Eyjan

Katrín Oddsdóttir: Sá að þetta kom ráðherra í opna skjöldu – nema hún sé svona flinkur leikari

Mynd

Hópurinn sem mótmælir fyrirhuguðu sjókvíaeldi í Seyðisfirði finnur fyrir því að eftir að 13 þúsund undirskriftir gegn framkvæmdinni voru afhentar ráðherra koma viðbrögð frá ráðherrum og nú hafa bæði Jóhann Páll Jóhannsson og Hanna Katrín Friðriksson fundað með mótmælendum og í næstu viku eiga þau fund með Kristrúnu Frostadóttur. Og það sem meira er, ráðherrarnir hlusta af athygli á málflutning mótmælenda. Katrín Oddsdóttir, lögmaður og umhverfisverndarsinni, er viðmælandi Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

Það er fyrirhugað sjókvíaeldi í Seyðisfirði. íbúar hafa mótmælt, umhverfisverndarsinnar hafa mótmælt. Nú, veiðifélög hafa mótmælt. Þú hefur gert þig gildandi í þessu. Já. Þú ert, þú hefur unnið fyrir landeigendur þarna í firðinum. Og þú hefur líka verið að vinna með mótmælendum. Það komu 13 þúsund undirskriftir sem Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra tók á móti og hafði sérstaklega orð á að það væri óhjákvæmilegt þegar svona undirskriftir bærust að taka málið til skoðunar.

Mig langar kannski bara til að byrja á því, hafa einhver frekari viðbrögð komið? Hann ætlaði að kynna þetta í ríkisstjórn, nefndi það að hann ætlaði að leggja þetta fram í ríkisstjórn.

„Já, ég myndi segja að það hafi komið frekari viðbrögð vegna þess að staðan var sú núna á mánudaginn, þetta er náttúrlega búið að vera mjög viðburðaríkir dagar. Mótmælin fóru fram þarna á sunnudeginum, samtímis á Seyðisfirði og á Austurvelli og var gríðarlega fjölsótt á báðum stöðum og tókust vel. Og svo fáum við sem sagt þennan fund, vorum búin að fá hann fyrir helgi með Jóhanni til þess að afhenda honum undirskriftirnar, og þar mæta allt í einu bara allir aðalfjölmiðlarnir. Það er eins og fjölmiðlar hafi skyndilega vaknað einhvern veginn til vitundar um þetta mál.

Þetta er mikilvægt mál, sem er gríðarlega jákvætt, og þess vegna er ég sérstaklega glöð að þú sért kominn hingað til mín að ræða þetta frekar vegna þess að það er svo gott oft að ræða í betra tómi. Manni gefast oft bara þessar 30 sekúndur í útvarpi og sjónvarpi sem geta ekki fangað svona mál með neinum hætti. Þannig að á þessum fundi þá birtast fjölmiðlar og spyrja: „Bíddu, af hverju eruð þið að láta Jóhann Pál fá þessar undirskriftir en ekki Hönnu Katrínu?“

Og við segjum sem satt er að hún hafi hreinlega ekki viljað taka á móti þeim og það var staðan þá. En svo er þessi ríkisstjórnarfundur daginn eftir og í framhaldi af því kemur fundarbeiðni frá henni núna á miðvikudaginn þar sem hún vill taka á móti undirskriftunum og í raun og veru var sá fundur mjög góður þannig að við höfum fengið bæði að funda með henni og Jóhanni í þessari viku og í næstu viku munum við funda með Kristrúnu.

Þannig að það er ágætis gangur í þessu hvað það varðar hjá okkur núna að ná loksins eyrum ráðamanna. En það náttúrlega er svolítið líka seint í rassinn gripið að vera að bregðast við þessu stóra vandamáli akkúrat núna þegar tvær af þremur leyfisveitingum liggja fyrir, sem við höfum að sjálfsögðu kært og ég trúi nú ekki öðru en að verði snúið við.

En það er bara í raun og veru þannig að ef ég á að vera alveg hreinskilin þá held ég að það hafi bara svona ákveðinn lobbíismi svolítið sigrað inni í ráðuneytunum þar sem fólki hefur verið sagt sem tekur þar við stjórn að það sé ekkert hægt að gera annað en bara að reyna að gera þetta betur og svo framvegis og bara einhvern veginn sætta sig við það að þarna er bara orðinn hlutur og þessi leyfi bara komi út ef stofnanirnar telja það rétt. Alveg óháð því að meirihluti Seyðfirðinga hafi alla tíð verið gríðarlega mótfallinn þessu.

