Eyjan

Nína Richter skrifar: Gervigreindarloddarar

Mynd
Mynd

Ég var að borða fisk með tengdaforeldrum mínum þegar varnarmál og hernaður fléttuðust inn í samtalið. Ég fór að tala um drónahernað, eitthvað sem ég hafði séð á netinu. Það hafði eðlilega fennt yfir það með mörgum tonnum af tilgangslausu efni og grínmyndböndum, en jú. Ég mundi eftir að hafa lesið um drónahernað í Úkraínu og áhrif hans á lífríkið vegna örþunnra ljósleiðara sem tækin skildu eftir sig. Þræðirnir liggja yfir gróðri og jörð og geta flækt í sér dýr löngu eftir að drónarnir hafa lokið sínu.

Mannkynið er sem sagt að nýta háþróaða fjarstýrða tækni til að sprengja upp mannvirki og manneskjur og skilur svo eftir gildrur fyrir það sem eftir lifði. Umhverfisáhrif hernaðar verða samt gjarnan aukaatriði í umræðunni. Það eru aðrir og stærri hagsmunir undir. Sama með menningarlegt tjón í Mið-Austurlöndum, þegar mörg þúsund ára mannkynssaga verður að dufti í hernaði sem er réttlættur með baráttunni gegn hryðjuverkum. Þeir hagsmunir ganga framar. Komandi kynslóðir fá svo að díla við drónaruslið, fátæklegra lífríki og þá staðreynd að merkustu minjarnar okkar verða sumar hverjar aðeins til á myndum.

Samtalið við matarborðið endaði á vangaveltum um hvort fjárfestingarákvarðanir Vesturlanda, sér í lagi Bandaríkjanna, hefðu verið frekar skakkar þegar kæmi að drónahernaði. Ég sat hins vegar enn föst í þessum þráðum. Ég hef meiri áhyggjur af því hvernig komandi kynslóðir munu dæma okkur fyrir lista yfir útdauðar dýrategundir en slæmt bókhald í hernaði.

Siðfræðin er annars víða. Anthropic, fyrirtækið á bak við gervigreindina Claude, hefur nú kynnt nýjar notkunarreglur sem banna viðvarandi og tilgangslausa grimmd í garð módelanna. Það má enn pirrast á þeim, sem er léttir, en einhvers staðar liggja mörkin. Ég get ekki hætt að hugsa um hvernig þessi mörk eru könnuð. Ég sé fyrir mér fólk sem fær borgað fyrir að sitja og segja viðbjóðslega hluti við kerfið til að kanna þröskuldinn.

Ég veit auðvitað ekki hvernig þetta fór fram. Kannski og líklega var engin manneskja í þessari stöðu, heldur annað gervigreindarmódel einfaldlega fengið til að hegða sér eins og viðbjóðslegur dóni og hrauna yfir vélina. Tussa, kúkur, piss. Þá er búið að útvista bæði dónaskapnum og þolandanum. Allt til þess að hlífa mönnunum við sjálfum sér. Mennirnir eru svo skrýtnir.

Í miðju þessu öllu er síðan fólk með loddaraheilkenni og kvíða. Ég sá auglýsingu frá íslenskum háskóla um námskeið fyrir fólk sem vildi losna við loddaraheilkenni. Myndin var augljóslega gerð með gervigreind: Kona að horfa í spegil. Þetta var næstum því eins og ljóð. Kona sem er ekki til á að sannfæra fólk sem er til um að það sé ekki að þykjast.

Ég hneykslaðist á þessari auglýsingu. Fannst hún loddaraleg. Að bjóða fólki að losna við loddaralíðan með svona loddaralegri auglýsingu fannst mér alveg fyrir neðan allar hellur. Svona eins og þegar ég sá auglýsingu um daginn þar sem auglýst var eftir tískumódelum með myndum af gervigreindarmódelum. Þarna var þó enn verið að leita að fólki. Það var eitthvað.

En þetta virkaði. Ég tók eftir þessu. Hér er ég að skrifa um það og núna ert þú búinn að lesa um það. Auglýsing auglýsti, þó að gervigreindin hafi verið heimsk.