Á Alþingi talar nú Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, fyrir því að fella niður erfðafjárskatt, bara sisvona með engum fyrirvara og henda þar með 14 milljörðum af árlegum tekjum ríkissjóðs út. Málflutningur hennar byggist á tilfinningum fremur en rökum og verður að teljast í meira lagi væminn og: Verið er að skattleggja „syrgjandi fjölskyldur.“
Orðið á götunni er að hér sé um fullkomlega ábyrgðarlausa tillögu að ræða því ekkert er sagt um hvað eigi að koma í staðinn. Hún nefnir ekki aðra tekjuöflun og bendir ekki á hvort skera eigi niður í staðinn 14 milljarða til heilbrigðismála eða menntamála eða samgönguframkvæmda sem fyrri ríkisstjórn vanrækti og skyldi eftir sig 600 milljarða innviðaskuld.
Orðið á götunni er að menn minnist þess ekki að Sjálfstæðisflokkurinn hafi í langri valdatíð sinni flutt neinar slíkar tillögur um niðurfellingu erfðafjárskatts en flokkurinn hefur verið við völd yfir 70 prósent af lýðveldistímanum frá 1944. Flokkurinn hefur haft ótal tækifæri til þess að fella niður þennan skatt á undanförnum árum og áratugum hefði hugur hans staðið til þess. En það er ekki fyrr en hann er loks kominn í löngu tímabæra stjórnarandstöðu að honum hugkvæmist að henda fram tillögu skömmu fyrir frágang fjárlaga um að fella út 14 milljarða af ætluðum tekjum ríkissjóðs vegna þessa.
Rósa sparar ekki stóryrðin, væmnina og hræsnina í „rökstuðningi“ sínum. Hefur hún ekki sótt landsfundi Sjálfstæðisflokksins? Þar hafa jafnan verið fluttar tillögur um að fella niður erfðafjárskatt, þær samþykktar, en svo hefur flokkurinn ekkert aðhafst í ríkisstjórn í framhaldinu. Það gildir um þetta svipað og tíðkast hefur á landsfundum flokksins í áratugi varðandi RÚV sem tillögur hafa verið um að leggja niður, einkavæða eða að minnsta kosti banna RÚV að selja auglýsingar. Og svo hefur flokkurinn haldið áfram setu á valdastólum í ríkisstjórn án þess að aðhafast nokkuð. En nú er unnt að gera ábyrgðarlausar kröfur í allar áttir úr valdalausri stjórnarandstöðu.
Orðið á götunni er að þessi tillaga Rósu sé dæmigerð fyrir ráðleysi stjórnarandstöðunnar sem finnur ekki fjölina sína, sættir sig ekki við að hafa verið hent út úr vinstri stjórninni í kosningum 2024 þar sem öllum þremur stjórnarflokkunum var hafnað grimmilega. Þannig er lýðræðið og Rósa og aðrir verða að horfast í augu við þær staðreyndir. Sjálfstæðisflokkurinn á ekki valdastólana þótt sumir eigi erfitt með að viðurkenna það. Ráðherrafráhvarf hrjáir suma og valdafráhvarf hrjáir alla þingmenn flokksins.
Þessi óútfærða tillaga Rósu um skerðingu ríkistekna um 14 milljarða er ekkert annað en innantómt blaður og gerir ekkert annað en að undirstrika pólitískt gjaldþrot Sjálfstæðisflokksins á Alþingi.
Orðið á götunni er að stjórnmálamenn sem vilja láta taks sig alvarlega verði að rökstyðja mál sitt og hafa eitthvað annað fram að færa en að vera bara fúlir á móti öllu.