Og þarna verður maður bara að staldra við og nota brjóstvitið og common sense eins og við köllum það nú á slæmri íslensku og segja: „Hvernig í ósköpunum getum við sem samfélag verið komin á þann stað að okkar ráðamenn segja að það sé bara eðlilegt að sjókvíaeldi skuli troðið ofan í Seyðisfjörð þrátt fyrir að meirihluti Seyðfirðinga vilji ekki sjá það?“ Þarna er fyrsta svona hindrunin sem mannsheilinn ætti að stoppa við, dveljast við og hugsa: Nei, nei, nei, þetta mun aldrei gerast. Við þetta bætist síðan, Ólafur, að það eru mjög margir og mjög alvarlegir ágallar á málinu, hvernig sem á það er litið.

Hvort sem við skoðum bara rekstrarleyfið sem var að koma út og þau lög sem það á að fara eftir eða við skoðum starfsleyfi sem kom út sama dag og lögin sem það á að fara eftir eða við skoðum gildandi strandsvæðisskipulag og hvernig það átti að vinnast. Hvert einasta atriði í þessari vegferð er því miður háð ótrúlegum annmörkum. Og ég veit að kannski Hanna Katrín hafi ekki trúað því almennilega fyrr en hún hitti okkur og ég ætla aftur að fá að hrósa henni fyrir það að hún lengdi fundinn og virtist virkilega vera að hlusta.

Og það kom henni í opna skjöldu, sá ég, ef marka má líkamsviðbrögðin nema hún sé svona finkur leikari, sumt af því virtist hún ekki vita að væri ágalli á málinu því hún hefur stigið fram og sagt: Þarna eru á ferðinni ígrunduðustu leyfi sem veitt hafa verið nokkurn tíma til sjókvíaeldis. Þannig tekið svolítið einarða afstöðu með því að leyfin séu í lagi. En þegar við reifuðum málið fyrir henni þá fannst mér eins og hún sæi alveg að þetta væri eitthvað sem þyrfti að skoða betur. Og ég vona það bara núna að þau sjái sóma sinn í því að setja niður, taka þetta fyrirbæri sem heitir haf- og strandsvæðisskipulag …“

Hvað segirðu?

„Haf- og strandsvæðisskipulag. Nú er ég óttast um að ég sé að drepa alla úr leiðindum sem hlusta en það verður bara því miður að nota þessi þrautfúlu lögfræðilegu orð til þess að lýsa þessari stöðu. Já, það er sem sagt svona skipulag sem var búið til, bara svipað og deiliskipulag nema bara á sjónum og það var búið til vegna þess að það var algjör, bara í raun og veru bara eitthvað villta vestrið í gangi þar sem fólk var bara að hola niður einhverjum sjókvíum um allt land og það var enginn sem vissi hvar það mátti vera og hvernig og þá fer skipulagið svona mjög íslenskt allt í einu af stað, löngu eftir kúrekunum sem settu niður sjókvíaeldið og enginn veit í raun hvernig þetta byrjaði eða hver leyfði þetta á Íslandi.

Þetta bara var allt í einu komið í annan hvern fjörð. Og skipulagsyfirvöld átta sig á þessu og hlaupa svona á eftir og reyna einhvern veginn að koma einhverjum böndum á þetta. Það er bara svo hræðileg aðferðafræði að ætla að byrja út frá því að segja: Ókei, hver er búinn að sækja um hvar? Og við skulum einhvern veginn teikna það inn á okkar kort og leyfa það en svo skulum við hugsa um til dæmis siglingaröryggi, ofanflóðahættu. Hvar eru þessir dýrmætu fjarskiptastrengir okkar Íslendinga? Þú veist, hvar er hættulegt að hafa þetta og hvar ekki? Þetta eru svona eftiráhugsanir í þessu skipulagi.

Það er ekki bara það að skipulagið hafi byrjað á kolröngum enda. Auðvitað hefðum við átt að byrja á því að hugsa: Við þurfum öruggar siglingaleiðir, við þurfum að hafa hérna öruggt að það sé ekki ofanflóðahætta og við þurfum að hafa vilja nærsamfélagsins og svo framvegis. Það hefði verið svona eðlilegt. Því miður þá byrjuðu þeir á forsendunni hvar hefur verið sótt um og teiknum inn þau svæði. Og þetta hefur valdið alveg gríðarlegum vandræðum. Ég sjálf hef farið fram með kærur sem hafa ógilt sum svæði fyrir vestan af því þau eru bara stórhættuleg, þar sem búið var að veita leyfi.

Það höfðu verið settar kvíar ofan í svæði sem hefðu bara skapað stórkostlega hættu fyrir siglingaumferð og í raun og veru af því ég byrjaði að pæla í þessum málum fyrir svona 2–3 árum þá hugsaði ég bara: Þú veist, það er ekki hægt að ná utan um þetta. Þetta eru tíu stofnanir og fimm ráðuneyti og hvernig í ósköpunum er einhver með yfirsýn? Á sama tíma var ríkisendurskoðandi nýbúinn að segja í svartri skýrslu: Þetta er hræðilegt. Stjórnsýslan er allt of dreifð, hún er algjörlega hérna brotakennd, það er hver höndin upp á móti annarri og enginn með yfirsýn.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

 

 
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.