Þegar kemur að leyfisveitingum í sjókvíaeldi virðist sem enginn í kerfinu beri neina ábyrgð nema bara á sínum afmarkaða hluta og því er enginn með almennilega yfirsýn. Svo eru stofnanir undirseldar öflugum norskum fjárfestum sem beita fyrir sig frekum lögmönnum. Svo eru leyfin veitt þrátt fyrir að málin séu ekki einu sinni sæmilega unnin. Að auki eru íslensk lög og reglur stundum verulega gölluð. Katrín Oddsdóttir, lögmaður og umhverfisverndarsinni, ræðir við Ólaf Arnarson í hlaðvarpi Eyjunnar.
Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:
Einhvern veginn hefur þetta dálítið svona streymt í gegn og verið samþykkt og það er enginn sem hefur svona litið á sig í stöðu Harry S. Truman sem sagði: „The buck stops here.“
„Nei, það vantar þann. Alveg, hvar er Harry? Ég lýsi eftir Harry. Nei og það sem er svo fyndið við þetta er, eins og til dæmis við fórum þá bara og funduðum með forstjórum allra þessara stofnana og reyndum að skilja hvað var að gerast á hverjum einum stað. Og það var alltaf sama viðkvæðið að lokum þegar maður kom til þeirra: „Já, en ég ber ekki ábyrgð á því.“ Það var á endanum alltaf: Hver leit á þetta sem einhverja svona pizzusneið og hann bar bara ábyrgð á sinni pizzusneið en þó að heildarpizzan væri einhver hörmung þá var það einhvern veginn ekki hans vandamál.
Það er niðurstaðan að til dæmis mjög eftirminnilegur fundur við frábært fólk í Samgöngustofu, það er frábært fólk í öllum þessum stofnunum, það vantar ekki. Það er hins vegar eitthvað sem heitir á ensku regulatory capture í gangi sem er í raun og veru það þegar stofnanirnar eru undirseldar einhverjum öflum. Í þessu tilfelli eru það bara fjármagnseigendurnir norsku sem eru með freka lögmenn sem gelta á stofnanirnar þangað til þær einhvern veginn hálfpartinn svona bugast undan álaginu og veita leyfin þótt að það þurfi að rannsaka málið betur og gera hlutina betur. En það er önnur saga.
Á Samgöngustofu sögðu þeir mér: „Já, heyrðu, skipulagið, við ætluðum nú heldur betur að hafa áhrif á það af því við berum ábyrgð á siglingaöryggi. Og þegar við sáum að þetta var farið í gang þá gripum við inn í og sögðum: Halló, við ætlum að koma hér og passa upp á siglingaöryggið. En þá var okkur bent á það að grein sem hafði verið í lögum um Samgöngustofu og samgöngumál sem sagði að þau bæru ábyrgð á að skipuleggja samgöngur á bæði landi og legi, hún hafði óvart dottið út þegar lögunum var breytt út af einhverjum flugmálum,“ og allt í einu höfðu þeir ekki lengur réttinn til að skipuleggja umferð á hafinu. Þarna höfðu bara einhver mistök átt sér stað. Og núna var það bara enginn sem bar ábyrgð á því að skipuleggja öryggi siglinga á landinu.“
Þannig að það var bara einhver afgangsstærð!
„Og það var í raun og veru bara frábært fólk sem hefur barist eins og ljón fyrir þessu Seyðisfjarðarmáli, þau auðvitað Magnús og Anna Dóra eru bara komin á aldur og eru bara flinkustu lögfræðingar sem ég þekki af því þau bara sitja og stúdera þessi gögn sem bentu í raun og veru skipulaginu á að þarna væri verið að brjóta gegn lögum um vitamál um allt land með því að leyfa mannvirki inni í ljósgeislum frá vitum og það varð svona smá panik og einhver framlengdur frestur og allt í einu var kallað á Vegagerðina og aðrar stofnanir í lokin.
En í staðinn fyrir að byrja upp á nýtt og laga skipulagið þá ákveður þáverandi innviðaráðherra, sem var Sigurður Ingi, að segja bara: „Við leyfum þetta en gerum svona áskilnað um alls konar mótvægisaðgerðir á seinni stigum.“ Þetta er bara ömurlegt vinnulag, svona má ekki vinna. Þarna vantar okkur að vera aðeins þýskari og minna svona „þetta reddast“ einhvern veginn og vinna hlutina almennilega í byrjun þannig að við séum ekki alltaf að vinda ofan af einhverju skítamixi ár eftir ár.“
Þetta er eins og þú lýsir þessu, afstöðu fyrrverandi ráðherra, það er svona dálítið eins og við leyfum bara krökkunum að leika sér þarna á brunnbrúninni. Nú, ef þau detta ofan í þá byrgjum við hann.
„Já, já, eða náum í sjúkrabíl. Þetta er svona sjúkrabíllinn við rætur klettsins móment og þetta eitt og sér hefði átt að vera nóg til þess að þetta hefði aldrei farið í gegn, þetta skipulag, með þeim hætti sem það fór í gegn. En, og meira að segja þáverandi fulltrúi í svæðisráði frá matvælaráðuneytinu flaggaði þetta og sagði bara: „Við verðum að hægja á okkur.“ Og þá kom einhver önnur rödd innan úr Skipulagsstofnun og sagði: „Nei, við verðum bótaskyld ef við klárum þetta ekki.“ Alltaf þessi eilífa hræðsla um að auðmagnið muni einhvern veginn flengja mann. Það er því miður einhvers konar leiðarstef inni í íslenskri stjórnsýslu sem verður að ná að hrista af sér.“
Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:
Einnig er hægt að hlusta á Spotify.