Eyjan

Segir innri vanda þingflokks Viðreisnar alvarlegan og að Þorgerður Katrín hafi ekki hlustað á áhyggjur hans

Mynd
Mynd: Facebook-síða Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur.

Um fátt hefur verið fjallað meira í fréttum dag en óvænta úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar. Jón var í viðtali við Kastljós á RÚV nú í kvöld og endurtók þar helstu ástæðurnar sem hann gaf upp fyrr í dag fyrir úrsögn sinni en bætti við að alvarlegur vandi innan þingflokksins hefði einnig haft sitt að segja. Miðað við orð Jóns virðast veikindi Sigmars Guðmundssonar fráfarandi þingflokksformanns hafa ýtt undir þennan vanda. Gagnrýnir Jón forystu flokksins og segir formann hans hafa ekki sýnt athugasemdum hans og óánægju með stöðuna í þingflokknum nægilegan skilning.

Jón nefndi eins og hann gerði fyrr í dag of lítinn stuðning þingflokksins við hans helstu baráttumál en nefndi einnig innri vanda þingflokksins sem að hans mati er kominn á alverlegt stig:

„Það hafa verið svona ákveðin áföll. Bæði í ríkisstjórnarsamstarfinu ... ég held til dæmis að niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar hafi verið mikið áfall fyrir mjög marga í þessum flokki. Svo hafa verið alvarleg veikindi hjá einstaklingum innan þingflokksins sem hefur haft gríðarlega vond áhrif á starfsemina.“

Þarna er Jón væntanlega að vísa til veikindaleyfis Sigmars Guðmundssonar þingmanns Viðreisnar og fyrrum formann þingflokksins en hann nefnir þó engin nöfn í þessu samhengi. 

Forystan

Aðspurður um hvernig þessi veikindi hafi haft vond áhrif á starfs þingflokksins segir Jón að honum hafi liðið mjög vel í þingflokknum, honum líki vel við alla þar innan borðs og þyki vænt um þá en bætir síðan við:

„Mér finnst búið að vera langvarandi skortur á skýrri forystu.“

Segir hann það eiga við um þingflokkinn sjálfan og líka flokkinn sem slíkan.

Jón segir að þessi ákvörðun sín sé óþægileg fyrir marga en óþægilegust fyrir hann sjálfan.

Í vikunni var tilkynnt um að Pawel Bartoszek tæki við formennsku í þingflokknum af áðurnefndum Sigmari Guðmundssyni en Jón neitar því að úrsögnin hafi nokkuð haft með það að gera. Hann sé sáttur við þessa breytingu og telji að hún hafi átt að eiga sér stað fyrr.

Bregðast

Jón segist ekki hafa brugðist og staðið sína plikt en það eigi ekki við um alla samflokksmenn hans:

„Mér finnst bara forysta flokksins hafa brugðist mér.“

Aðspurður um hvernig segir Jón:

„Með því að taka ekki ábyrgð, forystuhlutverk.“

Segir Jón að forysta flokksins hafi átt að grípa inn í stöðuna í þingflokknum miklu fyrr og með ákveðnari hætti:

„Mér líður bara eins og ég sé í óásættanlegum aðstæðum sem að ég vil ekki vera í.“

Aðspurður um hvort hann hafi rætt þetta við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur formann flokksins svarar Jón því játandi en að hún hafi ekki sýnt hans upplifun og áhyggjum skilning. Hann segir þó ekki að óánægja hans beinist einkum að henni:

„Ég er engum reiður en ég sætti mig ekki við að vera í óheilbrigðum aðstæðum þar sem mér finnst ég ekki hafa nokkru einustu stjórn.“

Jón segir að þessar óheilbrigðu aðstæður hafi birtst í ákvarðanafælni og klíkumyndun en hann neitar að nefna nöfn í því samhengi.

Alkóhólisti

Aðspurður um hvers vegna hann segi sig þá ekki úr flokknum en ekki bara þingflokknum segir Jón:

„Mér líður eins og eiginkonu alkóhólista sem tekur þá ákvörðun einn daginn að flytja í næsta hús og búa ekki með alkóhólistanum en það þýðir ekki að viðkomandi sé búinn að afskrifa hjónabandið algjörlega.“

Jón segist vera að standa með sinni sannfæringu og sé ekki þannig að hann fari auðveldu leiðina út úr vanda eins og þessum.

Hann segist hafa margoft rætt áhyggjur sína og ónægju með starf þingflokksins við aðra þingmenn flokksins en vandinn sé fyrst og fremst forystuvandi. Málið snúist alls ekki um stöðu hans í þingflokknum og þá staðreynd að hann hafi ekki verið valinn þar til forystu.