misserum. Þá er það athyglisvert að þeir formenn sem háværastir hafa verið og mest gagnrýnt ríkisstjórnina, og þá ekki síst Þorgerði Katrínu, skuli fá aðra eins útreið og þær Guðrún Hafsteinsdóttir og Lilja Alfreðsdóttir fá hjá kjósendum sinna flokka.

Orðið á götunni er að Framsókn sé í alvarlegum tilvistarvanda og eigi það á hættu að einfaldlega gleymast og jafnvel hverfa. Áherslur hins nýja formanns falla í grýtta jörð. Þetta sjá kjósendur flokksins bersýnilega. Þá er greinilegt að Guðrún Hafsteinsdóttir hefur hvorki náð tökum á Sjálfstæðisflokknum né áunnið sér tiltrú kjósenda hans í þeim mæli að staða hennar geti talist sterk, hvað þá örugg. Á þessari stundu bendir allt til þess að hún fái mótframboð á næsta landsfundi, sem halda verður í síðasta lagi eftir u.þ.b. eitt ár. Margir Sjálfstæðismenn telja það vera skrifað í skýin að Guðrún muni ekki leiða flokkinn í næstu kosningum.